Fleiri fréttir Telur samræmda sjúkraskrá nauðsynlega Velferðarráðherra telur nauðsynlegt að gögn frá sérgreinalæknum og þeim sem framkvæma aðgerðir án þátttöku ríksins verði hluti af samræmdri sjúkraskrá. Ef slík skrá væri til þá hefði hún getað hjálpað við að grípa inn í í PIP sílikonpúðamálinu. 9.1.2012 09:30 Gæsagengin mæla göturnar Ætla má að langvarandi snjóþekja reki gæsir frá grasblettum og á flakk um götur miðborgar Reykjavíkur segir Þórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkur. Stórir gæsahópar hafa mælt göturnar í miðborginni undanfarið. 9.1.2012 09:00 Ætluðu að vísa milljónamæringi úr landi í Danmörku Til stóð að vísa háöldruðum bandarískum milljónamæringi úr landi í Danmörku um helgina þrátt fyrir að hann væri giftur dönskum ríkisborgara. 9.1.2012 07:53 Veðurstofan spáir stormi í kvöld Veðurstofan spáir stormi víða um land í kvöld. Fyrst á að lægja um tíma síðdegis með slyddu eða snjókomu vestan til og rigningu suðaustanlands. Síðan bætir í vindinn og verður hann 15 til 23 metrar á sekúndu í kvöld. 9.1.2012 07:50 Ræðismanni Venesúela vísað úr landi í Bandaríkjunum Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa vísað ræðismanni Venesúela í Flórída úr landi. Ræðirmaðurinn, Livia Noguera verður að yfirgefa Bandaríkin í síðasta lagi á morgun, þriðjudag. 9.1.2012 07:43 Selir við Grænland svelta í hel vegna fæðuskorts Selastofnar við Grænland hafa vaxið svo hratt á undanförnum árum að stór hluti þeirra er að svelta í hel vegna fæðuskorts. 9.1.2012 07:39 Þúsundir innilokaðir vegna mikillar snjókomu í Ölpunum Ein mesta snjókoma í manna minnum hefur valdið miklum vandræðum fyrir heima- og ferðamenn í Ölpunum, einkum vestur og norðurhluta þeirra. Þúsundir eru innilokaðir. 9.1.2012 07:24 Líkið við Sandringham er af 17 ára stúlku frá Lettlandi Kennsl hafa verið borin á líkið sem fannst nýlega á landareign Sandringham sveitasetursins sem er í eigu Elísabetar Bretlandsdrottningar. Líkið er af 17 ára gamalli stúlku frá Lettlandi, Alisu Dmitirijevu að nafni. 9.1.2012 07:16 Lækkuðu lögreglusekt þar sem um Svía var að ræða Lögreglan í Noregi hefur lækkað sekt fyrir umferðalagabrot hjá sænskum vörubílstjóra um helming. 9.1.2012 07:08 Tveir mannlausir bílar í árekstri Lögreglu var tilkynnt um árekstur tveggja mannlausra bíla á Langholtsvegi í Reykjavík í gær. Annar bílanna reyndist hafa runnið á stað á svellbunka í vindhviðu og hafnað á hinum. 9.1.2012 07:03 Fyrri ferð Herjólfs fellur niður í dag Fyrri ferð Herjólfs til Þorlákshafnar fellur niður vegna óveðurs. Ölduhæð er nú sjö til tíu metrar á leiðinni og vindur er 16 til 20 metrar á sekúndu. 9.1.2012 07:01 Sluppu lítt meidd úr bílveltu Þrjár manneskjur sluppu lítið meiddar þegar jeppi valt út af Suðurlandsvegi austan við Þjórsá í gærkvöldi. 9.1.2012 06:59 Romney mælist með yfir 40% fylgi í New Hampshire Mitt Romney hefur örugga forystu í skoðanakönnunum í næsta prófkjöri Repúblikanaflokksins sem fram fer í New Hampshire á morgun, þriðjudag. 9.1.2012 06:56 Þúsundir kjúklinga í lífshættu á Holtavörðuheiði Fjölmennt lið björgunarsveitarmanna hefur í nótt sinnt óvenjulegu útkalli á Holtavörðuheiði. 9.1.2012 06:51 Bæjarráð furðar sig á þögn stjórnsýslunnar 9.1.2012 06:00 Olíuskip siglir eftir ísbrjóti Ísbrjótur á vegum bandarísku landhelgisgæslunnar hefur síðustu daga unnið að því að ryðja leið fyrir rússneskt olíuskip á leið til bæjarins Nome í Alaska. Komist skipið ekki á leiðarenda er hætta á að olíulaust verði í bænum. 