Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Söfnun lokið á Patreksfirði "Við dæmum þetta sem svo að þetta sé komið, það vantar einhverja örfáa þúsundkalla upp á," segir Geir Gestsson sem efndi til samskota á Patreksfirði til að fjármagna sendi til að ná útsendingum Skjás eins. Vesturbyggð lögðu 200 þúsund krónur til í söfnunina og var þá nærri því búið að safna þeim 900 þúsund krónum sem stefnt var að. 19.8.2004 00:01
Stórar sprengingar í Najaf Að minnsta tíu stórar sprengingar urðu í írösku borginni Najaf í gærkvöld, stuttu eftir að Ayad Allawi, forsætisráðherra Íraks, sendi sjíaklerknum Muqtada al-Sadr lokaákall um að afvopnast. 19.8.2004 00:01
Bæjarstjóri neitar sjónhverfingum Bæjarstjóri Seltjarnarness frábiður sér ásakanir um sjónhverfingar við kynningu á nýju skipulagi á Seltjarnarnesi. Andstæðingar íbúðablokka segja of lítið gert úr þeim á kynningarmyndum. 19.8.2004 00:01
Götumynd Aðalstrætis gjörbreytt Götumynd Aðalstrætis, elstu götunnar í Reykjavík, er gjörbreytt og nýja hótelið þar er að taka á sig mynd. Fréttamaður Stöðvar kynnti sér framkvæmdirnar í dag, meðal annars í kjallara hússins þar sem talið er að rústir landnámsbæjar Ingólfs Arnarsonar sé að finna. 19.8.2004 00:01
Ráðstefna um málefni daufblindra Félagsleg einangrun er eitt erfiðasta vandamálið sem daufblindir eiga við að stríða. Norræn ráðstefna um málefni þeirra er nú haldin í Reykjavík. 19.8.2004 00:01
Ráðstefna um heilsuhagfræði Alþjóðleg ráðstefna um heilsuahagfræði mun fara fram í Reykjavík dagana 20. og 21. ágúst þar sem á annað hundrað vísindamanna frá fjölda þjóða kynna nýjustu rannsóknir sínar á þessu sviði. 19.8.2004 00:01
5. sæti í samkeppnishæfni Ísland er í fimmta sæti yfir samkeppnishæfustu ríki veraldar á nýjum lista svissnesku rannsóknarstofnunarinnar IMD sem kynntur var í gær. Ofar eru Bandaríkin, Singapúr, Kanada og Ástralía. Ísland er raunar samkeppnishæfasta ríki Evrópu samkvæmt listanum. 18.8.2004 00:01
Mikil spenna í Najaf Mikil spenna ríkir í Najaf í Írak eftir að harðlínuklerkurinn Muqtada al Sadr neitaði að eiga fund með sendinefnd írakskra stjórnmála- og trúarleiðtoga í gær. 18.8.2004 00:01
Ekki inn fyrir lögsögu Norðmanna Íslensku skipin þrjú sem eru við síldveiðar á Svalbarðasvæðinu fara ekki inn fyrir lögsögu Norðmanna á nýjan leik fyrr en skýr skilaboð þess efnis berast frá útgerðarfélögum. Þetta segir Markús Jóhannesson, fyrsti stýrimaður á Vilhelm Þorsteinssyni EA, eins skipanna þriggja. 18.8.2004 00:01
Olíuverð nær enn hámarki Olíuverð náði enn á ný nýju hámarki í gær þegar verð á hráolíufati náði fjörutíu og sjö dollurum. Ástæða hækkunarinnar er sú að hátt eldsneytisverð hefur ekki enn haft áhrif á efnahagslíf í Bandaríkjunum og því telja sérfræðingar að eldsneytisþörf þar muni ekki minnka með þeim afleiðingum að verð lækki. 18.8.2004 00:01
Hjón villtust á Fimmvörðuhálsi Björgunarsveitir á Suðurlandi voru sendar af stað í gærkvöld eftir að neyðarlínunni barst símtal frá þýskum hjónum sem óskuðu aðstoðar upp á Fimmvörðuhálsi. Þau sögðust villt sökum mikillar þoku á Hálsinum og óskuðu aðstoðar við að komast í öruggt skjól. 18.8.2004 00:01
Fimm fórust í Gasa-borg Fimm fórust í árás Ísraelshers í Gasa-borg snemma í morgun. Árásin var gerð á svæði þar sem íslamskir öfgamenn eiga sér bakland og eru þeir sem féllu sagðir hryðjuverkamenn. Að auki liggja sjö alvarlega slasaðir á sjúkrahúsi. 18.8.2004 00:01
