Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kosið um lagabreytingu í Framsóknarflokknum í dag Það skýrist í dag hvort formaður Framsóknarflokksins verður kosinn eftir núgildandi lögum flokksins eða nýjum lögum sem samþykkja þarf í dag. Mikil spenna ríkir um formannskjörið og úrslitin gætu orðið tvísýn. Ef kosið verður eftir nýjum lögum þarf formaður að hljóta yfir 50 prósent atkvæða annars vinnur sá sem fær flest atkvæði. 17.1.2009 12:23
Eiga nóg í fjórar til fimm bombur Bandarískur sérfræðingur Selig Harrison hefur verið í Norður-Kóreu síðan á þriðjudag og rætt við háttsetta embættismenn þar í landi. 17.1.2009 11:51
Armstrong hjólar á ný Hjólreiðakeppinn Lance Armstrong hefur keppni á nýjan leik á morgun í vikulangri hjólreiðakeppni í Ástralíu. Á fundi með fréttamönnum í dag kvaðst hann hafa litla möguleika á sigri eftir að hafa setið á rassinum í þrjú og hálft ár og drukkið bjór, eins og hann orðaði það. 17.1.2009 10:18
Víða mótmælt í dag Boðað hefur verið til mótmæla víða um land í dag. Raddir fólksins með Hörð Torfason í fararbroddi boða til mótmælafundar á Austurvelli fimmtánda laugardaginn í röð en yfirskrift þess fundar er sem fyrr: Breiðfylking gegn ástandinu. Fundurinn hefst klukkan þrjú. 17.1.2009 10:11
Fundu fíkniefni á ökumanni Lögreglan stöðvaði ökumann á Vesturlandsvegi við Hvalfjarðargöng um miðnætti í nótt vegna gruns um að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Við nánari eftirgrennslan lögreglu fundust fíkniefni á manninum. Hann var handtekinn en látinn laus aftur að lokinni skýrslutöku. 17.1.2009 10:04
Talibanar banna skólagöngu kvenna Talibanar hafa bannað skólagöngu kvenna í dalnum Swat í norðvesturhluta landsins. Þar ráða þeir lögum og lofum. Bannið við skólagöngu kemur niður á fjörutíu þúsund stúlkun og ungum konum. Talibanar halda því fram að menntun kvenna sé ó-islömsk. 17.1.2009 09:59
Bílvelta í Hrútafirði Bíll valt um 10 kílómetra norðan við gamla Staðarskálann í Hrútafirði um áttaleytið í gærkvöld. Bíllinn rann í hálku, fór út fyrir veginn, fór eina veltu og staðnæmdist á toppnum. Fjórir voru í bílnum, en lögreglan á Blönduósi segir að þeir hafi allir verið í bílbeltum og beltin hafi komið í veg fyrir alvarleg meiðsl á fólkinu. Lögreglan segir að fólkið hafi hlotið minniháttar rispur og að læknir hafi gert að sárum þeirra á staðnum. 17.1.2009 09:57
Formannsefni kynna áherslur sínar í dag Landsfundi Framsóknarflokksins verður framhaldið í Vodafonehöllinni í dag, en landsfundurinn samþykkti með miklum meirihluta atkvæða í gær að Ísland gangi til aðildarviðræðna að Evrópusambandinu. 17.1.2009 09:49
Afþakka heimsókn ísraelsks ráðherra Íslensk stjórnvöld hafa afþakkað komu menntamálaráðherra Ísraels til landsins. Í heimsókninni ætlaði ráðherrann að útskýra málstað Ísraels í stríðinu sem nú stendur yfir á Gaza ströndinni. 17.1.2009 09:28
Vill að sonur sinn taki við Kim Jong-il, leiðtogi Norður-Kóreu, hefur ákveðið að yngsti sonur sinn taki við af sér, að því er fréttastofa í Suður-Kóreu heldur fram. Hins vegar bárust einnig fréttir af því að elsti sonur hans sé tilbúinn að taka við af föður sínum. 17.1.2009 06:45
Voru að útbúa heimatilbúna sprengju Lögreglunni á Suðurnesjum barst klukkan rúmlega hálf sjö í kvöld að sprenging hefði orðið í heimahúsi í Grindavík og að tveir drengir 10 og 17 ára væru slasaðir. Greint var frá spreningunni á Vísi fyrr í kvöld. 16.1.2009 20:56
Vopnahlé hugsanlega undirritað á sunnudaginn Yfirvöld í Ísrael eru farin að hafa orð á því að sókn þeirra á Gaza ströndinni ljúki brátt með vopnahléi. Sagt er að Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels, Mahmoud Abbas forseti Palestínumanna og Hosni Mubarak forseti Egyptalands geti þegar á sunnudag undirritað samkomulag sem yrði grunnur að eins árs vopnahléi á milli Ísraela og Hamas samtakanna. Yfir 1100 Palestínumenn hafa farist í innrás Ísraela á Gaza ströndina. 16.1.2009 20:48
