Verkalýðshreyfingin teymd á asnaeyrunum 6. október 2008 12:00
Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, segir verkalýðshreyfinguna hafa verið teymda á asnaeyrnunum í viðræðum við stjórnvöld um lausn efnahagsvandans. Mikil vinna hafi verið lögð í fundahöld um málið, en nú segist forsætisráðherra vandann leystan án þess að aðilar vinnumarkaðarins séu upplýstir um þá lausn. Fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar hafa verið í viðræðum við stjórnvöld um lausn vandans og einnig við Samtök atvinnulífsins, en atvinnurekendur og fulltrúar launþega hafa verið samstíga. Forseti ASÍ segir tugi funda hafa verið haldna og bakland hreyfingarinnar hafi verið kallað til og í gærkvöldi hafi verið haldinn miðstjórnarfundur til að tryggja að allt væri tilbúið og klárt af þeirra hálfu en á þeim bænum hafi menn verið tilbúnir að taka þátt í að leysa vandann. Þeir hafi hins vegar ekki verið upplýstir um hver vandinn væri en að hann væri gríðarlegur. Grétar segist ekki hafa hugmynd um hvort hægt sé að leysa vandann án samráðs við aðila vinnumarkaðarins því þeim hafi ekki verið gerð grein fyrir vandanum. Aðspurður hvort hann ætti von á að funda með stjórnvöldum í dag sagði Grétar að það þyrfti mikið til til þess að verkalýðshreyfingin fundaði með stjórnvöldum. Hún hafi talið sig vera þátttakendur í aðgerðaáætlun til að leysa vandann en það hafi reynst einhver misskilningur.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira