Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Par handtekið í Borgarfirði eftir fíkniefnafund Lögreglan í Borgarnesi gerði húsleit í einbýlishúsi í uppsveitum Borgarfjarðar síðdegis í gær og handtók par á þrítugsaldri vegna fíkniefna sem þar fundust. Hátt í 30 grömm af meintum kannabisfræjum og maríjúana fundust við leitina. Parinu var sleppt að loknum yfirheyrslum. Málið er í rannsókn. 1.3.2008 09:53
Lögreglumenn fastir í ófærð á Vestfjörðum Hópur lögreglumanna af Suður- og Vesturlandi á leið á fótboltamót lögreglumanna Ísafirði er fastur í ófærð. Þannig komst hluti mannanna ekki lengra en til Hólmavíkur í gær þar sem vegir lokuðust. Nú er þess beðið að Steingrímsfjarðarheiði opni, en illa gengur að moka heiðina þar sem flutningabíll situr fastur á miðjum veginum. Fótboltamótinu verður því frestað eitthvað fram á daginn ef þörf er, eða þar til þátttakendur eru komnir á staðinn. 1.3.2008 09:42
Fimm eineltistilfelli á meðal starfsmanna hjá Póst- og fjarskiptastofnun Á tæpum þremur árum hefur helmingur starfsmanna Póst- og fjarskiptastofnunar sagt upp störfum. Starfsmannaveltan þar er með því hæsta sem þekkist hjá opinberum stofnunum, samkvæmt heimildum Vísis. 29.2.2008 20:51
Bubbi rak Hönnu og Sigga heim Hanna og Siggi luku bæði keppni í Bandinu hans Bubba í kvöld. Hanna Vigdís Jóhannesdóttir söng lagið Þú ert mér allt, sem betur er þekkt í flutningi Ellenar Kristjánsdóttur. Sigurður Guðlaugsson söng lagið Besti vinur eftir KK. Þegar þau höfðu lokið við að flytja lögin í annað skipti leist kónginum ekki betur á en svo að hann sendi þau bæði heim. Þau tóku þó bæði tíðindunum með mestu jafnaðargeði. 29.2.2008 22:20
Fundu 30 grömm af kannabis í Borgarfirði Um 30 grömm af ætluðum kannabisfræjum og maríjúana fundust við húsleit í uppsveitum Borgarfjarðar á sjötta tímanum í kvöld. Lögreglan í Borgarnesi handtók par á þrítugsaldri vegna málsins. Parið sem er á þrítugsaldri hefur áður komið við sögu lögreglunnar. Þau voru handtekin en sleppt eftir að þau höfðu verið yfirheyrð. 29.2.2008 22:07
Jóni í FL Group bannað að byggja Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála felldi í dag úr gildi ákvörðun Seltjarnarnesbæjar sem gefið hafði Jóni Sigurðssyni, forstjóra FL Group, leyfi til þess að byggja nýtt einbýlishús á lóð þar sem til stóð að rífa 319 fm2 einbýlishús hans við Unnarbraut 19. 29.2.2008 16:33
MR sigraði Verzló Lið Menntaskólans í Reykjavík sigraði lið Verzlunarskóla Íslands í æsispennandi Gettu betur keppni nú undir kvöld. 29.2.2008 21:24
Fagna frumvarpi sem heimilar reykrými á veitingastöðum Samband ungra sjálfstæðismanna fagnar frumvarpi þeirra Jóns Magnússonar, Guðjóns A. Kristjánssonar, Hönnu Birnu Jóhannsdóttur, Birgis Ármannssonar, Bjarna Harðarsonar, Illuga Gunnarssonar, Jóns Gunnarssonar, Kjartans Ólafssonar og Péturs H. Blöndal um breytingar á tóbaksvarnarlögum. 29.2.2008 19:45
Veginum milli Ísafjarðar og Súðavíkur lokað Lokað er á milli Ísafjarðar og Súðavíkur vegna snjóflóða og Skagavegur við Víkur var lokaður í dag vegna ræsagerðar. Á norðanverðum Vestfjörðum er ekkert ferðaveður. 29.2.2008 19:32
