Innlent

Lögregla leitar árásarmanna - Myndir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú tveggja manna sem eru grunaðir um rán og líkamsárás á Laugavegi um hálffjögurleytið aðfaranótt sunnudags. Þá var karl á sjötugsaldri barinn og rændur en árásarmennirnir eru taldir vera á aldrinum 25-30 ára og af erlendu bergi brotnir.









Síðar sömu nótt var tösku rænt af konu á þrítugsaldri sem var á gangi við Hverfisgötu. Þar var sömuleiðis um tvo gerendur að ræða en ekki er vitað hvort þeir eru hinir sömu og höfðu fjármuni af fyrrnefndum manni sem ráðist var á á Laugavegi.





Þeir sem búa yfir upplýsingum sem geta varpað ljósi á málið/málin eru beðnir að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1100. Meðfylgjandi eru myndir af mönnunum sem lögreglan leitar að.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×