Innlent

Fórnarlamba kjarnorkuárása minnst

Íslenskar friðarhreyfingar standa að árlegri kertafleytingu á Reykjavíkurtjörn næsta miðvikudag. Kertum er fleytt í minningu fórnarlamba kjarnorkueldanna í japönsku borgunum Hírósíma og Nagasakí dagana 6. og 9.ágúst 1945. Þetta er tuttugasta og fjórða kertafleytingin á Tjörninni af þessu tilefni. Fyrsta kertafleytingin var í ágúst 1985 þegar 40 ár voru liðin frá kjarnorkuárásunum.

Að þessu sinni verður safnast saman við Suðvesturbakka Tjarnarinnar (við Skothúsveg) klukkan hálfellefu en þar mun Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður flytja stutt ávarp. Fundarstjóri verður Helga Nína Heimisdóttir. Að venju verða flotkerti og friðarmerki seld á staðnum, segir í tilkynningu frá Samstarfshópi friðarhreyfinga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×