Fleiri fréttir

Guðjón deilir á samráðsleysi

Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði að hans flokkur myndi greiða bankafrumvarpinu götu inn í nefndir þingsins. Hann bætti því við að hans menn myndu krefjast svara við ýmsum áleitnum spurningum í nefndarvinnunni. Í ræðu sinni á þingi sagði Guðjón að eðlilegt hefði verið að stjórnarandstaðan hefði fengið að koma meira að þeim málum sem nú hafi verið leidd til lykta.

„Sumir bankanna munu standa af sér storminn“

Björgvin G. Sigurðsson tók til máls á Alþingi fyrir stundu og ræddi um frumvarpið sem forstætisráðherra mælti fyrir nokkrum mínútum áður. Þar sagði Björgvin m.a að hann væri sannfærður um að þeim heimildum sem lagðar eru til í frumvarpinu muni ekki þurfa að beita í ölllum tilfellum og sagðist hafa trú á því að sumir bankanna myndu rífa sig í gegnum storminn. Hann sagði að nú horfðum við á fordæmislausar efnahagslegar hamfarir sem riðu yfir heimsbyggðina, og felldi banka tugum saman um allan heim.

Lögregla leitar árásarmanna - Myndir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú tveggja manna sem eru grunaðir um rán og líkamsárás á Laugavegi um hálffjögurleytið aðfaranótt sunnudags. Þá var karl á sjötugsaldri barinn og rændur en árásarmennirnir eru taldir vera á aldrinum 25-30 ára og af erlendu bergi brotnir.

Steingrímur: Efnahagslegar náttúruhamfarir af manna völdum

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir að það sé dapurlegt að grípa þurfi til sérstakra aðgerða með frumvarpi um heimild til fjárveitinga úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði.

Bankarnir þjóðnýttir - Þrot vofir yfir

Fjármálaeftirlitið mun fyrir hönd ríkissins taka að sér rekstur bankanna fari þeir í þrot. Þetta kemur fram í frumvarpi ríkisstjórnarinnar um björgun efnahagslífsins.

Björgunarfrumvarp lagt fram á þingi

Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, setti þingfund fyrir stuttu þar sem lagt var fram frumvarp ríkisstjórnarinnar til bjargar íslensku efnahagslífi.

Atli: Snúa verður af braut græðgi og misréttis

Atli Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, segist vera harmi sleginn yfir atburðum seinustu daga. Hann segir að að snúa verði af braut græðgi og misréttis. Næstu skref verði að taka með samfélagsábyrgð í huga og víkja verður af braut einkavæðingar.

Þorgerður Katrín: Aðgerðin tryggi framtíð Íslendinga

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra segir að boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar séu til þess gerðar að tryggja almannahagsmuni í því gjörningaveðri sem nú stendur yfir. Í viðtali í Alþingishúsinu eftir að Geir Haarde flutti ávarp til þjóðarinnar sagði hún að frumvarpið sem kynnt verður innan tíðar sé lagt fram til þess að tryggja að þær skuldir sem eru að plaga fjármálakerfið færist ekki yfir á ríkið og landsmenn.

Frumvarp til að laga bankakerfið að íslenskum aðstæðum

Ríkisstjórnin mun leggja fram frumvarp um að laga bankakerfið að íslenskum aðstæðum og endurvinna traust á kerfinu. Þetta kom fram í ávarpi forsætisráðherra til þjóðarinnar nú klukkan fimm,. Hann sagði jafnframt að ríkið myndi tryggja atvinnulífinu aðgang að fjármagni og koma í veg fyrir upplausnarástand.

Hæstaréttardómarar fagna rannsókn á Hafskipsmáli

Tveir dómarar Hæstaréttar, þeir Markús Sigurbjörnsson og Gunnlaugur Claessen hvetja Valtý Sigurðsson, ríkissakskóknara til að verða við beiðni um opinbera rannsókn á hafskipsmálinu. Ríkissaksóknari fékk þessa beiðni í síðustu viku frá lögmanninum Ragnari Aðalsteinssyni fyrir hönd fyrrverandi stjórnenda Hafskips með Björgólf Guðmundsson í broddi fylkingar.

Aðstoða vélarvana bát

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst kl. 12:29 tilkynning frá Dagnýju SU 129 um að báturinn væri vélarvana með einn mann um borð fyrir utan Hólmanes í Reyðarfirði, var báturinn þá búinn að leggja út ankeri.

Skilorðsbundinn dómur fyrir að slá mann í andlitið

Karlmaður hefur verið dæmdur í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist að öðrum karli og slegið hann í andlitið við Draugabarinn á Stokkseyri fyrir tæpu ári. Tönn í efri gómi fórnarlambsins brotnaði.

