Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
8 ára stúlka ávarpar mótmælafund Boðað er til mótmælafundar á Austurvelli í dag klukkan þrjú. Sem fyrr er yfirskrift fundarins "Breiðfylking gegn ástandinu". Þetta verður þrettándi mótmælafundurinn í röð og boða forsvarsmenn hans að róðurinn verði hertur til muna á nýju ári. 3.1.2009 10:16
Segir Hamas bera mesta sök á ástandinu á Gaza Bush bandaríkjaforsti telur að Hamasliðar beri mest sök á ástandinu á Gazaströndinni. Þetta kemur fram í handriti að útvarpsávarpi Bush til Bandarísku þjóðarinnar í dag. 3.1.2009 10:04
Staðfestir fjárfestingasamning um álver í Helguvík Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hefur ákveðið að fjárfestingasamningur vegna allt að 260 þúsund tonna álvers í Helguvík verði staðfestur. Þetta kemur fram í grein sem ráðherra ritar í Fréttablaðið í dag. 3.1.2009 10:01
Opið í Tindastóli og Hlíðarfjalli Opið er á skíðasvæðinu í Tindastóli og Hliðarfjalli fyrir norðan til klukkan 16:00 í dag. Á Akureyri var klukkan átta í morgun 0 gráður og logn. Þá hefur snjóað þar síðan klukkan tvö í nótt. Greinilegt er að skíða- og snjóbrettaiðkun fer vel af stað á árinu 2009. 3.1.2009 09:26
Dansóður skemmtistaðagestur sparkaði í andlit annars Afspyrnu rólegt var hjá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu í nótt, aðeins 48 verkefni eru bókuð í dagbók lögreglunnar frá kl. 23:00 í gærkvöldi til 07:00 í morgun. 3.1.2009 09:11
Ráðherra meti sjálfur afsögn Þingmenn Samfylkingarinnar segja úrskurð umboðsmanns Alþingis, sem gerði athugasemdir við skipan Þorsteins Davíðssonar sem héraðsdómara, eðlilegan og búast hafi mátt við honum. 3.1.2009 08:00
Atvinnuleysi minnkaði Atvinnuleysi rafiðnaðarmanna minnkaði í desember, samkvæmt skrá Vinnumálastofnunar. Rafiðnaðarmenn voru þar 62 talsins í þessum mánuði, flestir þeirra tæknifólk og rafvirkjar. Þeim hafði fækkað um níu frá því í nóvember og var fækkunin öll hjá rafvirkjum. 3.1.2009 06:00
Nafn hins látna Maðurinn sem lést eftir árekstur á Ólafsfjarðarvegi á nýársdag hét Árni Steingrímsson. Hann bjó á bænum Ingvörum í Svarfaðardal. Árni, sem var fæddur árið 1943, var ekkjumaður og lætur eftir sig uppkomin börn<strong>. </strong><br /> 3.1.2009 06:00
Forstjóri rekinn eftir samning við Símann „Tal hafði enga aðra leið,“ segir Hermann Jónasson, sem á þriðjudag var fyrirvaralaust vikið úr starfi forstjóra hjá Tali eftir að hafa gengið frá samningi um afnot Tals af farsímakerfi Símans. 3.1.2009 04:00
Allir greiðsluseðlar rafrænir Frá og með áramótum verða allir greiðsluseðlar Íbúðalánsjóðs sendir út með rafrænum hætti. Þetta minnkar pappírsnotkun og sparar peninga auk þess að vera umhverfisvænna. 3.1.2009 03:15
Byssumaðurinn fundinn Maðurinn sem lögreglan leitaði að í gærkvöld og talið var að væri vopnaður er fundinn. Mikill viðbúnaður var í Gerðahverfi í kvöld vegna mannsins og óttaðist lögregla að vegfarendum og íbúum í hverfinu stafaði ógn af honum. Maðurinn var vopnaður að sögn lögreglu. 3.1.2009 00:01
Ætlar ekki að verða formaður Framsóknarflokksins ,,Ég hef mikinn áhuga á þjóðmálum en ég er ekki á leiðinni í pólitík," sagði Eiríkur Tómasson, prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands, aðspurður hvort hann hafi hug á að bjóða sig fram til formennsku í Framsóknarflokknum. Orðrómur hefur verið um hugsanlegt framboð Eiríks, meðal annars á fréttavefnum AMX í dag. ,,Ég er feginn að geta borið þennan orðróm til baka," sagði Eiríkur. 2.1.2009 20:58
Vopnaður maður í Gerðunum Lögreglan er með mikinn viðbúnað í Gerðahverfi í Reykjavík en grunur leikur á að maður vopnaður byssu sé á ferð umhverfið. Liðsmenn sérsveitarinnar og sjúkraflutningamenn hafa verið kallaðir til. 2.1.2009 20:16
Jákvæð fyrir þingkosningum Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar, vill að efnt verði til þingkosninga, ef farið verður í þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi viðræður um Evrópusambandsaðild. Stjórnarsamstarfið veltur á afstöðu Sjálfstæðisflokksins í ESB málum. 2.1.2009 18:32
Mættu með heimatilbúnar reyksprengjur á Hótel Borg Mótmælendur mættu með heimatilbúnar reyksprengjur við Hótel Borg á gamlársdag þegar sem hin árlega Kryddsíld Stöðvar 2 stóð yfir, samkvæmt Herði Jóhannessyni aðstoðaryfirlögregluþjóni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 2.1.2009 18:12
Þrettándi mótmælafundurinn á Austurvelli Raddir fólksins boða til mótmælafundar á Austurvelli á morgun laugardag klukkan 15. Sem fyrr er yfirskrift fundarins ,,Breiðfylking gegn ástandinu." Þetta er 13. laugardaginn í röð sem samtökin halda mótmælafund á Austurvelli. 2.1.2009 21:17
Brenndist illa þegar olíulampi sprakk Kona sem brenndist illa eftir að olíulampi sprakk í höndunum á henni ítrekar fyrir fólki að varlega í kringum slíka lampa. Ingunn Hauksdóttir fékk olílampa í afmælisgjöf nú um jólin. Lampann ætlaði hún svo að nota um síðustu helgi en þá vildi ekki betur til en svo en að hann sprakk í höndunum á henni. 2.1.2009 19:44
Þúsundir mótmæltu á Vesturbakkanum Að minnsta kosti einn lét lífið og fimm særðust í loftárásum Ísraelshers á Gazaströndina í dag. Til átaka kom á Vesturbakkanum þegar þúsundir manna mótmæltu árásum Ísraelsmanna. 2.1.2009 19:10
Ekki hægt að brenna dýrahræ Sérstakur gámur til að brenna dýrahræ er ekki til í landinu og þurfti að urða hræ hrossa sem drápust af skæðri salmonellusýkingu í síðustu viku. Kaup á brennslugámi hafa staðið til í langan tíma. 2.1.2009 18:57
12 milljónir í neyðaraðstoð á Gaza Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að veita rúmum tólf milljónum íslenskra króna til mannúðaraðstoðar „vegna hörmungarástandsins á Gaza," eins og segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. 2.1.2009 16:03
Framboðsfrestur hjá VR framlengdur Kjörstjórn VR hefur ákveðið að framlengja framboðsfrest til formanns, stjórnar og trúnaðarráðs félagsins fram til mánudagins 12. janúar næstkomandi. 2.1.2009 15:33
Vill funda um 40% hækkun á dreifingakostnaði raforku Jón Bjarnason, þingmaður VG í norðvesturkjördæmi, hefur sent fjárlaganefnd bréf og farið fram á fund í nefndinni til að ræða allt að 40% hækkun á dreifingarkostnaði raforku til neytenda frá 1. janúar 2.1.2009 15:14