9.1.2012 05:00 Vilja ekki aðstoð SÞ í Sýrlandi Leiðtogar Arababandalagsins krefjast þess að stjórnvöld í Sýrlandi bindi enda á ofbeldið í landinu strax. Þetta voru niðurstöður fundar bandalagsins í Kaíró í Egyptalandi í gær. 9.1.2012 04:30 Mikil hætta á snjóflóðum Mikil snjókoma hefur verið í austurhluta Sviss og vesturhluta Austurríkis undanfarna daga en snjóþyngslin hafa meðal annars sett lestarsamgöngur í landinu úr skorðum. 9.1.2012 04:00 Gengu blysför í kringum Grænavatn Talsverður fjöldi fólks mætti til blysfarar í kringum Grænavatn í Krýsuvík í gær. Blysförin var farin í tilefni þess að hundrað ár voru í gær liðin frá fæðingardegi Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings. 9.1.2012 04:00 Segir engan með réttu ráði lána til Vaðlaheiðarganga 9.1.2012 03:
Sjá næstu 50 fréttir
Telur samræmda sjúkraskrá nauðsynlega Velferðarráðherra telur nauðsynlegt að gögn frá sérgreinalæknum og þeim sem framkvæma aðgerðir án þátttöku ríksins verði hluti af samræmdri sjúkraskrá. Ef slík skrá væri til þá hefði hún getað hjálpað við að grípa inn í í PIP sílikonpúðamálinu. 9.1.2012 09:30
Gæsagengin mæla göturnar Ætla má að langvarandi snjóþekja reki gæsir frá grasblettum og á flakk um götur miðborgar Reykjavíkur segir Þórólfur Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkur. Stórir gæsahópar hafa mælt göturnar í miðborginni undanfarið. 9.1.2012 09:00
Ætluðu að vísa milljónamæringi úr landi í Danmörku Til stóð að vísa háöldruðum bandarískum milljónamæringi úr landi í Danmörku um helgina þrátt fyrir að hann væri giftur dönskum ríkisborgara. 9.1.2012 07:53
Veðurstofan spáir stormi í kvöld Veðurstofan spáir stormi víða um land í kvöld. Fyrst á að lægja um tíma síðdegis með slyddu eða snjókomu vestan til og rigningu suðaustanlands. Síðan bætir í vindinn og verður hann 15 til 23 metrar á sekúndu í kvöld. 9.1.2012 07:50
Ræðismanni Venesúela vísað úr landi í Bandaríkjunum Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa vísað ræðismanni Venesúela í Flórída úr landi. Ræðirmaðurinn, Livia Noguera verður að yfirgefa Bandaríkin í síðasta lagi á morgun, þriðjudag. 9.1.2012 07:43
Selir við Grænland svelta í hel vegna fæðuskorts Selastofnar við Grænland hafa vaxið svo hratt á undanförnum árum að stór hluti þeirra er að svelta í hel vegna fæðuskorts. 9.1.2012 07:39
Þúsundir innilokaðir vegna mikillar snjókomu í Ölpunum Ein mesta snjókoma í manna minnum hefur valdið miklum vandræðum fyrir heima- og ferðamenn í Ölpunum, einkum vestur og norðurhluta þeirra. Þúsundir eru innilokaðir. 9.1.2012 07:24
Líkið við Sandringham er af 17 ára stúlku frá Lettlandi Kennsl hafa verið borin á líkið sem fannst nýlega á landareign Sandringham sveitasetursins sem er í eigu Elísabetar Bretlandsdrottningar. Líkið er af 17 ára gamalli stúlku frá Lettlandi, Alisu Dmitirijevu að nafni. 9.1.2012 07:16
Lækkuðu lögreglusekt þar sem um Svía var að ræða Lögreglan í Noregi hefur lækkað sekt fyrir umferðalagabrot hjá sænskum vörubílstjóra um helming. 9.1.2012 07:08
Tveir mannlausir bílar í árekstri Lögreglu var tilkynnt um árekstur tveggja mannlausra bíla á Langholtsvegi í Reykjavík í gær. Annar bílanna reyndist hafa runnið á stað á svellbunka í vindhviðu og hafnað á hinum. 9.1.2012 07:03
Fyrri ferð Herjólfs fellur niður í dag Fyrri ferð Herjólfs til Þorlákshafnar fellur niður vegna óveðurs. Ölduhæð er nú sjö til tíu metrar á leiðinni og vindur er 16 til 20 metrar á sekúndu. 9.1.2012 07:01
