Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fyrsti hluti norræna lánsins greiddur út Fyrsti hluti láns frá Norðurlöndunum til Íslands í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var greiddur í dag. Um er að ræða 300 milljónir evra. 21.12.2009 17:07
Blaðamaður DV dæmdur fyrir ummæli Dabba Grensás Blaðamaður DV, Erla Hlynsdóttir, var dæmd fyrir meiðyrði gagnvart Viðari Má Friðfinnssyni, eiganda Strawberries klúbbsins. Ummælin sem hún er dæmd fyrir voru höfð eftir Davíð Smára Helenarsyni, eða Dabba Grensás, í viðtali sem birtist í blaðinu í febrúar á þessu ári. 21.12.2009 16:39
Segir af sér stjórnarmennsku vegna rannsóknar sérstaks saksóknara Jón Kr. Sólnes, stjórnarmaður í Byr, hefur ákveðið að láta af stjórnarstörfum á meðan á rannsókn málsins stendur og kalla inn varamann í sinn stað. 21.12.2009 16:30
Styrkur svifriks langt yfir heilsuverndamörkum um helgina Styrkur svifryks fór yfir heilsuverndarmörk á mælistöð Reykjavíkurborgar við Grensásveg bæði á laugar- og sunnudag. Svifryksmengun var hins vegar innan marka í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum þar sem önnur mælistöð er staðsett. Veðurstofan spáir áfram þurrviðri, kulda og tölvuverðum vindi og því má búast við staðbundinni svifryksmengun í borginni næstu daga. 21.12.2009 16:02
Þingmenn framlengdu launalækkun sína Þingmenn samþykktu fyrir stundu að framlengja launalækkun sína sem ákveðin hafði verið til loka ársins 2010. 21.12.2009 15:41
Öngþveiti í Evrópu Öngþveiti ríkir í samgöngumálum í Evrópu vegna mikils fannfergis rétt þegar milljónir manna ætla að bregða sér af bæ um hátíðarnar. 21.12.2009 15:22
Um 12% barna hafa fengið ógnvekjandi sms Rösklega 12% barna sem eiga farsima segjast hafa fengið skilaboð í farsímann sinn sem hafi verið ógnandi eða hrætt þau. 21.12.2009 15:22
Klámfenginn húðflúrari lamdi Guðmund í Byrginu Héraðsdómur Suðurlands dæmdi húðflúrarann Ragnar Hauksson fyrir að hafa gengið í skrokk á Guðmundi Jónssyni, oft kenndur við Byrgið, á síðasta ári. Þá er hann einnig dæmdur fyrir ósiðlegt athæfi þegar hann klæmdist við sautján ára stúlku sem hann var að húðflúra. 21.12.2009 15:13
Bandaríkin æfa eldflaugaárás frá Íran Bandaríkjamenn ætla í janúar að æfa hvernig þeir myndu verjast langdrægri kjarnorkueldflaug frá Íran. Þeir hafa áður æft hvernig þeir myndu verjast eldflaugaárás frá Norður-Kóreu. 21.12.2009 15:01
Sektaður um tvær milljónir fyrir hvíldarleysi Vörubílstjóri var dæmdur til þess að greiða 2,1 milljón fyrir að virða ekki lögbundin hvíldartíma vörubílstjóra ítrekað. Það var Héraðsdómur Suðurlands sem dæmdi manninn til þess að greiða sektina en upphaf málsins má rekja til apríl á síðasta ári. 21.12.2009 14:43
Mótmæli valda umferðartöfum Um 80 - 100 vinnuvélar og stórir flutningabílar eru á leið að Alþingishúsinu þar sem mótmælt verður. Vélunum hefur verið ekið um borgina nú eftir hádegi og hafa þeir orsakað nokkrar umferðartafir. Við segjum nánar frá þessum mótmælum í dag. 21.12.2009 14:38
Sakar ríkisstjórnina um að brjóta kjarasamninga Gylfi Arnbjörnsson, formaður Alþýðusambands Íslands, mótmælir harðlega afnámi verðtryggingar persónuafsláttar í bréfi sem hann sendi þingmönnum í morgun. 21.12.2009 14:34
Yngri dóttir Sophiu Hansen hugsanlega á leiðinni til Íslands Yngri dóttir Sophiu Hansen, Rúna, verður kölluð til vitnis í aðalmeðferð í sakamáli gegn Sophiu sem var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. 21.12.2009 13:46
Sundlaugarálftin drapst í morgun Álft sem gerði sig heimakomna við Sundlaug Kópavogs og var flutt í húsdýragarðinn drapst þar í morgun. 21.12.2009 13:45
Dæmdur fyrir tugmilljóna króna skattsvik Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi 39 ára gamlan karlmann í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi í dag fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda að upphæð 19 milljónir króna. 21.12.2009 13:17
Bannað að barna á vígvellinum Bandarískur hershöfðingi í Norður-Írak hefur hótað að leiða liðsmenn sína fyrir herrétt ef þeir verða ófrískir á meðan þeir gegna herþjónustu þar í landi. 21.12.2009 13:14