Lítið traust á borgarstjórn Aðeins 9% þeirra, sem svöruðu í skoðanakönnun Gallup í febrúar, sögðust treysta borgarstjórn Reykjavíkur. Þetta er langminnsta traust sem opinber stofnun, hefur mælst með í könnunum Gallup, samkvæmt fréttum Ríkisútvarpsins. 29.2.2008 19:14
Símasamband komið á að nýju Símasamband er komið á að nýju við Neskaupsstað. Vegna bilunar sem varð á ljósleiðarasambandi Mílu milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar nú undir kvöld fór rofnaði allt símasamband. Öll gagnaflutningssambönd um IP net Símans voru hinsvegar í lagi ásamt ADSL samböndum. 29.2.2008 19:02
DeCode segir upp 60 manns Líftæknifyrirtækið deCode, sagði í dag upp 60 starfsmönnum. Helmingur þeirra hættir störfum í dag en helmingur vinnur út uppsagnafrestinn, að því er fram kom í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins. 29.2.2008 18:27
Fíkniefnamagnið var 0,5 grömm Fíkniefnamagnið sem fannst á heimavist nemenda í Háskólanum á Bifröst nemur einungis 0,5 grömmum, samkvæmt heimildum Vísis. 29.2.2008 17:58
Níutíu sektaðir fyrir hraðakstur í Hvalfjarðargöngum Brot 89 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum í síðustu viku frá þriðjudegi til föstudags eða á tæplega 88 klukkustundum. 29.2.2008 16:50
Glussi lak af vörubíl Hátt í fjörutíu lítrar af glussa láku af krana á vörubíl á gatnamótum Miklubrautar og Kringlumýrar í Reykjavík á fjórða tímanum í dag. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins aðstoðaði hreinsideild Reykjavíkurborgar við að þrífa göturnar. Talsverðar umferðartafir urðu á meðan verið var að þrífa götuna, en loka þurfti einni reininni. 29.2.2008 16:30
Viðskiptaráðherra bregst við fyrirspurn Umboðsmanns Viðskiptaráðherra hefur óskað eftir því við Neytendastofu að hún framkvæmi úttekt á því í hvaða mæli það tíðkist að opinberar stofnanir og fyrirtæki innheimti seðilgjöld, og í hvaða tilvikum séu fullnægjandi lagaheimildir fyrir slíkri gjaldtöku. 29.2.2008 16:24
Umboðsmaður spyr um seðilgjöld hins opinbera Umboðsmaður Alþingis hefur skrifað bæði fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra bréf og spurt hvort fyrirhugað sé af hálfu ráðuneytanna að kanna í hvaða mæli það tíðkist að opinberar stofnanir og fyrirtæki innheimti seðilgjöld. 29.2.2008 15:47
Skilorðsbundið fangelsi fyrir heimilisofbeldi Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi gagnvart fyrrverandi eiginkonu sinni á þáverandi heimili þeirra fyrir um ári. 29.2.2008 15:33
„Ég líð ekkert svona á mínu svæði“ Þrír nemendur, tveir menn og ein kona, voru rekin úr Háskólanum á Bifröst í dag í kjölfar þess að fíkniefni fundust í íbúðum þeirra á háskólasvæðinu. Þetta staðfestir Ágúst Einarsson, rektor á Bifröst, í samtali við Vísi. „Ég líð ekkert svona á mínu svæði," segir Ágúst. 29.2.2008 15:22
Hægt að nota kreditkort í bílastæðahúsum í næstu viku Stöðumælum og bílastæðahúsum sem aðeins taka klink fer nú fækkandi því í næstu viku geta ökumenn notað kreditkort í greiðsluvélunum í bílastæðahúsum og innan skamms í nýjum miðamælum sem settir verða upp víðsvegar í miðborginni. 29.2.2008 14:37
Skilorðsbundið fangelsi fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu og valda slysi Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt mann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og sektað hann um 20 þúsund krónur fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot. 29.2.2008 14:29