Sluppu lítt meidd úr bílveltu Þrjár manneskjur sluppu lítið meiddar þegar jeppi valt út af Suðurlandsvegi austan við Þjórsá í gærkvöldi. 9.1.2012 06:59
Romney mælist með yfir 40% fylgi í New Hampshire Mitt Romney hefur örugga forystu í skoðanakönnunum í næsta prófkjöri Repúblikanaflokksins sem fram fer í New Hampshire á morgun, þriðjudag. 9.1.2012 06:56
Þúsundir kjúklinga í lífshættu á Holtavörðuheiði Fjölmennt lið björgunarsveitarmanna hefur í nótt sinnt óvenjulegu útkalli á Holtavörðuheiði. 9.1.2012 06:51
Olíuskip siglir eftir ísbrjóti Ísbrjótur á vegum bandarísku landhelgisgæslunnar hefur síðustu daga unnið að því að ryðja leið fyrir rússneskt olíuskip á leið til bæjarins Nome í Alaska. Komist skipið ekki á leiðarenda er hætta á að olíulaust verði í bænum. 9.1.2012 05:00
Vilja ekki aðstoð SÞ í Sýrlandi Leiðtogar Arababandalagsins krefjast þess að stjórnvöld í Sýrlandi bindi enda á ofbeldið í landinu strax. Þetta voru niðurstöður fundar bandalagsins í Kaíró í Egyptalandi í gær. 9.1.2012 04:30
Mikil hætta á snjóflóðum Mikil snjókoma hefur verið í austurhluta Sviss og vesturhluta Austurríkis undanfarna daga en snjóþyngslin hafa meðal annars sett lestarsamgöngur í landinu úr skorðum. 9.1.2012 04:00
Gengu blysför í kringum Grænavatn Talsverður fjöldi fólks mætti til blysfarar í kringum Grænavatn í Krýsuvík í gær. Blysförin var farin í tilefni þess að hundrað ár voru í gær liðin frá fæðingardegi Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings. 9.1.2012 04:00
Kortleggja segulsvið tunglins Eftir þriggja og hálfs mánaðar ferðalag eru könnunarför bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA komin á braut um tunglið í um 50 kílómetra hæð frá yfirborði þess. 9.1.2012 03:00
Eitt sent selt á 172 milljónir Bandarísk koparmynt frá árinu 1793 seldist fyrir 172 milljón króna á uppboði í Flórída. 9.1.2012 02:00
Romney er enn með gott forskot Mitt Romney hefur enn forskot á aðra frambjóðendur í forvali Repúblikanaflokksins í New Hampshire samkvæmt skoðanakönnunum. Forvalið fer fram á morgun. 9.1.2012 01:00
Vísað frá BNA vegna umræðna um tölvuárás Sendiherra frá Venesúela hefur verið rekin burt úr Bandaríkjunum eftir að upp komst um viðræður hennar við embættistmenn frá Kúbu og Íran um mögulega tölvuárás á Bandaríkin. Sendiherrann Livia Acosta Nogera er sögð hafa rætt um möguleika á tölvuárásinni í Mexikó árið 2008. Bandarísk stjórnmál komust á snoðir um málið eftir að heimildarmynd á spænskumælandi sjónvarpsstöðinni Univision sýndi upptökur af viðræðunum. Viðstaddir voru embættismenn frá Kúbu og Íran auk fjölda öfgasinnaðara nemenda. 8.1.2012 21:22
Teygjustökkvari lifði af 111 metra fall Það verður að teljast kraftaverki líkast að 22 ára áströlsk kona lifði af teygjustökk sem fór í gamlársdag. Konan var á bakpokaferðalagi um Zimbabwe með vinum sínum, þegar hún ákvað að skella sér í teygjustökk. Það fór ekki betur en svo að teygjan gaf sig í stökkinu og konan féll 111 metra og lenti ofan í á. Konan lifði fallið af og hélt meðvitund. Hún reyndi að synda niður með ánni og að bakkanum það gekki illa því teygjan sem var fest við fætur hennar var föst í grjóti. 8.1.2012 21:08
