Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Meðferð lögreglu í bága við pyntingarákvæði stjórnarskrár Fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður og meistaranemi í lögfræði segir að þvagleggsmálið svokallaða á Selfossi stangist á við stjórnarskrá um bann gegn pyntingum. Málið gæti endað fyrir mannréttindadómstólnum. 28.2.2008 18:45
Hægt að spara milljónatugi með láni í erlendri mynt Hægt er að spara milljónatugi á því að taka lán í erlendri mynt nú þegar kjarasamningar ASÍ og atvinnurekenda heimila fólki að semja um að fá hluta af launum í erlendum gjaldmiðli. Áttatíu þúsund manns hafa nú þessa heimild í sínum samningum. 28.2.2008 18:30
Íslendingar viðurkenna sjálfstæði Kosovo Í kjölfar sjálfstæðisyfirlýsingar Kósóvó frá 17. febrúar síðastliðinn hafa íslensk stjórnvöld ákveðið að viðurkenna sjálfstæði Kósóvó. Ekki liggur fyrir endanleg ákvörðun um dagsetningu, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. 28.2.2008 18:03
Segir orkumálafrumvarp minna á Sovétríkin Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir nýtt orkumálafrumvarp iðnaðarráðherra miðstýringar- og ríkisvæðingarfrumvarp og minna á Sovétríkin. Iðnaðarráðherra sakaði hann um líkja sér við Pútín Rússlandsforseta. 28.2.2008 17:31
Boðar aðhald í yfirstjórn borgarinnar Tillaga Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra um aðgerðir til að auka aðhald hjá yfirstjórn borgarinnar samhliða þriggja ára áætlun borgarinnar var samþykkt á fundi borgarráðs í dag. 28.2.2008 17:25
14 mánaða fangelsi fyrir alvarlega líkamsárás Hæstiréttur staðfesti í dag fjórtán mánaða fangelsisdóm yfir karlmanni sem sakfelldur var fyrir alvarlega líkamsárás, þjófnað og fíkniefna- og umferðarlagabrot. 28.2.2008 16:56
Vilhjálmur hafði borgarstjórastólinn af Árna Sigfússyni Árni Sigfússon og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson höfðu komist að samkomulagi þess efnis að Árni tæki við af Davíð Oddssyni þegar hann lét af embætti borgarstjóra árið 1991. Þegar á hólminn var komið hætti Vilhjálmur hins vegar við og því var Markús Örn Antonsson fenginn í starfið. Í fréttaskýringu í Morgunblaðinu á þriðjudaginn var er saga þessi rakin og í samtali við Vísi staðfestir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, að rétt sé farið með í meginatriðum. 28.2.2008 16:49
Sexmenningar fengu alls þrettán ár Hæstiréttur dæmdi í dag sex unga karlmenn í rúmlega þrettán ára fangelsi samanlagt fyrir mikinn fjölda brota sem þeir frömdu að miklu leiti undir áhrifum fíkniefna árið 2006 og 2007. 28.2.2008 16:48
Borgin á verk Kjarvals Hæstiréttur staðfesti í dag sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli erfingja Jóhannesar Kjarvals á hendur Reykjavíkurborg vegna verka listmálarans. 28.2.2008 16:44
„Þeir ætluðu að drepa þessa lögreglumenn" Ungur karlmaður sem varð vitni að árás fjögurra Litháa á rannsóknarlögreglumenn segir greinilegt að mennirnir hafi ætlað að taka þessa ákveðnu lögreglumenn fyrir. Árásin hafi því ekki verið handahófskennd. 28.2.2008 16:30
Bakkaði á mann sem skýldi sér fyrir illviðri Ekið var á mann um miðjan dag á Vallarheiði en það er gamla varnarliðssvæðið. 28.2.2008 16:28