Stærsti framhaldsskóli landsins einkarekinn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra undirritaði í dag samning við Menntafélagið ehf. um að annast rekstur nýs framhaldsskóla er verður til við sameiningu Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskóla Íslands. Samningurinn er til fimm ára og gildir frá 1. júlí 2008. 29.2.2008 14:03
Árni hefur engin áform um að feta áfram í spor Friðriks Árni Mathiesen fjármálaráðherra sagði engin áform uppi um að hann taki við af Friðriki Sophussyni sem forstjóri Landsvirkjunar. Friðrik mun að öllum líkindum láta af störfum í október og hafa sögusagnir gengið þess efnis að Árni taki við af Friðriki. 29.2.2008 13:05
Langþreyttir á stöðugu veggjakroti í Grafarvogi Verslunareigendur í Grafarvogi eru orðnir langþreyttir á stöðugu veggjakroti á húsnæði þeirra. Segjast þeir bera mikinn kostnað af skemmdarverkunum og lögreglan veiti þeim litla hjálp. 29.2.2008 12:45
Ísland tengist nýjum reglum ESB um fangaframsal Stefnt er að því að Ísland tengist nýjum reglum sem eru í mótun inna Evrópusambandsins um framsal dæmdra manna milli ríkja. Þetta var meðal þess sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Franco Frattini, dómsmálastjóri ESB, ræddu á fundi sínum í gær. 29.2.2008 12:43
Bíða með senda loðnuskip á veiðar í von um aukinn gróða síðar Dæmi eru um að útvegsmenn, sem eiga lítinn loðnukvóta, hafi ekki enn sent skip sín til veiða eftir að veiðibanninu var aflétt í von um að fá meira fyrir aflann síðar. Viðbótarkvótinn gæti skilað rúmum þremur milljörðum króna. 29.2.2008 12:35
Borgaryfirvöld að tala sig inn í kreppuna Borgaryfirvöld eru tala sig inn í kreppuna í stað þess að vinna sig út úr henni að mati borgarfulltrúa Framsóknarflokksins. 29.2.2008 12:30
Fá dagblöðin fjögurra daga gömul Reiði ríkir meðal íbúa í sveitum á sunnanverðum Vestfjörðum vegna þeirrar ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar að heimila Íslandspósti að fækka dreifingardögum pósts úr fimm á viku niður í þrjá. 29.2.2008 12:15
Heimilar rækjuveiðar í Arnarfirði Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur heimilað veiðar á 150 lestum af rækju í Arnarfirði. 29.2.2008 12:11
Vinna hefst við enduruppbyggingu á Laugavegi í lok ársins Vinna við enduruppbyggingu húsanna við Laugaveg 4 og 6 hefst að öllum líkindum fyrir lok þessa árs að sögn borgarstjóra. Kostnaður liggur þó enn ekki fyrir né hvernig framkvæmdum verður háttað. 29.2.2008 12:00
Látinn eftir umferðarslys á Akranesi Annar drengjanna sem lenti í hörðum árekstri á Akranesi þann 18. febrúar lést í gær. 29.2.2008 11:46
Sagði annan mann hafa ekið Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag 26 ára karlmann til þess að greiða 230 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir að hafa ekið ölvaður á vegrið skammt austan við Litlu Kaffistofuna, Sveitarfélaginu Ölfusi, þannig að bifreið ákærða valt og hafnaði utan vegar. 29.2.2008 11:27
Danskur rithöfundur hlýtur Bókmennaverðlaun Norðurlandaráðs Danski rithöfundurinn Naja Marie Aidt hlýtur Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2008 fyrir smásagnasafnið Bavian. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðurlandaráði. 29.2.2008 11:27