Skorað á Halldór að þyrma Siv Stjórn fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði hefur skorað á formann Framsóknarflokksins og þingflokk framsóknarmanna að taka tillit til þess að oddviti framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi hafi flest atkvæði á bak við sig af þingmönnum flokksins, þegar gerðar verða breytingar á ráðherraliði flokksins þann 15. september næstkomandi. 18.8.2004 00:01
Hryðjuverkamenn fyrir dóm Átta hryðjuverkamenn, sem lögreglan í Bretlandi hefur haft í haldi í tvær vikur og voru í gær ákærðir fyrir að eiga aðild að morðum, koma fyrir dóm í dag. Þrír mannanna eru einnig ákærðir fyrir að hafa undir höndum gögn sem tengjast fyrirætluðum hryðjuverkum á fjármálafyrirtæki í New York, Washington og New Jersey. 18.8.2004 00:01
Ísland - Ítalía í kvöld Í dag, 18. ágúst, er 218 ára afmæli Reykjavíkurborgar. Stefnt er að því að fylla Laugardalsvöll í tilefni dagsins en landslið Ítala sækir okkar menn heim í kvöld. 18.8.2004 00:01
Tilræði við Blair og Berlusconi? Lögreglan á Ítalíu aftengdi í morgun sprengju nálægt sumarhúsi Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu. Aðeins fáeinum klukkustundum áður hafði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, yfirgefið sumarhúsið en hann var þar í heimsókn ásamt konu sinni, Cherrie. 18.8.2004 00:01
Magnús hlýtur lýðheilsuverðlaunin Magnús Scheving hlýtur Norrænu lýðheilsuverðlaunin í ár en þau eru veitt einstaklingi, samtökum eða stofnun sem hafa lagt fram mikilvægan skerf til að bæta lýðheilsu á Norðurlöndum. 18.8.2004 00:01
Handteknir vegna fylgis við páfa Átta rómversk-kaþólskir prestar hafa verið handteknir í Kína. Handtökurnar eru hluti herferðar kínverskra stjórnvalda gegn þeim sem hliðhollir eru páfa en Kínverjar rufu öll tengsl við Páfagarð árið 1950 og hafa síðan bannað aðrar kaþólskar kirkjur en þá sem stjórnvöld komu sjálf á fót. 18.8.2004 00:01
Fá nokkurra klukkustunda frest Varnarmálaráðherra Íraks segir skæruliða harðlínuklerksins Muqtada al-Sadrs hafa nokkurra klukkustunda frest til þess að leggja niður vopn og gefast upp. Að öðrum kosti megi þeir eiga von á ærlegri ráðningu. Ráðherrann segir að hersveitir yfirvalda og Bandaríkjahers séu reiðubúnar að láta til skarar skríða gegn skæruliðasveitunum. 18.8.2004 00:01
Vopn notuð í fíkniefnaviðskiptum Vopnabúr sem lögregla í Hafnarfirði og Reykjavík fann við húsleit í fyrrinótt var notað sem greiðsla í fíkniefnaviðskiptum. 18.8.2004 00:01
Olíuverð aldrei hærra Metverð fékkst fyrir olíufatið í gær, fjörutíu og sjö dollarar. Sérfræðingar sjá engin teikn um verðhjöðnun á næstunni og víða um heim er stefnt að neyðaraðgerðum til að draga úr eldsneytisnotkun. 18.8.2004 00:01
Konan á gjörgæsludeild Kona á sjötugsaldri, sem var í fólksbíl sem lenti í hörðum árekstri við jeppa við Kotströnd á Suðurlandsvegi um Verslunarmannahelgina, er enn á gjörgæsludeild en er komin úr öndunarvél. Karlmaður á sama aldri, sem einnig var í fólksbílnum, hefur hins vegar verið útskrifaður af sjúkrahúsi. Hann var einnig í öndunarvél fyrst eftir slysið. 18.8.2004 00:01
Árni víki úr ríkisstjórn Formaður fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði segir að Árni Magnússon eigi að víkja þegar ráðherrum Framsóknarflokksins verður fækkað um einn þann fimmtánda september. Sjálfur segir Árni að ákvörðunin sé þingflokksins og hann muni hlíta henni þegar þar að kemur. 18.8.2004 00:01