Aukning um þúsundir bílferða við LSH Umferð á eftir að aukast um 4.000 bílferðir á sólahring við Landspítalann við Hringbraut þegar fyrsti áfangi nýja spítalans verður tekinn í notkun árið 2017. Þrátt fyrir það er ekki talið nauðsynlegt að gera víðtækar ráðstafanir í gatnakerfi borgarinnar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem unnin var fyrir Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar sem kynnt var byggingarnefnd nýs Landspítala í vikunni. Við það að taka fyrsta áfanga spítalans í notkun, sem stefnan er að gera árið 2017, mun umferð um svæðið aukast verulega 8.1.2012 19:11
Kona "rassaði“ málverk Bandarísk kona hefur verið kærð fyrir að nudda berum rassinum sínum við rándýrt málverk. Þetta er talin glæpsamleg hegðun. Carmen Tisch var handtekin fyrir að nudda berum rassinum á sér við listaverk sem metið var á milli 30 og 40 milljónir dollara á Clyfford Still safninu. Talið er hún hafi valdið skaða sem nemur 10 milljónum dollara. 8.1.2012 18:07
Segir falsanir í skýrslu um Vaðlaheiðargöng Jón Þorvaldur Heiðarsson, fræðimaður við Háskóla Akureyrar, sakar Pálma Kristinsson um falsanir í skýrslu sinni um Vaðlaheiðargöng. Pálmi tekur upp texta Jóns í skýrsluna en breytir orðalaginu í tilvitnuninni á fleiri en einum stað. Alkunna er að slíkt er bannað í vísindasamfélaginu að sögn Jóns. 8.1.2012 17:35
Mannlaus bíll olli tjóni í hálkunni Lögregla hefur í dag haft í nógu að snúast vegna hálkunnar. Mikið hefur verið tilkynnt um slæmar bifeiðastöður í miðbæ Reykjavíkur. Það er að mestu vegna slæmrar færðar að ökumenn neyðast til að leggja bifreiðum á óheppilegum stöðum. Þá hefur og lögregla þurft að aðstoða ökumenn sem hafa komið sér í sjálfheldu og komist hvorki afturábak né áfram vegna hálku og bifreiða sem voru kyrrstæðar og mannlausar. 8.1.2012 17:03
Salurinn á Nasa of illa farinn til að standa Eigandi Nasa segir salinn í húsinu mjög illa farinn. Hann telur nauðsynlegt að rífa hann sem fyrst, hvort sem hann verður þá endurbyggður í sömu mynd eða ekki. "Það er kannski ekki beinlínis að hruni komið, enda væri þá hætta fólgin í því. En það sér það hver sem gengur Vallarstrætið að þetta er bara hrófatildur," segir Pétur Þór Sigurðsson eigandi Nasa. Þar vísar hann til salarins eða aftari hluta Nasa. 8.1.2012 16:47
Verulegt tjón við fiskeldisstöðina Klukkan 13:21 kom upp eldur í útihúsi við fiskeldisstöð í Ólafsfirði. Slökkvilið, lögregla og björgunaraðilar eru að störfum á vettvangi og er ljóst að tjón er verulegt. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu en lögreglan vinnur að rannsókn málsins. 8.1.2012 15:38
Heimildarmynd um leiðtogann sýnd í NK Heimildarmynd um Kim Jong-un, nýjan leiðtoga Norður Kóreu (NK), var sýnd í landinu í dag. Tilefnið var afmæli hins nýja leiðtoga. Í myndinni er Kim Jong-un í hlutverki hins mikla herleiðtoga, keyrir um á skriðdreka, heilsar hersveitum og stýrir æfingum. Hin geysiöfluga áróðursmaskína landsins virðist því þegar byrjuð að hefja ímynd hins nýja leiðtoga til skýjanna, en samfélagið byggir á mikilli leiðtogadýrkun. Eftir að Kim Jong-il, faðir Kim Jong-un, féll frá myndaðist ákveðið tómarúm í hugum almennings. Fjölmiðlar sem handgengnir eru stjórnvöldum landsins reyna nú augljóslega að breiða úr leiðtoganum unga í það tómarúm. 8.1.2012 15:25
Markmaður sakaður um mansal Markmaður frá Mexikó hefur verið handtekinn vegna meintrar hlutdeildar í mansalshring. Markmaðurinn Omar "el gato" Ortiz er sakaður um að vinna með hóp sem hefur staða fyrir 20 mannránum. Hann er sakaður um að hafa valið fórnarlömb hópsins. 8.1.2012 15:03