Nokkrir teknir fyrir fíkniefnamisferli á Akureyri

Lögreglan á Akureyri gerði húsleit í tveimur íbúðum á föstudagskvöld og aðfaranótt laugardags. Í annarri íbúðinni fundust tæki og tól til fíkniefnaneyslu auk fíkniefnaleyfa en í hinni var lagt hald á sex grömm af kannabisefnum og þrjú grömm af ætluðu amfetamíni.

Boðað til þingflokksfunda klukkan þrjú

Engar fregnir er enn að hafa af aðgerðum ríkisstjórnarinnar í efnhagsmálum en þingflokksfundir hafa verið boðaðir klukkan þrjú. Þetta fékkst staðfest hjá Alþingi fyrir stundu. Misskilningur varð þess valdandi að í stutta stund sagði Vísir frá því að til stæði að kalla Alþingi saman. Það mun ekki vera rétt.

Sakar Palin um skítkast

Barack Obama hefur sakað Söru Palin um skítkast eftir að hún sagði að hann væri í vinfengi við hryðjuverkamann.

Leigubílsferð JP Morgan manna kostnaðarsöm

Fulltrúar bandaríska fjárfestingarbankans JP Morgan þurftu að greiða hátt í 20 þúsund krónur fyrir leigubílinn sem flutti þá til fundar við ráðherra í nótt. Bíllinn beið mannanna á meðan fundinum stóð.

Atburðir gærkvöldsins og næturinnar í Ráðherrabústaðnum

Ráðherra, bankamenn, fulltrúar lífeyrirsjóðanna og helstu efnhagssérfræðingar þjóðarinnar funduðu stíft í Ráðherrabústaðnum í gærkvöldi og nótt. Meðal þeirra sem komu á fund forsætisráðherra voru sérfræðingar frá bandaríska fjárfestingarbankanum JP Morgan.

Verkalýðshreyfingin teymd á asnaeyrunum

Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, segir verkalýðshreyfinguna hafa verið teymda á asnaeyrnunum í viðræðum við stjórnvöld um lausn efnahagsvandans.

Geir ræddi við Brown í morgun

Geir H. Haarde forsætisráðherra ræddi í morgun við Gordon Brown, starfsbróður sinn í Bretlandi, um þá erfiðu stöðu sem upp er komin á evrópskum fjármálamarkaði, en þar hafa hlutabréf hríðfallið í verði í morgun.

Sakar stjórnvöld og banka um leikbrögð

Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins sakar ríkisstjórnina, Seðlabankann og banka landsins um leikbrögð um helgina og að vaxtaokri og tangarhaldi á íslenskum almenningi verði viðhaldið.

Nefbrotinn á Selfossi

Maður var nefbrotinn þegar ráðist var á hann fyrir utan skemmtistaðinn 800 bar á Selfossi aðfaranótt sunnudags.

Fá Nóbelsverðlaun fyrir að uppgötva skæðar veirur

Tveir franskir vísindamenn sem uppgötvuðu HIV-veiruna og Þjóðverji sem uppgötvaði veiru sem veldur leghálskrabbameini deila Nóbelsverðlaununum í læknisfræði í ár. Frá þessu greindi Nóbelsverðlaunaakademían í dag.

Staðan alvarleg, segir Geir

Geir H. Haarde forsætisráðherra vildi lítið tjá sig eftir ríkisstjórnarfund í Stjórnarráðinu í morgun að öðru leyti en því að ástandið væri alvarlegt

Huga að geðheilbrigði ungs fólks

Áherslur geðheilbrigðisdagsins, sem verður tíunda október, munu einkum beinast að geðheilbrigði ungs fólks, sem sérstök ástæða er til að hlúa að núna þegar kreppir að í efnahagslífinu, eins og segir í tilkynningu frá Geðhjálp.

Reiðhjólaþjófafaraldur í Stafangri

Reiðhjólaþjófnaður í Stafangri í Noregi er að verða að faraldri að sögn lögreglu þar. Að meðaltali hefur verið tilkynnt um milli 50 og 60 stolin hjól hvern mánuð

Bretar mega aka fullir

Breska stjórnin hefur hafnað tillögu heilbrigðisyfirvalda um að leyfilegt áfengismagn í blóði ökumanna verði lækkað úr 80 í 50 milligrömm á hverja 100 millilítra.

Listi yfir látna vikulega vegna fjársvika

Þjóðskrár Bretlands, Skotlands og Wales hyggjast taka upp þá starfsreglu að senda dulkóðaðan lista yfir nöfn og kennitölur þeirra sem deyja í hverri viku til banka og lánastofnana til að fyrirbyggja sviksamlega notkun á nöfnum þeirra og persónueinkennum.

Dönsk börn að jafnaði veik 12 daga á ári

Dönsk börn á aldrinum eins til sex ára eru að jafnaði veik í tólf daga á ári, ef marka má niðurstöður nýrrar rannsóknar heilbrigðisyfirvalda i Óðinsvéum.

Sjá næstu 50 fréttir