Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tugir handteknir í mótmælum gegn samkynhneigðum í Rúmeníu Tugir manna voru handteknir í Búkarest í Rúmeníu þar sem þeir reyndu að stöðva réttindagöngu samkynhneigðra í borginni í dag. Um fimm hundruð manna hópur samkynhneigðra gekk um götur borgarinnar og krafðist jafnra réttinda á við gagnkynhneigða í landinu. 9.6.2007 17:23
Í fangelsi fyrir að vera full í vinnunni í háloftunum Dómstóll í Tomsö hefur dæmt fyrrverandi flugfreyju í tveggja mánaða fangelsi fyrir að vera ölvuð í vinnunni. Eftir því sem fram kemur á vef norska blaðsins Aftenposten voru það farþegar í vél rússneska flugfélagsins Aeroflot á leið frá í Rússlandi til Tromsö sem tóku eftir því að ein flugfreyjan var við skál. 9.6.2007 17:03
Bústaðavegur lokaður vegna bílveltu Bústaðavegur er lokaður vegna bílveltu sem varð við Ásgarð á fjórða tímanum. Kona sem var ein í bílnum komst að sjálfsdáðum út úr honum og mun ekki vera alvarlega slösuð. Vegfarendum er bent á að velja aðrar leiðir til aksturs en Bústaðaveginn næstu klukkustundina. 9.6.2007 16:55
Tími til kominn að Kosovo fái sjálfstæði George Bush Bandaríkjaforseti sagði í dag að tími væri kominn til að tryggja Kosovo-héraði sjálfstæði í samræmi við áætlanir Sameinuðu þjóðanna. Þessi orð lét hann falla á blaðamannafundi eftir fund með Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, í Róm í dag. 9.6.2007 16:30
Á adamsklæðunum til stuðnings hjólreiðum Umhverfisverndarsinnar víða um heim köstuðu í dag klæðum og skelltu sér í hjólreiðatúr til þess að taka þátt alþjóðlega nektarhjólreiðadeginum. Með uppátækinu vildi fólkið hvetja fleiri til að hjóla og nýta þannig umhverfisvænan samgöngumáta. 9.6.2007 16:03
Háskólum mismunað eftir rekstrarformi Háskólar á Íslandi sitja ekki við sama borð gagnvart stjórnvöldum því þeim er mismunað fjárhagslega eftir rekstrarformi, sagði Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri sem í dag brautskráði vel á fjórða hundrað kandídata. 9.6.2007 15:41
Yfirheyrslur að hefjast yfir umsátursmanni Lögreglan á Vestfjörðum er að hefja yfirheyrslur yfir karlmanni á sextugsaldri sem handtekinn var í nótt eftir umsátur við hús í Hnífsdal. Eins og fram hefur komið í fréttum í dag er maðurinn grunaður um að hafa skotið í átt að konunni sinni sem flýði út úr íbúð þeirra. 9.6.2007 15:06
Grunnskólar og nemar verðlaunaðir fyrir góða frammistöðu Grandaskóli, Víkurskóli, Öskjuhlíðarskóli, Húsaskóli, Laugarnesskóli og Foldaskóli hlutu í dag hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjavíkurborgar sem veitt voru í fimmta sinn í dag. Þar að auki fengu þrjátíu nemendur nemendaverðlaun ráðsins. 9.6.2007 14:57
Segir virkjanir borga sig upp á 15-16 árum Orkuveita Reykjavíkur segir að virkjanir hennar borgi sig upp á 15 til 16 árum og mótmælir þannig þeirri frétt Fréttablaðsins í dag að virkjanirnar borgi sig ekki upp á 25 árum með raforkusölu til álversins í Helguvík miðað við tíu prósenta arðsemiskröfu borgarinnar. 9.6.2007 14:45
Rússar ítreka andstöðu sína við eldflaugavarnarkerfi Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, ítrekaði í dag varnaðarorð rússneskra stjórnvalda vegna fyrirhugaðs eldflaugavarnarkerfis Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu. Hvatti hann Bandaríkjamenn til að fresta allri uppbyggingu kerfisins til frekari rannsókna, ellegar gæti það flækt alvarlega deiluna við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra. 9.6.2007 14:18
