Innlent

Atburðir gærkvöldsins og næturinnar í Ráðherrabústaðnum

Ráðherra, bankamenn, fulltrúar lífeyrirsjóðanna og helstu efnhagssérfræðingar þjóðarinnar funduðu stíft í Ráðherrabústaðnum í gærkvöldi og nótt. Meðal þeirra sem komu á fund forsætisráðherra voru sérfræðingar frá bandaríska fjárfestingarbankanum JP Morgan.

Fulltrúar vinnumarkaðarins og lífeyrissjóðanna mættu á fund ráðherra ríkistjórnarinnar upp úr klukkan átta í gærkvöldi. Samkvæmt fyrirliggjandi aðgerðaráætlun er gert ráð fyrir því að lífeyrissjóðirnir selji helming eigna sinna erlendis til að flytja fjármagn til landsins.

Fundi lauk um klukkutíma síðar og lá þá engin ákvörðun fyrir. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, sagði eftir fundinn að það væru ekki komin fram nægilega skýr svör frá fjármálastofnunum til þess að lílfeyrissjóðirnir gætu endanlega gert upp sinn hug um hvort þeir væru tilbúnir til að flytja fjármagn hingað til lands.

Fleiri mættu á fund ráðherra, þar á meðal fulltrúar Glitni banka, Ingimundur Friðriksson, seðlabankastjóri og margir helstu efnhagssérfræðingar þjóðarinnar.

Ríkisstórnin kom síðan saman þegar klukkan var slá hálftíu. Einum og hálfum tíma seinna gaf forsætisráðherra sig á tal við blaðamenn. Sagðist hann vera ánægður með framgang viðræðna. „Ég er líka ánægður með það að bankarnir ætla að minnka við sig. Mér sýnist að það sé samstaða almenn um það að þeir þurfi að minnka sín umsvif í útlöndum," sagði Geir. Enn fremur hefði helgin skilað því að menn teldu ekki nauðsynlegt að vera með sérstakan pakka með aðgerðum.

Að þeim orðum sögðum fór forsætisráðherra til fundar við þingflokk sjálfstæðismanna í Alþingishúsinu en þar funduðu þingmenn Samfylkingarinnar einnig með sínum ráðherrum.

Áfram var fundað í ráðherrabústaðnum eftir miðnætti og voru þá mættir fulltrúar frá bandaríska fjárfestingarbankanum JP Morgan. Aðspurður um ráðleggingar JP Morgan sagði Össur að fulltrúar bankans litu málið alvarlegum augum.

Björgvin G. Sigurðsson kom síðastur út. Hann ítrekaði vilja ríkisstjórnarinnar til að eyða óvissunni. Hann sagði stjórnvöld hafa unnið algjörlega sleituslaust unnið að því að eyða henni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×