Viðbúnaður í Jerúsalem af ótta við hefndaraðgerðir Mikill viðbúnaður er í Jerúsalem í dag vegna ótta við hefndaraðgerðir Hamas liða vegna linnulausra loftárása Ísraela á Gasa svæðið sem staðið hafa í heila viku. Hamas samtökin höfðu hvatt Palestínumenn til þess að bregðast við árásunum í dag en til þessa hefur verið tiltölulega rólegt í borginni. 2.1.2009 14:25
VG enn stærsti flokkurinn - ríkisstjórnin sækir í sig veðrið Samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup er Vinstri hreyfingin - Grænt framboð enn stærsti stjórnmálaflokkur landsins en í könnuninni fær hann 29 prósent atkvæða. Samfylkingin fær 28 prósent og Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 25 prósenta fylgi. 2.1.2009 14:12
Íslensk kona myrt af eiginmanni sínum í New York Íslensk kona búsett í Bandaríkjunum, Isol Cotto, var myrt af eiginmanni sínum á gamlársdag á heimili hennar í Marbletown í New York ríki. Maðurinn, William Cotto, sem var lögreglumaður á eftirlaunum, skaut sjálfan sig til bana skömmu eftir ódæðið. 2.1.2009 13:40
Mótmælandi óttast borgarastyrjöld Þrisvar yfir hátíðarnar hefur verið ráðist að húsi við Vesturgötu þar sem Eva Hauksdóttir mótmælandi rekur Nornabúðina. Þetta kemur fram á fréttavefnum Smugunni. Þar er sagt frá því að flösku hafi verið kastað í rúðu í íbúð á sömu hæð og búðin er og hafi ytra gler í rúðunni brotnað. 2.1.2009 13:27
Krafist gæsluvarðhalds yfir 10-11 árásarmanni Krafist verður gæsluvarðhalds yfir karlmanni sem var handtekinn seinni partinn í gær, grunaður um að hafa stungið mann í verslun 10-11 í gærmorgun. 2.1.2009 13:08
Myrká mest selda bók ársins Það kemur væntanlega fáum á óvart en það var Arnaldur Indriðason sem átti mest seldu bók ársins samkvæmt sölulista Pennans/Eymundsson. Myrká trónir á toppnum en í öðru sæti er Þúsund bjartar sólir, eftir Khaleid Hosseini í kiljuformi. 2.1.2009 13:03
Páll gæti orðið vanhæfur vegna starfa í rannsóknarnefndinni Páll Hreinsson hæstaréttardómari gæti orðið vanhæfur í málum sem kunna að koma á borð Hæstaréttar vegna hruns bankanna, hafi málin verið til rannsóknar hjá nefnd sem rannsakar hrun bankanna. Þetta er mat Bjargar Thorarensen, forseta lagadeildar Háskóla Íslands. 2.1.2009 12:23
Halldór Ásgrímsson enn í öndunarvél Halldóri Ásgrímssyni, fyrrverandi forsætisráðherra, er enn haldið sofandi í öndunarvél á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi. Þar hefur hann legið í um tíu daga. Halldór veiktist af lungnabólgu í desember og að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeildinni er ástand hans óbreytt. 2.1.2009 12:00
Áramótunum seinkaði um sekúndu Það var ekki bara hlaupár í fyrra heldur var einni hlaupsekúndu bætt við um áramótin. Það gerðu sérfræðingar í Frakklandi til að jafna klukkur heims við snúning jarðar. 2.1.2009 11:58
Frakkar stöðva sjóræningja Franskt herskip í kom í gær í veg fyrir að sómalskir sjóræningjar næðu flutningaskipi á sitt vald á Adenflóa úti fyrir ströndum Sómalíu. 2.1.2009 11:54
Caracas er morðhöfuðborg heimsins Borgin Caracas í Venesúela hlýtur þann vafasama heiður að vera morðhöfuðborg heimsins samkvæmt nýútkominni bandarískri skýrslu. Á síðasta ári voru að meðaltali framin 130 morð á hverja eitt hundrað þúsund íbúa þar í borg. Bara í síðastliðnum desembermánuði voru framin að minnsta kosti 510 morð. 2.1.2009 11:40