Starfsmönnum við gerð Héðinsfjarðaganga fækkað Óvissa hefur ríkt um framvindu Héðinsfjarðarganga þar sem kostnaður við framkvæmdina hefur stóraukist. Tvö fyrirtæki vinna við gerð gangnanna Háfell og tékkneska verktakafyrirtækið Metrostav. Hið síðarnefnda hefur nú ákveðið að fækka starfsmönnum sínum tímabundið um allt að þriðjung. Þetta kom í ljós eftir fund fyrirtækjanna með fulltrúum Vegagerðarinnar í dag. 16.1.2009 21:09
Sagt upp fyrir að blogga óviðeigandi um mótmælendur Guðmundi Jóhannssyni sveitarstjóra í Eyjafjarðarsveit hefur verið sagt upp störfum eftir átta mánaða starf. Umdeild bloggfærsla, samskiptaörðugleikar og hátternisvandamál Gumundar eru samkvæmt heimildum fréttastofu ástæður þess að sveitarstjórn vék Guðmundi frá störfum í gær. 16.1.2009 18:47
Framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar krefst breytinga Ríkisstjórnin þarf að gera nýjan sáttmála við þjóðina, að mati Skúla Helgasonar framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar. Hann vill breytingar á ráðherraskipan ríkisstjórnarinnar og uppstokkun innan Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins. 16.1.2009 21:37
Hálka og hálkublettir víðsvegar um landið Hálka og hálkublettir eru um land allt. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að þungfært er á Steingrímsfjarðarheiði, stórhríð og ekkert ferðaveður. Ófært er um Klettsháls. Á Vestfjörðum er annars hálka, snjóþekja og éljagangur. 16.1.2009 21:24
Vill að skipuð verði neyðarstjórn „Hættum að berja höfðinu við steininn. Fjölmörgum þjóðum sem komnar hafa verið í þessa stöðu, hafa verið skipaðar neyðarstjórnir. Að vísu „þriðja heims ríkjum“, en það er það sem við erum orðin,“ segir fyrrum borgarfulltrúinn Helgi Pétursson í grein á heimasíðu Samfylkingarinnar. Helgi situr í framkvæmdastjórn flokksins og hann er jafnframt formaður Samfylkingarfélagins í Garðabæ. 16.1.2009 20:42
Fimmtándi mótmælafundur Radda Fólksins Fimmtándi mótmælafundur Radda Fólksins verður haldinn á Austurvelli á morgun og sem fyrr hefjst þau klukkan 15. Ræðumenn verða Svanfríður Anna Lárusdóttir sem er atvinnulaus og Gylfi Magnússon dósent í hagfræði við Háskóla Íslands. Fundarstjórn verður í höndum Harðar Torfasonar. 16.1.2009 20:30
Börn flutt á slysadeild eftir flugeldaslys í Grindavík Tvö börn voru flutt á slysadeild Landspítalans eftir alvarlegt flugeldaslys í heimahúsi Grindavík fyrir stundu. Þetta kemur frá á fréttasíðunni Víkurfréttir. Börnin eru sögð alvarlega slösuð. ,,Ekki var hægt að fá nánari upplýsingar um slysið nú rétt áðan en að sögn sjónarvotta var viðbúnaður sjúkrabílana mikill," segir í frétt Víkurfrétta. 16.1.2009 19:41
Framsóknarmenn vilja aðildarviðræður við ESB Afgreiðslu tillögu um að Ísland eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið er rétt að ljúka á flokksþingi Framsóknarflokksins. Allt lítur út fyrir að tillagan verði samþykkt með meirihluta greiddra atkvæða. Áður hafði tillögu um að þingið hafnaði ályktuninni verið felld. 16.1.2009 19:25
Lík 1800 Þjóðverja finnast í fjöldagröf Fjöldagröf fannst þegar verið var að grafa fyrir hóteli í bænum Malbork í Norður-Póllandi. Í síðari heimsstyrjöldinni hét bærinn Marienburg og tilheyrði Þýskalandi. Í gröfinni eru lík um átjánhundruð Þjóðverja sem týndust í framsókn rússneska hersins í lok stríðsins. Talið er að rússnesku hermennirnir hafi drepið fólkið. Milljónir óbreyttra borgara týndust í stríðinu og ekki er enn vitað um örlög þeirra. 16.1.2009 19:24
