Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rafknúin og græn framtíð á Vopnafirði Fjárfestingar HB Granda hf. í uppsjávarvinnslu félagsins á Vopnafirði haf numið tæplega fjórum milljörðum króna frá þeim tíma sem liðinn er frá sameiningu fyrirtækisins við Tanga hf. fyrir fimm árum. Senn sér fyrir endann á uppbyggingunni. Á næsta ári verður lokið við byggingu nýrrar fiskmjölsverksmiðju auk þess sem ráðist verður í endurbætur á uppsjávarfrystihúsi. 21.12.2009 01:30
Dauðarefsingum hefur fækkað vestra Undanfarin ár hafa dómstólar í Bandaríkjunum dæmt æ færri fanga til dauða. Jafnframt hefur föngum á dauðadeildum bandarískra fangelsa fækkað. 21.12.2009 01:00
Óttast ekki atgervisflótta Hætta er á að ungt fólk í lækna- og hjúkrunarnámi erlendis snúi síður heim að námi loknu vegna kreppunnar. Þetta segir Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra. Hún óttast þó ekki atgervisflótta. 20.12.2009 18:33
Sýna Hrafnkatli stuðning FH-ingar koma saman í Kaplakrika klukkan átta í kvöld til að sýna Hrafnkatli Kristjánssyni, íþróttafréttamanni á RÚV stuðning. Hann lenti í alvarlegu umferðarslysi á Hafnarfjarðarvegi á föstudag. Tveir létust í slysinu. Hrafnkatli er haldið sofandi í öndunarvél. 20.12.2009 18:15
Samkomulag Íslands og ESB tryggir nauðsynlegan sveigjanleika Samkomulag á milli Íslands og Evrópusambandsins mun tryggja nauðsynlegan sveigjanleika og traustar reglur fyrir atvinnulífið, að mati Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra. 20.12.2009 18:00
Ökuníðingurinn ók á sex bíla Maðurinn sem var handtekinn fyrr í dag eftir að lögregla veitti honum eftirför ók á fjórar bifreiðar áður en hann velti bifreiðinni sem hann ók. Maðurinn hefur ítrekað komið við sögu hjá lögreglu. Hann var í annarlegu ástandi. Tveir lögreglumenn leituðu til slysadeildar eftir eftirförina. 20.12.2009 16:40
Flutningabíll ók allt að 100 niður Allt að 100 létu lífið þegar ökumaður flutningabíls missti stjórn á bifreið sinni í Nígeríu í morgun. Fjölmargir slösuðust. Vegakerfinu í Nígeríu er haldið illa við og því eru umferðarslys afar tíð í landinu. 20.12.2009 16:26
Margir vildu áritun Vigdísar Röð myndaðist í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi þegar Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, og Páll Valsson árituðu í dag ævisögu Vigdísar, Kona verður forseti, eftir þann síðarnefnda. Þau árituðu bókina í eina og hálfa klukkustund. Margir nýttu einnig tækifærið og spjölluðu við Vigdísi um það sem þeim lá á hjarta. 20.12.2009 15:59
Chavez undirbýr herinn undir átök Hugo Chavez, forseti Venesúela, hefur fyrirskipað að reist verði ný herstöð við landmæri Venesúela og Kólumbíu. Grunnt á því góða hefur verið á mill ríkjanna að undanförn og kólumbíski herinn í viðbragðsstöðu. 20.12.2009 15:51
Rændi sjoppu með sprautunál Rán var framið í söluturni við Bústaðaveg eftir hádegi í dag. Unga kona ógnaði starfsstúlku með sprautunál og komst undan með eitthvað að peningum, að sögn varðstjóra. Ekki er vitað hversu há upphæðin er. Að svo stöddu fengust ekki nánari upplýsingar um málið hjá lögreglu. 20.12.2009 14:08
Mikil hætta stafaði af ökumanni á stolnum bíl Ökumaður á stolnum bíl var handtekinn í grennd við verslunarmiðstöðuna Smáralind nú fyrir skömmu. Lögregla veitti manninum eftirför sem ók á móti umferð. Mikil hætta stafaði af manninum, að sögn lögreglu. 20.12.2009 13:49