Hæstiréttur þyngir dóm yfir fjármálastjóra Garðabæjar Dómur yfir fyrrum fjármálastjóri Garðabæjar, Alfreð Atlasyni, var þyngdur í Hæstarétti Íslands í morgun. Áður hafði héraðsdómur dæmt Alfreð í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Hæstiréttur þyngdi dóminn í átta mánuði, þar af eru sex mánuðir skilorðsbundnir. 21.12.2009 12:31
Óhöppum vegna ölvunaraksturs hefur snarfækkað í ár Umferðaróhöppum sem rakin eru til ölvunaraksturs eru 26% færri það sem af er árinu en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í tölum frá Umferðarstofu. 21.12.2009 12:21
Lést í umferðarslysi á Hafnarfjarðarvegi Annar þeirra sem lét lífið í umferðarslysi á Hafnarfjarðarveginum síðastliðinn föstudag hét Björn Björnsson. 21.12.2009 12:03
Alþingi samþykkti skattahækkanir í morgun Alþingi samþykkti í morgun bandorm ríkisstjórnarinnar um hækkun ýmissa óbeinna skatta sem og virðisaukaskatts, sem skila á ríkissjóði um 14 milljörðum í auknar tekjur á næsta ári. Gjöld á áfengi, tóbak og bensín verða hækkuð. 21.12.2009 11:59
Landlæknir kannar álag á starfsmenn Landspítala Landlæknisembættið hyggst á næstunni kanna ítarlega hvort álag á starfsmenn Landspítala hafi aukist frá því sem áður var og skila heilbrigðisráðherra greinargerð um málið. Þetta kemur fram á vef heilbrigðisráðuneytisins. 21.12.2009 11:15
Ísraelar viðurkenna líffæraþjófanði Mikið upphlaup varð í sumar þegar sænskur blaðamaður hafði eftir palestinskum heimildarmönnum að Ísraelar hefðu stolið líffærum úr líkum palestínumanna sem hefðu fallið í átökum við ísraelska herinn. 21.12.2009 11:04
Fjarskiptamastur hrundi í óveðri Fjarskiptamastur sem stendur á Hestgerðishnútu sem er á Borgarhafnarfjalli í Suðursveit féll í óveðri um helgina með þeim afleiðingum að húsið sem hýsir tækjabúnaðinn lagðist á hliðina. 21.12.2009 10:48
Samfylkingin heldur forval á Seltjarnarnesi Samfylkingin á Seltjarnarnesi efnir til forvals 30. janúar næstkomandi um röðun á framboðslista í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Í tilkynningu frá skrifstofu Samfylkingarinnar kemur fram að framboðsfrestur í prófkjörinu rennur út þann 15. janúar. Rétt til framboðs eiga félagar í Samfylkingunni búsettir á Seltjarnarnesi sem hafa náð 18 ára aldri á prófkjörsdaginn. 21.12.2009 10:32
Dóttir Sophiu Hansen kvödd til vitnis á Íslandi Sophia Hansen hefur verið ákærð fyrir að hafa borið Sigurð Pétur Harðarson, fyrrum útvarpsmann, röngum sökum sem leiddi til þess að hann var grunaður um skjalafals árið 2007. 21.12.2009 10:22
Samþykkja stuðning við nýsköpunarfyrirtæki Alþingi samþykkti í morgun sérstakt frumvarp um breytingar á tekjuskatti sem miðar að því að styðja við nýsköpunarfyrirtæki. 21.12.2009 10:21
Maður í gervi villisvíns skotinn til bana Tveir grískir veiðimenn skutu þann þriðja til bana um helgina þar sem hann skreið um í skóglendi, sveipaður feldi sem hann notaði til að dulbúast sem villisvín og freista þess þannig að veiða eitt slíkt. 21.12.2009 08:20
Bandarísk lögregla prófar höfuðmyndavélar Lögregla í Kaliforníu hefur nú til reynslu nýja myndavélatækni sem ætlað er að vera til vitnis um allar aðgerðir hvers lögreglumanns. 21.12.2009 08:06
Rannsaka akstur mannlauss bíls Lögreglan á Selfossi grúskar nú í huldumannasögum og jafnvel draugasögum í von um að finna skýringu á því hvernig það mátti vera að bíl var ekið utan í annan bíl í Ölfusi í nótt, án þess að mannleg vera sæti þar undir stýri. 21.12.2009 08:01
Bandaríkjamenn grafa sig út úr sköflunum Íbúar austurstrandar Bandaríkjanna eru nú í óða önn að grafa sig út úr sköflum eftir mikið fannfergi og storm þar um helgina en jafnfallinn snjór náði allt að 60 sentimetrum og var til dæmis eitt met sett í þeim efnum í Maryland. 21.12.2009 07:57
Tugir látnir í helkulda í Evrópu Ískuldi og fannfergi í Evrópu urðu tugum að bana um helgina og samgöngur um alla álfuna eru gengnar úr skorðum. 21.12.2009 07:30