Eldsvoði á Ólafsfirði Eldur kom upp í húsnæði í Ólafsfirði um klukkan hálf tvö í dag. Fréttir hafa borist af því að fiskeldisstöðin í Hlíð standi þar í ljósum logum. Það hefur ekki fengist staðfest. Lögreglan á Akureyri getur ekki gefið upplýsingar um málið að svo stöddu. 8.1.2012 14:32
Vangaveltur um öryggi risaflugvéla Austurískir verkfræðingar efast um öryggi stærstu flugvéla heims, Airbus A380. Þeir hafa lagt til að þessir risar háloftanna verði teknir úr umferð meðan fram fer rannsókn á sprungum sem hafa myndast á vængjum nokkurra vélanna. Framleiðandi vélanna heldur því fram að sprungurnar hafi ekki í för með sér neina hættu. Í yfirlýsingu sem gefin var út vegna málsins segir "Það er rétt að fundist hafa litlar sprungur á klæðningu um burðarvirkið í vængnum. Við höfum fundið orsök þessa." Fram kemur að þeir muni laga gallann í vélunum. Loks er tekið fram að öryggi vélanna er ekkert skert vegna sprungnanna. 8.1.2012 14:20
Yfirheyrður vegna dauðsfalla á spítala Hjúkrunarfræðingur í Bretlandi er grunaður um að hafa myrt þrjá og skaðað átján sjúklinga þar sem hann gaf sjúklingum eitraða saltlausn. Verið er að yfirheyra hjúkrunarfræðinginn sem heitir Victorino Chua og er fjörutíu og sex ára gamall. Hann var handtekinn á fimmtudag eftir að farið var að rannsaka fjórða dauðsfallið á Stepping Hill spítalanum í Manchester. 8.1.2012 14:00
Bretar fjarlægja sílíkonpúðana endurgjaldslaust Bretar hafa ákveðið að bjóða konum sem hafa fengið PIP sílíkonpúða grædda í sig þar í landi endurgjaldslausa aðgerð þar sem þeir eru fjarlægðir. Heilbrigðissvið landsins (NHS) mun greiða fyrir aðgerðirnar. Konum sem gengust undir aðgerðir á opinberum skurðstofum verður boðið upp á einstaklingsmiðað viðtal við sérfræðing þar sem farið verður yfir stöðuna hjá hverjum og einum. Í framhaldinu verður ákveðið hvort rétt sé að fjarlægja púðana í hverju tilfelli. Verði það niðurstaðan mun hið opinbera greiða aðgerðirnar. 8.1.2012 13:46
Samræmd sjúkraskrá nauðsynleg Velferðaráðherra telur nauðsynlegt að gögn frá sérgreinalæknum og þeim sem framkvæma aðgerðir án þátttöku ríksins verði hluti af samræmdri sjúkraskrá. Ef slík skrá væri til þá hefði hún getað hjálpað til að grípa inn í í PIP sílikonpúðamálinu. Síðastliðið haust var kynnt skýrsla sem velferðaráðherra lét vinna um skipulag heilbrigðiskerfisins hér á landi. Það var Boston Consulting Group sem vann skýrsluna. Ein af niðurstöðum skýrslunnar er að verulega skorti á rafræn skráningarkerfi hér á landi og nákvæmar tölulegar upplýsingar úr heilbrigðiskerfinu. Mikilvægt sé að tekin verði í notkun samræmd rafræn sjúkraskrá fyrir allt landi. Slíkt er ekki til staðar hér á landi eins og staðan er núna. 8.1.2012 13:30
Óvissa um ferðir Herjólfs Vegna slæmrar ölduspár fyrir mánudag og þriðjudag er hugsanlegt að fella þurfi niður einhverjar eða allar ferðir Herjólfs til Þorlákshafnar þessa daga, en spáð er vel yfir tíu metra ölduhæð næstu daga. Í tilkynningu frá Eimskipum eru farþegar beðnir um að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, á Facebook eða síðu 415 í Textavarpi. 8.1.2012 12:58
Arababandalagið fundar um Sýrland Fulltrúar Arababandalagsins eiga að koma saman til fundar í Karíó í Egyptalandi í dag. Á fundinum verður ferð eftirlitsfulltrúa bandalagsins til Sýrlands rædd og viðbrögð við stigmagnandi ólgu í landinu. Talið er að á fjórða þúsund manns hafi látið lífið, síðan að mótmæli hófust í landinu, í mars á síðasta ári. Arababandlagið skoðar til hvaða refisaðgerða grípa á til en til greina kemur að beita viðskiptaþvingunum og ferðabanni. 8.1.2012 12:55