Áttuðu sig ekki á smæð Danmerkur Aganefnd Knattspyrnusambands Evrópu féll á landafræðiprófinu þegar hún ákvað að refsa danska knattspyrnusambandinu fyrir ólætin í leik Dana og Svía á Parken í Kaupmannahaöfn um síðustu helgi. 9.6.2007 13:49
Sex fangar drepnir í árás á búðir Bandaríkjamanna í Írak Sex fangar eru látnir og að minnsta kosti 50 særðir eftir að árás var gerð á fangabúðir Bandaríkjanna í suðurhluta Íraks í dag. Eftir því sem talsmaður Bandaríkarhers greinir frá skutu uppreisnarmenn sprengjum inn í Bucca-búðirnar en þar og í öðrum fangabúðum Bandaríkjamanna nærri Bagdad er 16 þúsund föngum haldið. 9.6.2007 13:22
Óveður herjar á íbúa í austurhluta Ástralíu Fimm eru látnir og tólf skip hafa strandað í miklu óveðri sem gengið hefur yfir austurhluta Ástralíu. Óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka þar sem að minnsta kosti þriggja er saknað eftir óveðrið. 9.6.2007 13:06
Erfiðlega gekk að gefa skipi Eimskips nafn Ekki tókst að mölva kampavínsflöskuna í fyrstu atrennu við skírn á nýju frystiskipi Eimskips í Sundahöfn í gær. Forstjóri Eimskips segir að fall sé fararheill. 9.6.2007 12:45
Hægt að hlusta á Vatnajökul Nú er hægt að fylgjast með hlýnunar jarðar í gegnum símann. Katie Paterson, skoskur listamaður, hefur komið hljóðnema fyrir í vatni við rætur Vatnajökuls. Hún segir loftslagsbreytingar hafa alvarleg áhrif á Vatnajökul en verkefnið vera mest um það hvernig mikilfengleiki jökulsins er að hverfa. 9.6.2007 12:19
Vilja aflétta trúnaði af raforkuverði Meirihluti stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur vill gjarnan aflétta trúnaði af raforkuverði til að koma í veg fyrir ranghugmyndir en fullyrðir að orkusölusamningar vegna Helguvíkurálvers séu þeir hagstæðustu sem fyrirtækið hafi gert. 9.6.2007 12:19
Bush í Róm Bush, Bandaríkjaforseti, kom í Vatíkanið í Róm í morgun til fundar við Benedikt páfa sextánda. Bush mun einnig funda með Prodi, forsætisráðherra Ítalíu. Leynifangelsi og fangaflug verða ekki rædd við Prodi þó réttarhöld tengd séu hafin á Ítalíu. 9.6.2007 12:12
Auglýsingar vegna Coke Zero í bága við siðareglur SÍA Siðanefnd Sambands íslenskra auglýsingastofa hefur komist að þeirri niðurstöðu að auglýsingar í tengslum við herferð Vífifells fyrir gosdrykkinn Coke Zero hafi brotið í bága við siðareglur sambandsins. 9.6.2007 12:08
Gætu átt rétt á allt að einni milljón króna Íslenskar konur sem fengu sílikonfyllingar í brjóst frá framleiðandanum Dow Corporation fyrir árið 1992 eiga rétt á að lámarki um 78 þúsund krónur í bætur. 65 konur hafa lagt fram kröfu um skaðabætur frá fyrirtækinu. 9.6.2007 11:52
Segjast hafa fellt 30 Tígra Talsmenn stjórnarhersins á Srí Lanka segjast hafa fellt að minnsta kosti þrjátíu menn úr liði Tamíltígra í áhlaupi á búðir uppreisnarmannanna á austurhluta eyjarinnar. 9.6.2007 11:50
Grunaður um að hafa skotið í átt að konunni sinni Eiginkona mannsins, sem handtekinn var í húsi í Hnífsdal í nótt eftir umsátur, hlaut áverka á andliti. Hann er grunaður um að hafa skotið að henni. Maðurinn, sem er á sextugsaldri, var mjög ölvaður. 9.6.2007 11:44
Ný ríkisstjórn mun eiga gott samstarf við Alcoa Geir Haarde forsætisráðherra lofar Alcoa að núverandi ríkisstjórn muni eiga jafngott samstarf við fyrirtækið og sú fyrri. Þetta kom fram í erindi forsætisráðherra á opnunarhátíð nýs álvers Fjarðaáls í Reyðarfirði sem er opnað með formlegum hætti í dag. 9.6.2007 11:20