Tíu bjargað af flutningaskipi við Noreg Tíu skipverjum var í dag bjargað af flutningaskipi frá Möltu sem strandaði í Harðangursfirði í Noregi. Mikill leki kom að skipinu og þótti vissast að áhöfnin yfirgæfi það. Farþegaskip sem var skammt undan Harðangursfirði heyrði neyðarkall frá maltneska skipinu og kom fljótt á vettvang. Tvö norsk strandgæsluskip og þyrla voru einnig send á vettvang. Maltneska skipið var með timburfarm og ekki talið að það sökkvi í bili. Norska strandgæslan mun reyna að gera við það til bráðabirgða og koma því til hafnar. 16.1.2009 19:14
Íþróttir fyrir alla á Akureyri Átakið Íþróttir fyrir alla fer vel af stað á Akureyri. Verkefnisstjóri átaksins, kunnur handboltakappi, passar börn svo mæður og feður geti stundað jóga áhyggjulaus. 16.1.2009 19:09
Klapparstígsbruni: Slökkviliðsmennirnir telja sig heppna Reykkafarar sem voru hætt komnir þegar eldur kom upp í timburhúsi við Klapparstíg í nótt. Þeir segja heppni og tilviljun hafa ráðið því að þeir urðu ekki eldinum að bráð. 16.1.2009 18:50
Flugstjórinn var síðastur frá borði Flugstjórinn sem nauðlenti farþegaþotu sinni á Hudson fljótinu í New York fór síðastur frá borði eftir að hafa fullvissað sig um að enginn farþegi væri eftir. 16.1.2009 18:39
Samfylkingarfólk segja vinnubrögð Guðlaugs gerræðisleg Stjórn 60 + Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, félags Samfylkingarfólks eldri en 60 ára, mótmælir ákvörðun ráðherra heilbrigðismála Guðlaugs Þórs Þórðarsonar að leggja niður starfsemi St. Jósefsspítala í núverandi mynd. Enn fremur gerir stjórn 60 + alvarlegar athugasemdir við þau gerræðislegu vinnubrögð ráðherra að taka ákvarðanir um veigamikla hagsmuni Hafnfirðinga án samráðs við bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar. 16.1.2009 18:18
ESB-ályktun framsóknarmanna: Niðurstöðu að vænta Búið er að loka fyrir mælendaskrá í umræðum um Evrópumál á flokksþingi Framsóknarflokksins er niðurstöðu að vænta. Skiptar skoðanir eru um tillöguna sem liggur fyrir þinginu sem felur í sér að sækja beri um aðild að Evrópusambandinu. Umræður hófust eftir að Valgerður Sverrisdóttir, fráfarandi formaður, hélt yfirlitsræðu sína eftir hádegi. 16.1.2009 17:46
Vinnuhópur rannsakar siðferði í tengslum við bankahrunið Forsætisnefnd Alþingis gekk nýverið frá skipan þriggja manna í vinnuhóp sem ætlað er að leggja mat á hvort skýringar á falli íslensku bankanna og tengdum efnahagsáföllum megi að einhverju leyti finna í starfsháttum og siðferði. 16.1.2009 17:09
Fjölmargir vilja senda ullarfatnað til breskra eldri borgara Fjölmargir hafa lagt leið sína til Landflutninga í Kjalarvoginum til að koma með íslenskan ullarfatnað fyrir eldri borgara í Bretlandi, en söfnunin stendur yfir til þriðjudagsins 20. janúar. 16.1.2009 16:50
Hæstiréttur hafnar farbannskröfu Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem farbannskröfu yfir karlmanni er hafnað. Maðurinn er á meðal þeirra sem dæmdir voru í Keilufellsmálinu svokallaða þegar hópur Pólverja réðst á samlanda sína í húsi í Keilufelli. Sá sem um ræðir fékk tveggja og hálfs árs fangelsisdóm og vildi saksóknari fá hann dæmdan í farbann uns dómur gengi í Hæstarétti. Héraðsdómur hafnaði þessu og undir það tók Hæstiréttur í dag. 16.1.2009 16:43
Framferði Ísraela á Gaza mótmælt í Háskólabíó Fjölmörg félagasamtök, stjórnmálahreyfingar og fjöldasamtök gangast fyrir mótmælafundi í Háskólabíói á sunnudaginn klukkan 15:00 undir kjörorðinu: Þjóðarsamstaða gegn fjöldamorðunum á Gaza. 16.1.2009 15:58
Rauði kross Íslands fordæmir árásir Ísraela Rauði kross Íslands fordæmir árásir á sjúkrahús og vöruhús Rauða hálfmánans í Gaza í gær sem og ítrekuðum árásum á óbreytta borgara og segir þær stríða gegn alþjóðlegum mannúðarlögum og öllum siðrænum gildum í mannlegu samfélagi. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Rauða krossi Íslands. 16.1.2009 15:56