Búðareigandi í Kaupmannahöfn stunginn í höfuðið Búðareigandi á sextugsaldri í Kaupmannahöfn var stunginn í höfuðið í gærkvöldi þegar ránstilraun var gerð hjá honum. Tveir unglingspiltar komu inn í búðina og heimtuðu peninga með hníf á lofti. 21.12.2009 07:28
Auschwitz-skiltið endurheimt Hið heimsþekkta járnskilti Auschwitz-útrýmingarbúðanna, þar sem stendur Arbeit macht Frei, Vinnan gefur frelsi, hefur verið endurheimt en því var stolið í síðustu viku. 21.12.2009 07:25
Þrír geimfarar halda til geimstöðvarinnar Rússnesku Sojus-geimfari var skotið á loft frá Baikonur-geimstöðinni Kazakstan í nótt með þrjá geimfara innanborðs. Mennirnir eru frá Bandaríkjunum, Japan og Rússlandi og mun geimfarið koma að Alþjóðlegu geimstöðinni á Þorláksmessu. 21.12.2009 07:21
Eurostar-lestin stopp vegna frosts Allt að hundrað þúsund manns beggja vegna Ermarsunds sjá fram á að komast ekki á milli Bretlands og meginlandsins eftir að ljóst varð í gær að lestir Eurostar-fyrirtækisins munu ekki ganga um Ermarsundsgöngin í dag og ekki þangað til veður skánar í Evrópu en þar eru nú frosthörkur og fannfergi en hitamunur ofan- og neðanjarðar veldur rafmagnstruflunum í lestunum. 21.12.2009 07:17
Einn ölvaður og annar velti stolnum bíl Árekstur varð í Ármúla í Reykjavík í gærkvöldi þegar ölvaður ökumaður ók á öfugum vegarhelmingi á móti umferð. Ökumaður, sem á móti kom, sveigði yfir á öfugan vegarhelming til að forðast árekstur, en þá sveigði sá ölvaði yfir á réttan vegarhelming sín megin og skall þá á honum. 21.12.2009 07:14
Íbúar í Garðabæ yfirbuguðu innbrotsþjóf Íbúar í húsi við Strandveg í Garðabæ urðu í gærkvöldi varir við mannaferðir í íbúð sinni og þegar til kom reyndist þar vera innbrotsþjófur á ferð með skjávarpa í fórum sínum. 21.12.2009 07:09
Tuttugu ár frá falli einræðis í Rúmeníu Íbúar í Rúmeníu virðast flestir ætla að láta framhjá sér fara minningarathafnir um fall Nicolaes Ceausescu einræðisherra, sem steypt var af stóli fyrir tuttugu árum. 21.12.2009 06:00
Amfetamín er enn framleitt hér á landi Lögreglan hefur upplýsingar um að amfetamín sé framleitt hér á landi. Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir þetta. 21.12.2009 06:00
Minnisblað Ingibjargar Sólrúnar Fréttablaðið birtir hér Forsendur Brussel-viðmiða, minnisblað fyrrverandi utanríkisráðherra, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Minnisblaðið fjallar um Icesave-deiluna og var ritað utanríkismálanefnd 18. desember 2009. 21.12.2009 06:00
Ljósahaf vonar og samstöðu Slys Kveikt var á friðarkertum á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í gærkvöldi til stuðnings Hrafnkatli Kristjánssyni, íþróttafréttamanni Sjónvarpsins og fyrrverandi leikmanns FH. 21.12.2009 06:00
Blysför til friðar haldin á Laugaveginum Íslenskir friðarsinnar efna til blysfarar niður Laugaveginn á Þorláksmessu eins og undanfarna þrjá áratugi. 21.12.2009 05:00
Tólf fangar sendir heim Tólf fangar voru fluttir frá Guantánamo-fangelsinu til síns heima um helgina. Sex karlmenn frá Jemen, fjórir Afganar og tveir Sómalar voru fluttir frá fangelsinu. 21.12.2009 04:00
Aukning í öðru en svínakjöti Sala á kindakjöti jókst um nítján prósent og sala á kjúklingum um fimmtán prósent í nóvember síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra. Nautakjötssala jókst um rúmlega tólf prósent, en sala á svínakjöti dróst saman um átján prósent. Þetta kemur fram í samantekt Landsambands kúabænda.Framleiðsla á kindakjöti dróst á sama tíma saman um tólf prósent og framleiðsla svínakjöts um sautján prósent. Framleiðsla á kjúklingum jókst um 25 prósent, og framleiðsla á nautakjöti jókst um fjórtán prósent. - bj 21.12.2009 03:00
Akranes stendur af sér hrunið Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir næsta ár er jákvæð og var í vikunni samþykkt af bæjarstjórn. Áætlað eiginfjárhlutfall er 45 prósent. Ráðist verður í verklegar framkvæmdir fyrir 120 milljónir. Áætlaðar langtímaskuldir eru um 2,5 milljarðar króna, en áætlað eigið fé 4,2 milljarðar. 21.12.2009 03:00