Víðtækustu skattabreytingar í 20 ár Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir að trúlega hafi skattar á heimili og fyrirtæki aldrei verið hækkaðir jafn mikið í einni lotu líkt og kveðið er á um í skattafrumvörpum ríkisstjórnarinnar. Breytingarnar séu þær mestu í 20 ár. 20.12.2009 13:23
Hannes kemur Ögmundi til varnar Prófessor Hannes Hólmsteinn Gissurarson segir að Kastljóssmenn hafi sýnt ódrengskap þegar þeir skýrðu síðastliðið föstudagskvöld frá því af hverju Ögmundur Jónasson baðst undan viðtali daginn áður. Áður hafa Björn Bjarnason og Tryggvi Þór Herbertsson, flokksbræður Hannesar, tekið upp hanskann fyrir Ögmund og gagnrýnt fréttaflutning Kastljóss. 20.12.2009 13:06
Bíll með hestakerru valt Bíll með hestakerru valt á þjóðveginum milli Bláfjallaafleggjara og Litlu kaffistofunnar skömmu fyrir klukkan tólf í dag. Að sögn vaktstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins virðist slysið ekki hafa verið alvarlegt. Einn var fluttur á slysadeild til skoðunar. 20.12.2009 12:26
Vara við frekari hækkunum á áfengi og tóbak Meirihluti efnahags- og skattanefndar Alþingis varar við frekari gjaldhækkunum á áfengi og tóbaki. Gjöldin eiga að hækka um 10% um næstu áramót. 20.12.2009 12:12
Ekki mikið tjón í Eyjum Stormur er nú á Austfjörðum og við suðausturströndina og hafa bæði Veðurstofan og Vegagerðin sent út viðvörun. Þök hafa fokið af húsum, bæði á Seyðisfirði og Fáskrúðsfirði. Þá hefur verð bálhvasst í Vestmannaeyjum í morgun, skip losnað frá bryggju, og hraðbátur, fiskikör og annað fokið. 20.12.2009 12:04
Björgunarmenn sóttu kindur Björgunarsveitarmenn í Húnavatnssýslu sóttu fyrir helgi kindur upp á hálendið norðvestur af Langjökli en neyddust til að skilja eitt lamb eftir, sem komst undan. 20.12.2009 12:00
Líðan óbreytt Manninum sem lenti í umferðarslysi á Hafnarfjarðarvegi í fyrradag er enn haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Hann hlaut alvarlega höfuðáverka. Líðan mannsins er óbreytt, að sögn vakthafandi læknis. Tveir létu lífið þegar tvær bifreiðar lentu saman. 20.12.2009 10:54
Bréf Ingibjargar upplýsandi og gagnlegt Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að minnisblað Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur til utanríkimálanefndar Alþingis sé bæði upplýsandi og gagnlegt. Það hrófli ekki við málflutningi ríkisstjórnarinnar í Icesave málinu líkt og formaður Framsóknarflokksins hefur haldið fram. 20.12.2009 10:33
Fiskiskip losnaði frá bryggju í Eyjum Bálhvasst er einnig í Vestmannaeyjum og hefur lögreglan þar haft í nógu að snúast í morgun enda vindhviður mælst yfir 40 metrar á sekúndu. Stórt fiskiskip, Kap VE, losnaði frá bryggju að aftan þegar landfestar slitnuðu, hraðbátur fauk af kerru og stóð þversum á götu, vinnupallar hafa fokið, fiskikör eru á ferðinni og þá brotnaði rúða þegar svalahurð fauk upp í íbúðarhúsi. 20.12.2009 10:13
Kalt í Bretlandi Mikil ringulreið var víða í Bretlandi í morgun vegna snjókomu eftir nóttina. Í norður og austur Bretlandi hefur hitastigið farið í mínus sjö stig og var að minnsta kosti 10 sentimetra þykk snjóbreiða á þeim slóðum. 20.12.2009 10:12
Fimm létust í óveðri í Bandaríkjunum Að minnsta kosti fimm létust í óveðri í Bandaríkjunum í gær. Ófært er á stóru svæði í norðausturhluta landsins og þúsundir heimila eru án rafmagns. Stormurinn náði frá Karólínufylki til New England og lét einni finna fyrir sér í Miðríkjunum. Mikið hefur snjóað en víða mælist 60 sentimetra þykkt snjólag. 20.12.2009 10:04