Keflavíkurflugvöllur orðinn að opinberu hlutafélagi Opinbera hlutafélagið Keflavíkurflugvöllur tók til starfa um áramót en í því er sameinuð starfsemi Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Kristján L. Möller samgönguráðherra mun hleypa fyrirtækinu formlega af stokkunum í dag við athöfn með starfsmönnum og stjórn félagsins. 2.1.2009 11:09
Kúba fagnaði fimmtíu ára byltingarafmæli Í gær var liðin hálf öld frá því að Fídel Castro og félagar náðu völdum á Kúbu. Tímamótunum var fagnað með hátíðarhöldum og hélt forseti landsins, Raoul Castro, ræðu á sama stað og bróðir hans Fídel fagnaði sigri byltingarsinna fimmtíu árum fyrr. Í ræðunni spáði Raoul því að byltingin muni vara í önnur fimmtíu ár. 2.1.2009 10:37
Einstakt að enginn farist í sjóslysi Nýliðið ár var einstakt að því leyti að enginn maður lét lífið í sjóslysi á íslenskum skipum. Vegna náinna tengsla við hafið og mikilvægis sjósókna frá upphafi, er jafnvel hægt að leiða að því líkur að 2008 hafi verið fyrsta árið frá landnámi án banaslysa á sjó, segir í tilkynningu frá Siglingastofnun Íslands. 2.1.2009 09:55
Sótt að höfuðborg Tamíl tígra Stjórnarherinn á Sri Lanka hefur ráðist inn í borgina Kilinochi sem í áraraðir hefur verið helsta vígi uppreisnarmanna tamíltígra á eyjunni. Talsmenn stjórnvalda segjast gera ráð fyrir að ná borginni á sitt vald á næstu klukkutímum. 2.1.2009 09:40
Segja gasflutninga til ESB óskerta þrátt fyrir lokun í Úkraínu Rússar fullvissa Evrópusambandslönd um að gasflutningar til landanna muni ekki skerðast þrátt fyrir að lokað verði fyrir gas til Úkraínu. 2.1.2009 08:30
Maður með vatnshöfuð hleypur yfir Bretland Breti sem gengist hefur undir 29 heilaskurðaðgerðir hyggst hlaupa yfir Bretland, frá suðri til norðurs, til að safna peningum handa taugaskurðlækningadeild Walton-sjúkrahússins í Liverpool. 2.1.2009 08:27
Gaf sig fram eftir skotárás í Óðinsvéum Tæplega þrítugur Líbani gaf sig fram við lögreglu í Óðinsvéum í Danmörku í gær vegna skotárásar á tvo Ísraela í verslunarmiðstöð þar í borg á gamlársdag. 2.1.2009 08:22
Þrumuguð velgir innbrotsþjófi undir uggum Innbrotsþjófur í Edinborg í Skotlandi lagði á flótta þegar húsráðandi kom heim af grímudansleik, dulbúinn sem þrumuguðinn Þór. 2.1.2009 08:14
Stunginn til bana í Kaupmannahöfn Tæplega fertugur maður lést af völdum hnífstungu á skemmtistað í Kaupmannahöfn á gamlárskvöld en þar fór fram áramótadansleikur. 2.1.2009 08:12
Skæð innflúensa í Bretlandi Breskir sjúkdómafræðingar vara nú við inflúensunni H1N1 sem engin lyf vinna á og talið er hugsanlegt að muni skjóta sér niður í Bretlandi á næstunni. 2.1.2009 08:09
Grunuð um að bana ungum syni sínum Tæplega þrítug bresk móðir var handtekin í vikunni, grunuð um að hafa orðið tæplega tveggja ára gömlum syni sínum að bana. Miklir áverkar voru á líki drengsins en hann lést skömmu eftir að komið var með hann á sjúkrahús á mánudaginn. 2.1.2009 07:57
Skelfilegt að þurfa að yfirgefa átta manns í snjóflóði Maður sem komst lífs af í snjóflóðinu í kanadísku Klettafjöllunum í síðustu viku segir það hafa verið skelfilega erfiða ákvörðun að skilja átta ferðafélaga sína eftir, grafna undir snjóflóðinu, til að bjarga sínu eigin lífi. 2.1.2009 07:22