Geimskot gekk snuðrulaust fyrir sig Geimskultunni Atlantis var skotið á loft frá Canaveral-höfða á Flórída í gær. Þetta er fyrsta geimskot Geimferðastofnunar Bandaríkjanna, NASA, á þessu ári. 9.6.2007 11:00
Dauðarefsing afnumin í Rúanda Þjóðþing Rúanda samþykkti í gærkvöld að afnema dauðarefsingu í landinu og taka í staðinn upp lífstíðarfangelsi. Með því er búist við að skriður komist á mál á hendur mönnum sem sakaðir eru um aðild að þjóðarmorðunum í Rúanda árið 1994 þar sem um 800 þúsund manns voru drepnir á um 100 dögum. 9.6.2007 10:44
Segja Tyrki hafa gert árásir á norðurhluta Íraks Írakar segja Tyrki hafa gert ítrekaðar flugskeytaárásir á norðurhluta Íraks í vikunni. Utanríkisráðherra Íraks hefur sent Tyrkjum mótmælabréf vegna þessa. 9.6.2007 10:30
Opnunarhátíð álvers Alcoa í Reyðarfirði Nýtt álver Fjarðaáls í Reyðarfirði verður opnað með formlegum hætti á mikilli hátíð í dag. Opnunarhátíðin hófst nú klukkan tíu í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði 9.6.2007 10:15
Bush til fundar við páfa George Bush Bandaríkjaforseti kom í Vatíkanið í morgun til fundar við Benedikt páfa sextánda. Þetta er fyrsti fundur þeirra. Búist er við að páfi ræði við forsetann um stríðið í Írak og vanda kristinna þar í landi. 9.6.2007 09:52
Putin reiðubúin að deila upplýsingum með bandaríska hernum Vladimir Putin, forseti Rússlands, sagðist í dag tilbúinn að deila upplýsingum úr ratsjárstöð þeirra í Aserbaídsjan með bandaríska hernum. 8.6.2007 22:17
Húðflúraður í beinni Í morgun hófst alþjóðleg Húðflúrhátíð á skemmtistaðnum Grand Rokk. Oddur Ástráðsson úr Íslandi í dag lét húðflúra sig í beinni útsendingu. Honum vafðist ekki tunga um tönn þegar hann tók viðtal á meðan dýrindis málverk var flúrað á handlegg hans. 8.6.2007 20:33
Orkuveitan segir samning við Norðurál mjög hagstæðan Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) sendi í dag frá sér tilkynningu vegna umræðu um raforkuverð til Norðuráls Helguvíkur sf. Í tilkynningunni er fullyrt að mesta framlegðin í starfsemi fyrirtækisins komi frá orkusölu til stóriðju. Einnig er sagt að samningurinn á milli OR og Norðuráls Helguvíkur sf. gefi hærra orkuverð en vanalega og sé mjög hagstæður fyrirtækinu. 8.6.2007 20:02
Paris í fangelsi á ný Dómarinn í máli Parisar Hilton hefur fyrirskipað að hún verði send rakleiðis í fangelsi á ný og skuli dúsa þar allan þann tíma sem hún var dæmd til. Paris brotnaði niður þegar að dómarinn kvað upp úrskurð sinn og grét hástöfum. Hún var síðan leidd í handjárnum út í lögreglubíl og þaðan var hún keyrð í fangelsið á ný. 8.6.2007 19:15
Aukning á sölu nikótínvara í apótekum Greinileg aukning hefur orðið á sölu á nikótíntyggjói hjá apótekum eftir að reykingarbannið tók gildi á veitingastöðum síðustu helgi. Páll Guðmundsson lyfjafræðingur hjá Lyf og heilsu segir talsverða aukningu hafa orðið í sölu á nikótíntyggjóum og munnstykkjum. 8.6.2007 19:14
Kostnaður LSH vegna starfsmannaleiga tvöfaldaðist Sú upphæð sem Landsspítali Háskólasjúkrahús greiddi starfsmannaleigum vegna hjúkrunarfræðinga tvöfaldaðist á milli áranna 2005 og 2006. Formaður félags íslenskra hjúkrunarfræðinga telur starfsmannaleigurnar komnar til að vera, en forráðamenn Landsspítalans stefna í þveröfuga átt. 8.6.2007 19:03