Yfirvofandi hryðjuverkaárás Hryðjuverkaárás, lík þeirri sem gerð var í Mumbai fyrir skömmu, vofir yfir London. Þetta er mat Scotland Yard lögreglunnar sem hefur beðið verslunareigendur í borginni að búast við hinu versta. 20.12.2009 09:52
Þök hafa fokið af húsum á Austfjörðum Stormur er nú á Austfjörðum og við suðausturströndina og hafa bæði Veðurstofan og Vegagerðin sent út viðvörun. Þök hafa fokið af húsum, bæði á Seyðisfirði og Fáskrúðsfirði. 20.12.2009 09:45
Sex stútar teknir í borginni Sex voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Töluverður fjöldi fólks var í miðbæ Reykjavíkur yfir nóttina og var lögreglan kölluð til vegna minniháttar pústra og hávaða í heimahúsum. Ekkert alvarlegt tilvik kom þó inn á borð lögreglu. 20.12.2009 09:30
Þrír fluttir á sjúkrahús eftir árekstur Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir árekstur skammt frá Akureyri á áttunda tímanum í gærkvöldi. Lögregla segir að betur hafi farið en á horfðist og reyndist fólkið ekki alvarlega slasað. 20.12.2009 09:26
Fjarðarheiði ófær Víða um suðaustur- og austurströndina er ekkert ferðaveður og eru vegfarendur beðnir um að leita sér upplýsingar um færð og veður áður en lagt er á stað. Sérstaklega er varað við óveðri á Fjarðarheiði sem er ófær, að fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni. 20.12.2009 09:04
Nýtur stuðnings 60 þingmanna Demókratar í öldungadeild Bandaríkjaþings fullyrða að þeir hafi tryggt stuðnings 60 þingmanna af 100 við frumvarp Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, um nýja heilbrigðislöggjöf. Repúblikanar segja breytinguna of dýra og eru staðráðnir í að koma í veg fyrir að frumvarpið verði að lögum. Atkvæði verða greidd um málið eftir helgi. 20.12.2009 07:30
Einn með allar réttar Einn var með allar tölurnar réttar í Lottóinu í kvöld og fær rúmlega fimm milljónir í vinning. Tveir skiptu bónusvinningnum á mili sín og fær hvor rúmar 105 þúsund krónur í sinn hlut. 19.12.2009 20:07
Þjónusta dregst saman í sveitunum með fólksfækkun Fólksfækkun í dreifbýlinu stuðlar að samdrætti í verslun og þjónustu, sem svo aftur gerir þeim sem eftir sitja enn erfiðara að búa áfram. Þetta segja ung hjón sem létu drauminn rætast um að gerast bændur. 19.12.2009 18:58
Tilfærslan kemur niður á þjónustunni Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, segir rangfærslur í yfirlýsingu félags- og tryggingamálaráðuneytisins sem sendi í dag. Hann segir engan vafa um að áform stjórnvalda um að flytja þjónustu á hjúkrunarheimilum frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og tryggingamálaráðuneytis til komi niður á heilbrigðisþjónustu. 19.12.2009 17:54
Nokkur hundruð á Austurvelli Nokkur hundruð manns komu saman til kröfufundar á Austurvelli í dag. Það voru Hagsmunasamtök heimilanna og samtökin Nýtt Ísland sem blésu til fundarins. 19.12.2009 16:31
Ekkert bitastætt Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, segir að annarri umræðu fjárlaga á Alþingi hafi ekki verið neitt bitastætt fyrir spítalann. Þrátt fyrir það bindi hann enn vonir við að tekið verði tillit til þess mikla gengiskostnaðar sem spítalinn hafi orðið fyrir umfram forsendur fjárlaga þannig að hann verði ekki látinn bera allan þann halla á þessu ári. 19.12.2009 16:05
Pilturinn fundinn Pilturinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í gær er fundinn. Hannfór að heiman síðastliðinn mánudag og hafði ekki sést til hans síðan þá. 19.12.2009 15:51