Vilja fá ábendingar um viðhald og nýframkvæmdir Borgaryfirvöld hyggjast hafa víðtækt samráð við íbúa í hverfum borgarinnar um viðhaldsverkefni og smærri nýframkvæmdir þar og verður óskað eftir ábendingum þar um. 28.2.2008 15:39
Litháar afpláni í Litháen Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra lagði það til við Petras Baguska, dómsmálaráðherra Litháens á fundi þeirra í sendiráði Íslands í Brussel í morgun að Litháar, sem íslenskir dómstólar hafa dæmt til fangavistar, yrðu fluttir til afplánunar í ættlandi sínu. 28.2.2008 14:57
Umferðarstofa margoft bent á ónógar merkingar Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu segir að þar á bæ hafi mönnum borist fjöldi ábendinga um ónógar merkingar við Voga- og Grindavíkurafleggjara, ekki síst frá vegfarendum. 28.2.2008 14:48
Nýr Landspítali kynntur í Ráðhúsinu í dag Opinn kynningarfundur verður í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan 17 í dag á frumáætlunum um byggingu nýs Landspítala. 28.2.2008 14:44
Orkuveitan borar lengstu holu landsins Orkuveita Reykjavíkur hefur látið bora lengstu holu landsins, 3.111 metra langa. Fram kemur í tilkynningu frá Orkuveitunni að holan hafi verið stefnuboruð af norðurhluta Skarðsmýrarfjalls, undir útivistarsvæðið í Innstadal og er botn borholunnar undir suðurhlíðum Hengilsins. Holan var boruð til að afla gufu fyrir Hellisheiðarvirkjun og lofar hún góðu. 28.2.2008 14:28
Langflestir skipaðir héraðsdómarar metnir mjög vel hæfir Aðeins í einu tilviki af fimmtán, þar sem héraðsdómarar hafa verið skipaðir síðastliðin tíu ár, hefur umsækjandi verið metinn hæfur en í ellefu skipti var sá sem skipaður var metinn mjög vel hæfur af matsnefnd. Í þrjú skipti var sá sem skipaður var metinn vel hæfur. 28.2.2008 14:12
Lögreglumennirnir fengu áfallahjálp eftir árás Litháanna Aðalmeðferð í máli þriggja Litháa sem sakaðir eru um árás gegn fjórum rannsóknarlögreglumönnum fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þrír Litháar eru ákærðir en þeir neita allir sök í málinu. Segjast ekki hafa gert sér grein strax að um lögreglumenn hafi verið að ræða. Lögreglumennirnir fengu áfallahjálp eftir árásina. 28.2.2008 13:24
Óumflýjanlegt að tilkynna um afnám stimpilgjalda Það var óumflýjanlegt að tilkynna um afnám stimpilgjalda við kaup á fyrstu íbúð áður en það kemst til framkvæmda, segir Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra, þó að það þýði að sumir bíði með sín fyrstu íbúðakaup á meðan. 28.2.2008 13:18
Tímar óreiðu og óvæginna ummæla Netinu á enda Allt bendir til þess að tíma óreiðu og óvæginna ummæla á Netinu sé að ljúka að mati prófessors í félagsfræði við Háskóla Íslands. Hann segir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í bloggmálinu svokallaða vera tímamótadóm. 28.2.2008 12:59
ORF Líftækni fékk Nýsköpunarverðlaun ORF Líftækni fékk í morgun Nýsköpunarverðlaunin. Það eru Rannís og Útflutningsráð sem veita þau. 28.2.2008 12:48
Ekkert gert til að bæta merkingar við afleggjara Vegagerðin hefur ekkert gert til að bæta merkingar og hjáleiðir við vegamót Grindavíkur- og Vogavega við Reykjanesbrautina þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar lögreglunnar á Suðurnesjum. Þar verða langflest slys og óhöpp á Reykjanesbrautinni allri. 28.2.2008 12:35