Fólksfjölgun næstu áratugi Fólksfjölgun er spáð um allan heim næstu áratugi nema í Evrópu. Ísland er þó undantekning hér á landi er gert ráð fyrir fjölgun um tuttugu og tvö prósent. 18.8.2004 00:01
Skólasókn 16 ára aldrei betri Skólasókn 16 ára ungmenna hefur aldrei verið betri hér á landi en á síðasta ári. Heldur fleiri stúlkur en drengir eru í skóla og er munurinn mestur á Austurlandi. 18.8.2004 00:01
Friðarumleitanir út um þúfur Harðir bardagar geisa í hinni helgu borg Najaf. Friðarumleitanir fóru út um þúfur þegar klerkurinn Muqtada al-Sadr neitaði að hitta friðarsendinefnd í gær. Varnarmálaráðherra Íraks hótar harkalegum viðbrögðum, gefist uppreisnarmenn í borginni ekki upp innan nokkurra stunda. 18.8.2004 00:01
Tíundi hver lögreglumaður er kona Nærri einn af hverjum tíu lögreglumönnum er kona og hefur hlutfall lögreglumenntaðra kvenna aukist verulega undanfarin ár. Fyrir sjö árum, eða árið 1997, var hlutfall lögreglumenntaðra kvenna 4,3%, en í upphafi síðasta árs voru 75 konur starfandi í lögreglunni á móti 728 körlum, eða 9,3%. 18.8.2004 00:01
Lítil áhrif á síldarvertíðina Brotthvarf íslenskra skipa af Svalbarðasvæðinu hefur lítil áhrif á síldarvertíðina í ár því síldin er á leið inn í efnahagslögsögu Norðmanna, þar sem þeir sjálfir veiða hana. Markmið þeirra með aðgerðum sínum undanfarið er því ekki að vernda síldarstofninn, segir framkvæmdastjóri LÍÚ. 18.8.2004 00:01
Leita að rúbínum á Grænlandi Kanadískt námufélag hóf nýlega leit að rúbínum á svæðinu við Qeqertarsuatsiaat á Grænlandi. Miklar vonir eru bundnar við verkefnið eftir því sem sagt er frá í grænlenska útvarpinu KNR. 18.8.2004 00:01
Auðveldara að skipta um kennitölu Norrænu samstarfsráðherrarnir ákváðu á fundi sínum, sem haldinn var á Íslandi í síðustu viku, að endurskoða norræna samninginn um þjóðskrá. Markmiðið með endurskoðuninni er það að koma á samstarfi um rafræn skipti á upplýsingum úr þjóðskrá, þannig að auðveldara verði fyrir Norðurlandabúa að fá nýja kennitölu þegar þeir flytjast á milli Norðurlandanna. 18.8.2004 00:01
Tvær milljónir í bætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag útgerðarfélagið Vísi til að greiða manni sem slasaðist við löndum úr skipi félagsins tæpar tvær milljónir króna í bætur. Slysið varð í Grindavíkurhöfn árið 1999 og meiddist maðurinn á hendi. 18.8.2004 00:01
Sadr gengst við kröfum stjórnvalda Sjíta klerkurinn Múktada al-Sadr hefur ákveðið að gangast við kröfum stjórnvalda í Írak um að enda uppreisnarástand í borginni Najaf. Bréf frá skrifstofum al-Sadr í Bagdad, var lesið upphátt á ráðstefnu þar í borg þar sem valið verður þjóðarráð Íraka. Þar sagði að hann hefði ákveðið að yfirgefa Imam Ali Moskuna sem hefur verið hersetin í lengri tíma. 18.8.2004 00:01
Náðar 500 fanga Forseti afríkuríkisins Togo hefur náðað 500 fanga til að standa við gefin loforð um bætt mannréttindi í landinu. Togo er fyrrum frönsk nýlenda og eru íbúar um fimm milljónir. Af þeim voru 3200 í fangelsi, nú 2700. 18.8.2004 00:01
Aðsóknarmetið verður slegið Aðsóknarmetið að knattspyrnuleik á Íslandi verður slegið í kvöld, það er ljóst. Nú þegar er búið að selja vel yfir 18000 miða á vináttulandsleik Íslands og Ítalíu á Laugardalsvelli, en fyrra met var sett í Evrópuleik Vals og portúgalska liðsins Benfica, en þá voru rétt um 18000 manns á vellinum og setið og staðið alls staðar sem hægt var að drepa niður fæti. 18.8.2004 00:01