Sorg og sársauki eftir mikið brunaslys Sautján ára gamall Hafnfirðingur sem fékk þriðja stigs bruna á 60 prósent líkamans eftir sjóðandi sturtu, segist vonast til að tilfelli eins og hans verði til að bjarga öðrum frá því sama. Ár er liðið frá slysinu og hann segir sorgina og sársaukann hafa verið óbærilegan. 8.6.2007 18:56
Mestu fólksflutningar á Íslandi frá Vestmannaeyjagosi Framundan eru einir mestu fólksflutningar á Íslandi frá því í Vestmannaeyjagosinu árið 1973 þegar fólk tekur að streyma úr Reyðarfirði og frá Kárahnjúkum. Álverið eystra verður tekið formlega í notkun á morgun. 8.6.2007 18:45
Ódýrustu sumarhúsin kosta tæpar fjörtíu milljónir króna Sumarhúsabyggð þar sem ódýrustu húsin kosta rúmlega fjörutíu milljónir króna og hægt er að lenda einkaflugvél nánast á hlaðinu er að rísa í Þykkvabænum. 8.6.2007 18:43
Lögreglurannsóknar krafist á Goldfinger Bæjarráð Kópavogs skorar á félagsmálaráðuneytið að rannsaka hvort brotin hafi verið lög um ferðafrelsi og atvinnuréttindi í tengslum við rekstur næturklúbbsins Goldfinger. Einnig er skorað á lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu að rannsaka hvort lögreglusamþykkt hafi verið brotin. 8.6.2007 18:42
65 íslenskar konur vilja bætur vegna sílikonbrjósta 65 íslenskar konur sem fengu sílikonfyllingar í brjóst á árinu 1992 eða fyrr hafa lagt fram kröfu um skaðabætur á hendur fyrirtækinu sem framleiddi þær. 8.6.2007 18:16
Hægt að hlusta á Vatnajökul bráðna í símanum Nú getur maður fylgst með gangi hlýnunar jarðar í símanum sínum. Skoskur listamaður hefur komið hljóðnema fyrir í vatni við rætur Vatnajökuls. 8.6.2007 18:16
Ingibjörg Sólrún á fundi utanríkisráðherra Norðurlanda Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, sat í dag fund utanríkisráðherra Norðurlandanna í Helsinki, en Finnar gegna formennsku í norrænu ráðherranefndinni um þessar mundir 8.6.2007 18:06
Færeyingar hvattir til að hætta þorskveiðum Alþjóða hafrannsóknarráðið (ICES) leggur til að hætt verði veiðum á þorski á færeyska landgrunninu og að færeyska fiskidagakerfið verði endurskoðað á komandi ári. Ráðið telur hrygningarstofn þorsksins svo lítinn að ekki sé vitað hvað verður ef veiðar halda áfram. 8.6.2007 17:38
Cheney hjá lækni Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, fór í reglulega hjartaskoðun í morgun, samkvæmt heimildum Reuters fréttastofunnar. Cheney er 66 ára gamall. Hann hefur fjórum sinnum fengið hjartaáfall og fékk gangráð ígræddan fyrir sex árum. 8.6.2007 16:54
Danstilskipun til að draga úr offitu Kínverska menntamálaráðuneytið hefur upplýst að það hyggist láta skólabörn landsins læra að dansa, til þess að draga úr offitu. Gagnfræðaskólakrökkum verður til dæmis skipað að læra vals. Kínverjar hafa alltaf stært sig af því að vera grennri en vesturlandabúar. Það hefur hinsvegar breyst með aukinni velmegun og vestrænum skyndbitastöðum. 8.6.2007 16:42
76,6% vilja verðupplýsingar á vefsíðum olíufélaganna Rúmlega 76% landsmanna telja mikilvægt að olíufélög birti verðupplýsingar á vefsíðum sínum. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir FÍB í lok maí og byrjun júní. 11,6% töldu verðbirtingarnar lítilvægar og 11,6% svöruðu hvorki né. 8.6.2007 16:39
Paris Hilton komin í Metropolitan dómshúsið Paris Hilton er nú komin á fund Michael Sauer dómara í Metropolitan dómshúsinu. Þangað var hún flutt handjárnuð í lögreglufylgd. Hundruðir paparassa biðu stjörnunnar þegar hún renndi í hlaðið. 8.6.2007 16:26
Óboðlegt að vera „friðardúfur“ í kosningabaráttu og horfa síðan þögul á „hryllingsmynd í beinni“ Innlent