Þriggja bíla árekstur á Bústaðavegi Þriggja bíla árekstur varð á Bústaðavegi nú fyrir hádegið. Einn farþegi var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en hann mun ekki hafa slasast alvarlega. 28.2.2008 12:28
Leggja áherslu á að loðna fari í frystingu Loðnuútgerðir og sjómenn leggja nú ofuráherslu að sem mest af takmörkuðum aflaheimildum fari í frystingu til manneldis því gríðarlegur verðmunur er á afurðum eftir vinnslu. 28.2.2008 12:25
Tekið eitt og hálft ár að ganga frá einföldum málum Það hefur tekið yfirlögregluþjóninn í Skagafirði allt að eitt og hálft ár að ganga frá einföldum málum, segir sýslumaður í áminningarbréfi. Út í hött, segir lögmaður yfirlögregluþjóns. 28.2.2008 12:13
2500 teknir í tollinum í fyrra Tæplega 2500 manns voru gripnir í tollinum með of mikinn varning á síðasta ári og greiddu þeir rúmar 32 milljónir króna í sektir og aðflutningsgjöld. 28.2.2008 12:06
Vinnubrögðin við Laugaveg 4 og 6 sögð fáheyrð Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, segir að vinnubrögð núverandi meirihluta borgarstjórnar við Laugaveg 4 og 6 séu fáheyrð þar sem virðing fyrir almannafé og vandaðri stjórnsýslu er gefið langt nef. 28.2.2008 11:52
Árni aflaði sér ekki nýrra gagna Árni Mathiesen fjármálaráðherra leitaði sér ekki nýrra gagna þegar hann ákvað að skipa Þorstein Davíðsson sem dómara við Héraðsdóm Norðurlands eystra og Austurlands og gekk þar þvert á álit sérstakrar hæfisnefndar. Þetta kemur fram í svari hans við fyrirspurn Árna Þórs Sigurðssonar, þingmanns Vinstri - grænna, um málið. 28.2.2008 11:44
Ekki ástæða til sérstakrar rannsóknar á fangaflugi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segir ekki ástæðu til þess að ráðast í sérstaka rannsókn á fangaflugi hér á landi líkt og gert hefur verið í nágrannalöndunum. Ef vísbendingar fáist hins vegar um að íslenskir flugvellir hafi verið notaðir með ólögmætum hætti þá sé ástæða til þess að skoða málið. 28.2.2008 11:07
Litháarnir bera af sér sakir í héraðsdómi Aðalmeðferð fer nú fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli þriggja Litháa sem ákærðir eru fyrir líkamsárás gegn tveimur lögreglumönnum úr götuhóp fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Árásin var gerð þegar hópurinn var við skyldustörf á Laugavegi þann 11. janúar síðastliðinn. 28.2.2008 10:54
Töfin kostar þrjá milljarða Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi formaður framkvæmdanefndar um byggingu háskólasjúkrahúss við Hringbraut, segir að töfin sem orðið hefur á framkvæmdinni kosti að minnsta kosti þrjá milljarða króna. Alfreð var settur af þegar Guðlaugur Þór Þórðarson settist í stól heilbrigðisráðherra. 28.2.2008 10:36
Óðinn mátaður við bryggjuna við Sjóminjasafið Nú klukkan hálfellefu var ætlunin að máta varðskipið Óðinn við bryggjuna við Sjóminjasafnið í Reykjavík en ætlunin er að gera skipið að safni um björgunarsögu Landhelgisgæslunnar og þorskastríðin. 28.2.2008 10:27
Konur í fyrsta sinn meirihluti skólastjóra Konur eru í fyrsta sinni meirihluti skólastjóra í grunnskólum, eða 95 konur á móti 89 körlum. Þetta leiðir samantekt Hagstofunnar í ljós. 28.2.2008 10:09
Með fiðrildi á fyrsta fundinum Ég var með fiðrildi í maganum áður en fundurinn hófst," segir Amal Tamimi sem í fyrradag varð fyrsti innflytjandinn til að taka sæti í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. 28.2.2008 09:54