Gætum verið rík eins og Norðmenn Guðmundur Steingrímsson telur um helming þingmanna reiðubúinn að afhenda auðlindir þjóðarinnar á kostnaðarverði í þágu staðbundinnar atvinnuuppbyggingar eða markmiða. Svo er hinn helmingurinn sem vill reyna að fá hámarksarð fyrir þær. "Og um þetta er mikið deilt á þingi," segir Guðmundur. "Fólk verður að fara að upplifa þetta debat." Í þessu samhengi telur hann slæmt að fólk sjái engan mun á stjórnmálaflokkum. Guðmundur Steingrímsson og Lilja Mósesdóttir voru gestir Sigurjóns M Egilssonar í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Þar ræddu þau nýstofnuð stjórnmálaöfl sín. 8.1.2012 12:44
Látin kona á landareign drottningar Lögreglan í Englandi óskaði á föstudag eftir aðstoð almennings við að bera kennsl á konu sem fannst látin á landareign drottningarinnar við Sandringham setrið í Norfolk á sunnudaginn síðasta. Í upphafi var ekkert vitað um konunna eða ástæður þess að hún fannst þarna látin, en á föstudag sagðist lögreglan nú telja að það afar ólíklegt að konan hafi látist af eðlilegum orsökum. krufning hefur leitt í ljós að konan hafi legið látinn á landareignnninni í einn til fjóra mánuði. Elísabet drottning eyðir jafnan jólunum á Sandringham landareignninni, en hún fjölskylda hennar koma þangað ekki fyrr en um miðjan desember og fara í lok nóvember. Þau er ekki grunuð um aðild að málinu. 8.1.2012 11:20
Flutningaskipið Rena brotnað í tvennt Óttast er að olía geti ógnað lífríki við Nýja-Sjáland eftir að flutningaskip, sem strandaði þar fyrir þremur mánuðum, brotnaði í tvennt og olía losnaði úr skipinu. Skipið brotnaði síðastliðna nótt í vonskuveðri þegar 6 metra öldur skullu á því. Strand flutningaskipsins Rena er eitt stærsta og alvarlegasta umhverfisslys sem orðið hefur á Nýja-Sjálandi. Strax eftir slysið fyllti olía strendur landsins. 8.1.2012 11:09
Segja bandaríska hermenn hafa pyntað fanga Afganskir rannsóknaraðilar hafa komist að þeirri niðurstöðu í nýrri skýrslu að bandarískir hermenn hafi pyntað fanga í einu stærsta fangelsi landsins. Talsmaður rannsóknarnefndarinnar segir að mönnum hafi verið haldið án sönnunargagna, þeir barðir, látnir undirgangast niðurlægjandi líkamsleitir og látnir hýrast í fangaklefum í miklum kulda. Talsmenn bandaríkjahers segjast taka þessar ásakanir alvarlega og ætla að rannsaka þær. Fangelsið sem um ræðir er skammt frá aðaflugvellinum við Kabúl en Bandaríkjamenn höfðu áður lofað því að láta stjórn þess í hendur heimamanna í byrjun þessa árs. 8.1.2012 10:56
Slæmt ferðaveður Vegagerðin vekur athygli á því að mjög varasamt getur verið að vera á ferðinni þegar saman fer hvass vindur og svell á vegum. Fólki í ferðahug er bent á að hringja í upplýsingasíma Vegagerðarinnar til að afla upplýsinga um færð á leiðinni. Færðin getur breyst hratt í þessum aðstæðum. Vegagerðin hefur helst áhyggjur af Hellisheiðinni, en þar er flughálka og óveður. Auk þess er hálka eða flughálka á flestum vegum um allt land og í rauninni lítið ferðaveður eins og stendur. Vegfarendur eru beðnir um að fylgjast vel með breytingum á færð á heimasíðu vegagerðarinnar vegagerdin.is eða í síma 1777. Loks er minnt á að víða er ekki mokstur eða þjónusta á vegum á kvöldin og nóttunni, og jafnvel einhverjir vegir sem eru aðeins í þjónustu fáa daga í viku. 8.1.2012 10:19