Nóg að gera í verslunum Nú þegar fimm dagar eru til jóla er mikið að gera hjá verslunarfólki. Fjöldi fólks er á ferð í kuldanum um Laugaveginn og líkt og í fyrra eru útlendingar áberandi. Þá eru margir sem kjósa að versla jólagjafirnar í verslunarmiðstöðunum Smáralind og Kringlunni. 19.12.2009 15:49
Framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins hættir Sigfús Ingi Sigfússon, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra Framsóknarflokksins undanfarin þrjú ár, hefur sagt starfi sínu lausu. Sigfús, sem er borinn og barnfæddur Skagfirðingur, mun í upphafi næsta árs halda á heimaslóðir og taka við starfi verkefnastjóra í atvinnumálum hjá Sveitarfélaginu Skagafirði, að fram kemur á vef flokksins. 19.12.2009 15:29
Valdþreyttur Sjálfstæðisflokkur Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að valdþreytu hafi verið farið að gæta í flokknum fyrir bankahrunið. „Mér fannst vera komin viss valdaþreyta í Sjálfstæðisflokkinn. Það er tilfinning sem var farin að grafa um sig þó nokkuð löngu fyrir hrun,“ segir Bjarni í viðtali í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. 19.12.2009 15:07
Egill Helgason mæti á fund allsherjarnefndar Þingflokkur Hreyfingarinnar vilja að ákveðnir einstaklingar verði kallaðir á fund allsherjarnefndar til að ræða frumvarp um þingmannanefnd sem ætlað er að fjalla skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið. Í þeim hópi eru meðal annars sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason, Þorvaldur Gylfason prófessor í hagfræði og Róbert Spanó settur umboðsmaður Alþingis. 19.12.2009 14:51
Ný ríkisstjórn kynnt í Afganistan Afgönskum þingmönnum var í dag kynntur ráðherralisti Hamid Karzai, forseta Afganistan, yfir nýja ríkisstjórn. Forsetinn var ekki viðstaddur þegar þingmenn fengu listann í sínar hendur. 19.12.2009 14:32
Marta stefnir á 3. sætið Marta Guðjónsdóttir, formaður Varðar fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík og varaborgarfulltrúi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í þriðja sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Marta vill bregðast við vaxandi atvinnuleysi með því að Reykjavíkurborg skapi góð skilyrði fyrir aukinni atvinnuuppbyggingu í borginni, að fram kemur í tilkynningu. 19.12.2009 14:06
„Það hefur greinilega verið hlustað á okkur" Samtök ferðaþjónustunnar fagna því að horfið verði frá því að setja 14% virðisaukaskatt á mat seldan á veitingahúsum og sykraðar vörur. 19.12.2009 14:03
Lagt til að 15 fái ríkisborgararétt Allsherjarnefnd Alþingis hefur lagt til að 15 einstaklingar frá 13 löndum verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur á yfirstandi þingi. Elsti einstaklingurinn er fæddur 1951 og sá yngsti 1993. 19.12.2009 13:13
Of miklar væntingar gerðar til ráðstefnunnar Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, segir að of miklar væntingar hafi verið gerðar í aðdraganda loftslagsráðstefnunnar Kaupmannahöfn. Hún segir niðurstöðuna vonbrigði en um leið ákveðið leiðarljós. 19.12.2009 13:00
Ekkert barn yngra en 6 ára í Öræfum Það er ákveðin viðvörunarmerki fyrir Öræfasveit að þar skuli ekki vera neitt barn yngra en sex ára, segir skólastjóri grunnskóla sveitarinnar. 19.12.2009 12:55
Hælisleitandi fékk hlýjar móttökur Nour Al Azzawi, 19 ára íraski hælisleitandinn sem sendur var til Grikklands í haust kom til landsins í gærkvöld. Hann fékk hlýjar móttökur frá vinum sínum á Leifsstöð og var feginn að vera kominn til Íslands. 19.12.2009 12:36