Grunnskólanemendum fækkar næstu árin Grunnskólanemendur í íslenskum skólum reyndust um 43.800 síðastliðið haust sem er fjölgun um innan við hundrað nemendur frá fyrra ári. 28.2.2008 09:38
Vilja fá að kaupa litað bensín Fjögur þúsund og fimm hundruð manns hafa ritað undir áskorun þess efnis að stjórnvöld heimili Atlantsolíu að selja litað bensín á tæki, sem ekki nota vegakerfið. Það eru meðal annars þyrlur, skemmtibátar og sláttuvélar. 28.2.2008 08:29
Níu slösuðust í tveimur árekstrum á Akureyri Níu slösuðust, en engin lífshættulega, í tveimur árekstrum sem urðu á Svalbarðsstrandarvegi skammt frá Akureyri undir kvöld í gær. 28.2.2008 08:28
Ökumenn þurftu aðstoð á Reykjanesbraut í nótt Lögreglan á Suðurnesjum hefur þurft að aðstoða þó nokkra ökumenn í nótt þar sem þeir hafa fest bíla sína. 28.2.2008 07:56
Nokkur loðnuskip fengu risaköst Loðnuveiðar hofust af fullum krafti um leið og veiðibanninu var aflétt í gær. Nokkur skip fengu risaköst, eða vel á annað þúsund tonn í kasti, og eru farin heim til löndunar. 28.2.2008 06:55
Hafa áhyggjur af öryggi hinsegin fólks í Belgrad Full ástæða er til að hafa verulegar áhyggjur af öryggi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgenderfólks sem hyggjast fara til Belgrad í Serbíu þegar Eurovision verður haldið þar í vor. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Gay Pride á Íslandi. 27.2.2008 22:12
Fagna nýjum jafnréttislögum Stjórn Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar fagnar því að nýtt jafnréttisfrumvarp er nú orðið að lögum. Sérstaklega ber að fagna nýjum ákvæðum í lögunum um rétt einstaklinga til að segja þriðja aðila frá launum sínum, auknu umboði og eftirlitsheimildum Jafnréttisstofu og því að úrskurður kærunefndar jafnréttismála er nú bindandi fyrir málsaðila. 27.2.2008 23:24
Stúlkan fundin Harpa Rut Þórlaugsdóttir, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í kvöld, er fundin. 27.2.2008 23:17
Nýtt háskólasjúkrahús skal vera við Hringbraut Besta staðsetningin fyrir nýtt háskólasjúkrahús er við Hringbraut að mati nefndar sem hefur síðan í nóvember endurmetið og farið yfir allar forsendur fyrir byggingu nýs Landspítala við Hringbraut. Nefndin kynnti fjölmiðlum þessa niðurstöðu sína í dag og kemst hún að sömu niðurstöðu og nefnd sem áður hafði verið skipuð vegna málsins en var leyst upp af heilbrigðisráðherra síðasta haust. Stefnt er að forvali hönnunarsamkeppni á næstu vikum vegna nýja spítalans. 27.2.2008 20:47
Vilja heilsuhótel á Vestfirði Á Vestfjörðum gæti hugsanlega risið ákjósanlegt heilsuhæli sem hægt væri að kynna á erlendum vettvangi. Þetta var á meðal þeirra hugmynda sem ræddar voru á Vetrarþingi Framtíðarlandsins, sem haldin var fyrir jól. Tilgangur þingsins var að ræða möguleg atvinnutækifæri á Vestfjörðum og framtíðarhorfur þar. Rit með samantekt af þinginu kom út í vikunni. 27.2.2008 20:32
Einar: Sæll og glaður yfir tíðindum dagsins „Ég er sæll og glaður yfir því að það skyldi takast að finna loðnu í nægilega miklu magni til að hægt væri að hefja veiðar að ný," sagði Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra. 27.2.2008 19:14