Fjármálaráðherra í hádegisviðtali Markaðarins í dag Árni Mathiesen fjármálaráðherra verður gestur í hádegisviðtali Markaðarins á Stöð 2 og Vísi í dag. 29.2.2008 11:20
Gagnrýni Hrafns stenst ekki gagnrýni Björn Bjarnason dómsmálaráðherra ræddi á bloggsíðu sinni í gær um ummæli Hrafns Bragasonar sem féllu á málþingi Orators á miðvikudaginn. Hrafn sagði þar að ekkert væri að kerfinu sem notað er til að skipa dómara hér á landi. „Vandamálið að mínu mati er þessi ráðherra," sagði Hrafn og átti þar við Björn. 29.2.2008 11:17
Menntafélagið rekur Iðnskólann og Fjöltækniskólann Nýtt félag, Menntafélagið, tekur við rekstri Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskólans sem sameinaðir verða. 29.2.2008 11:14
Örlög Guðmundar hjá OR ráðast þegar leyfi lýkur Örlög Guðmundar Þóroddssonar forstjóra REI ráðast þegar leyfi hans lýkur þann 1. apríl n.k.. Þá á hann að taka aftur við forstjórastöðu Orkuveitunnar en samkvæmt heimildum Vísi er síður en svo öruggt að svo verði. 29.2.2008 10:20
Tekið hart á fíkniefnamáli á Bifröst „Það verður tekið hart á þessu máli því við líðum ekki þennan ófögnuð hérna," segir Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst um fíkniefnafund lögreglunnar í nemendaíbúðum við háskólann í gærkvöldi. 29.2.2008 09:32
Vöruskipti neikvæð um 9,5 milljarða í janúar Vöruskipti við útlönd í janúar síðastliðnum reyndust neikvæð um 9,5 milljarða samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. 29.2.2008 09:13
Góð loðnuveiði við Vestmannaeyjar Góð loðnuveiði eru nú austan við Vestmannaeyjar, en fá skip eru á miðunum þar sem þau fylla sig á skömmum tíma og eru ýmist á landleið til löndunar, eða á útleið eftir löndun. 29.2.2008 07:33
Fíkniefni fundust í nemendaíbúðum Háskólans á Bifröst Fjölmennt lögreglulið úr Borgarfirði, Dölum, fíkniefnalögreglunni í Reykjavík og úr sérsveit ríkislögreglustjóra, ásamt tollgæslumönnum og þremur fíkniefnahundum, gerði húsleilt í þremur nemendaíbúðum við Háskólann á Bifröst í gærkvöldi. 29.2.2008 07:25
Neita að hafa barið löggur Litháarnir þrír sem ákærðir eru fyrir að hafa ráðist á fíkniefnalögreglumenn á Laugaveginum aðfaranótt 11. janúar neituðu sök í dómsal í gær. Lögreglumennirnir þrír fengu áfallahjálp eftir árásina. 29.2.2008 06:00
Borgarlögmaður semur drög að svari um REI til umboðsmanns Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að fela borgarlögmanni að semja drög að svari við spurningum frá umboðsmanni Alþingis sem bárust í byrjun vikunnar og snúa að málefnum Orkuveitu Reykjavíkur og Reykjavik Energy Invest. 28.2.2008 23:12
Eldri borgarar ánægðir með þjónustu Reykjavíkurborgar Mikill meirihluti eldri borgara, 80 ára og eldri, er ánægður með þá þjónustu sem þeir hljóta hjá Velferðasviði Reykjavíkurborgar. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem Capacent Gallup gerði fyrir Velferðarsvið Reykjavíkurborgar. 28.2.2008 22:07
Ferðakostnaður og dagpeningar vitna um ráðdeild borgarstjóra Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hefur í 18 ára tíð sinni í borgarstjórn lagt áherslu á ráðdeild og aðhald og um það vitna ferðakostnaður hans, dagpeningar og annar kostnaður 28.2.2008 23:40