Hættulegt að rannsaka vettvang Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem rannsakar brunann við Klapparstíg 17 í nótt eru aðstæður erfiðar á vettavangi. Húsið er illa farið og beinlínis hættulegt að vera þar við rannsóknarstörf. 16.1.2009 14:47
Þingmaður ósáttur við aðferð við kvótaúthlutun Karl V. Matthíasson, þingmaður Samfylkingarinnar og nefndarmaður í sjávarútvegsnefnd er afar ósáttur við þá ákvörðun sjávarútvegsráðherra að úthluta auknum kvóta til útgerðanna. Karl segir að mun nærtækara hefði verið að setja þau 30 þúsund tonn af þorski sem ákveðið var að bæta við kvótann í dag á markað. Það hefði skilað meiri tekjum í ríkissjóð auk þess sem atvinna hefði skapast fyrir fjölda manns. 16.1.2009 14:45
Reyndu að afhenda gjafabréf upp á 185 milljónir Hópur fólks safnaðist fyrir utan höfuðstöðvar Glitnis við Kirkjusand fyrir stundu og framdi nokkurskonar gjörning. Skipti hópurinn í lið í knattspyrnu og reyndu að afhenda Birnu Einarsdóttur bankastjóra gjafabréf upp á 185 milljónir króna. „Fámennur hópur,“ segir upplýsingafulltrúi bankans. 16.1.2009 14:07
77 prósent brota voru framin á höfuðborgarsvæðinu 77 prósent allra hegningarlagabrota á landinu í desember voru framin á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í Afbrotatölfræði fyrir desembermánuð sem nú hefur verið birt á vef ríkislögreglustjóra. 16.1.2009 13:56
Setti klút fyrir andlitið og óð inn í logandi húsið Arnar Halldórsson var að koma úr partýi í miðbænum í nótt þegar hann sá logandi húsið við Klapparstíg 17. Hann heyrði öskur og læti rétt áður en hann setti klút fyrir andlit sitt og óð inn í húsið. Arnar aðstoðaði skelfingu lostið fólk við að komast út úr brenanndi íbúð rétt áður en slökkviliðið mætti á staðinn. 16.1.2009 13:43
Stóðu ekki fyrir skemmdum á tækjabúnaði Í frétt sem flutt var í hádegisfréttum Bylgjunnar þann 14. janúar síðastliðinn var ranghermt. Þar var sagt frá söfnun sem hópur fólks hefur boðist til hefja til að greiða fyrir skemmdir sem urðu á tækjabúnaði í Kryddsíldarmótmælunum á gamlársdag. 16.1.2009 13:32
Framsóknarmenn takast á um ESB Flokksþing Framsóknarflokksins hófst í morgun. Í dag verður meðal annars tekist á um Evrópumálin en fyrir liggur tillaga um flokkurinn styðji aðildarviðræður. 16.1.2009 12:17
Reyknesingar virkja tækifærin Virkjun á Vallarheiði hóf starfsemi sína í gær. Þar verður starfsemi fyrir íbúa á Reykjanesi sem leita nýrra tækifæra í atvinnu eða námi. 16.1.2009 12:10
Bush segist hafa fylgt samvisku sinni George Bush fráfarandi Bandaríkjaforseti sagði í kveðjuræðu sinni til bandarísku þjóðarinnar að hann hafi alltaf fylgt sinni bestu samvisku í embættisverkum sínum. 16.1.2009 12:06
Meiri áhrif kvenna hefðu dregið úr kreppunni Félagsmálaráðherra telur að Ísland hefði farið betur út úr kreppunni ef konur hefðu haft meiri áhrif. Hún hallast að því að setja kynjakvóta til að uppfylla ákvæði stjórnarskrár um jafnan rétt kynjanna. 16.1.2009 12:01
Árni lækkar laun Ólafs Ragnars Í framhaldi af úrskurði Kjararáðs sem dagsett var 13. janúar síðastliðið skrifaði forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra Árna M. Mathiesen bréf og óskaði eftir því að laun sín væru lækkuð á sama hátt og laun forsætisráðherra, eins af handhöfum forsetavalds, enda segir í úrskurði Kjararáðs að forseti geti sjálfur óskað eftir slíku við fjármálaráðherra. 16.1.2009 11:35
Þorskkvótinn aukinn um 30 þúsund tonn Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð þar sem hámarksafli í þorski er aukinn um 30 þúsund tonn. 16.1.2009 11:28
Útiloka ekki íkveikju - myndband Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er ekki útilokað að kveikt hafi verið í íbúðarhúsi við Klapparstíg 17 í Reykjavík í nótt. Enn eru eldsupptök þó ókunn og vill lögregla ekki tjá sig um málið að svo stöddu enda er rannsóknin skammt á veg komin. 16.1.2009 11:05