Innlent

Hæstiréttur hafnar farbannskröfu

Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem farbannskröfu yfir karlmanni er hafnað. Maðurinn er á meðal þeirra sem dæmdir voru í Keilufellsmálinu svokallaða þegar hópur Pólverja réðst á samlanda sína í húsi í Keilufelli. Sá sem um ræðir fékk tveggja og hálfs árs fangelsisdóm og vildi saksóknari fá hann dæmdan í farbann uns dómur gengi í Hæstarétti. Héraðsdómur hafnaði þessu og undir það tók Hæstiréttur í dag.

Hinn kærði úrskurður er því staðfestur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×