Hjólastólar á Menninganótt Sérstaklega verður hugað að aðgengi fyrir fatlaða og hreyfihamlaða á Menningarnótt Reykjavíkur um næstu helgi með því að lána þeim sem þurfa, hjólastóla. Höfuðborgarstofa og Eirberg ehf hafa náð samkomulagi þess efnis. 18.8.2004 00:01
Frakki grunaður um hryðjuverk Pólska lögreglan hefur handtekið Frakka sem grunaður er um að hafa verið að skipuleggja meiriháttar hryðjuverk. Saksóknari í borginni Poznan í vesturhluta landsins greindi frá þessu í dag. 18.8.2004 00:01
Styrktarreikningur fyrir börn Sri Söfnun er hafin til styrktar börnun Sri Rhamawati sem myrt var af barnsföður sínum og fyrrverandi sambýlismanni í byrjun júlí. Sem kunnugt er, lætur Sri eftir sig þrjú börn, sem dveljast nú hjá móðursystur sinni. 18.8.2004 00:01
Heimildarmynd um heri Tveir sjónvarpsmenn frá danska hernum hafa verið hér á landi undanfarna daga við tökur á heimildamynd um heri á Norðurlöndum. Þeir hafa m.a. heimsótt Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli, dómsmálaráðuneytið, utanríkisráðuneytið og Landhelgisgæsluna. 18.8.2004 00:01
Fálkinn styrkir fálka Þjónustu- og tæknifyrirtækið Fálkinn ætlar að veita tveimur og hálfri milljón króna til styrktar villtum dýrum í hremmingum. Þetta er gert í tilefni af aldarafmæli fyrirtækisins. Samningur milli fyrirtækisins og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins var undirritaður laust fyrir klukkan fimm og verður komið upp aðstöðu til þjálfunar og fleira í því skyni.. 18.8.2004 00:01
Uppfærslan boðin innanlands Risastór hugbúnaðarviðbót við Windows XP stýrikerfið verður boðin sem innanlandsniðurhal. Viðbótin bætir öryggi stýrikerfisins og virkni Internet Explorer vafrans þannig að notendur geta slökkt á auglýsingagluggum. Þá er að ljúka íslenskun á uppfærslunni, en henni má hlaða niður síðar. 18.8.2004 00:01
Ráðherramálið flokknum erfitt Hópur kvenna í Framsóknarflokki þrýstir mjög á að hlutur kvenna í ráðherraliði flokksins verði ekki skertur. Vísað er í lög flokksins sem kveða á um 40 prósenta hlutfall kvenna. Formaðurinn hefur rætt við þingmenn flokksins og ákvörðunar að vænta fljótlega. 18.8.2004 00:01
Hyggst beita Impregilo dagsektum Staðfest hefur verið að ennþá er tvímennt í svefnskálum ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo þrátt fyrir að herbergisstærð sé undir 8 fermetrum. Slíkt er skýlaust brot á reglugerðum og hyggst Heilbrigðisnefnd Austurlands leggja á sektir ef úrbætur verða ekki gerðar fljótlega. 18.8.2004 00:01
Milljarða verðmæti í húfi Íslensk stjórnvöld undirbúa nú málaferli á hendur norskum stjórnvöldum vegna yfirstandandi deilu þjóðanna um aðgang og fiskveiðirétt innan lögsögu Svalbarða. Núverandi deila snýst þó fyrst og fremst um aðgang íslenskra skipa að svæðinu og telja Íslendingar að Norðmenn brjóti þann stofnsamning sem gerður var um Svalbarða árið 1920. 18.8.2004 00:01
Skriða í Skotlandi Nokkrir bílar í Skotlandi hafa skolast af vegi í flóðbylgju. Allt að 20 bílar eru fastir í skriðu á svipuðum stað. Tvær þyrlur eru komnar á staðinn en miklar rigningar í Skotlandi virðast hafa hrundið skriðunni af stað. Ekki virðast þó hafa orðið nein dauðsföll í hamförunum. 18.8.2004 00:01
Engir demantar í Eyjum Sigurður Steinþórsson prófessor í jarðfræði í Háskóla Íslands segir að fréttir um demantafund í Vestmannaeyjum séu sennilega grín. "Vestmannaeyingar eru svo gamansamir," segir hann. 18.8.2004 00:01