Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum Kolbeinn Kristinsson skrifar 24. júlí 2026 22:10 Óskar Borgþórsson var á skotskónum í kvöld. vísir/diego Víkingur vann stórsigur á Keflavík, 5-1, á Víkingsvelli í 16. umferð Bestu deildar karla. Karl Friðleifur Gunnarsson, Stígur Diljan Þórðarson, Óskar Borgþórsson, Tarik Ibrahimagic og Ármann Ingi Finnbogason skoruðu mörk Víkinga en Þorlákur Breki Þ. Baxter minnkaði muninn fyrir Keflavík. Víkingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og brutu ísinn strax á fimmtu mínútu. Karl Friðleifur Gunnarsson keyrði þá inn á hægra vítateigshornið og skoraði með laglegu vinstrifótarskoti í fjærhornið. Markið var hans þriðja í deildinni á tímabilinu. Heimamenn héldu áfram að ógna og tvöfölduðu forystuna á 16. mínútu. Markið var keimlíkt því fyrsta, en í þetta sinn var það Stígur Diljan Þórðarson sem keyrði inn á vítateiginn vinstra megin og kláraði virkilega vel með hægri fæti út við stöngina í fjærhorninu. Víkingar höfðu því náð þægilegri tveggja marka forystu snemma leiks og fóru með hana inn í hálfleikinn. Keflvíkingar vöknuðu en Víkingar gerðu út um leikinn Keflvíkingar fengu óskabyrjun á síðari hálfleik og minnkuðu muninn strax á 46. mínútu. Oliver Ekroth missti boltann klaufalega í vörn Víkinga og Þorlákur Breki Þ. Baxter nýtti sér mistökin. Hann skoraði með góðu vinstrifótarskoti sem Aron Snær Friðriksson kom við án þess að ná að verja. Víkingar létu markið ekki slá sig út af laginu og náðu aftur tveggja marka forskoti á 66. mínútu. Heimamenn sýndu þolinmæði í sóknaruppbyggingunni áður en Ásgeir Orri varði boltann út í vítateiginn. Þar var Óskar Borgþórsson fljótur að átta sig og skoraði sitt níunda mark í deildinni. Tarik Ibrahimagic innsiglaði síðan sigur Víkinga á 81. mínútu. Hann lét vaða fyrir utan vítateig og boltinn hafnaði alveg út við stöng. Ármann Ingi Finnbogason bætti svo fimmta marki Íslandsmeistaranna við í uppbótartíma. Eftir mikið bras í vörn Keflvíkinga barst boltinn til Ármanns Inga sem gat vart annað en skorað. Víkingar fögnuðu því afar sannfærandi 5-1 sigri og tóku stigin þrjú á Víkingsvelli. Atvik leiksins Mörkin tvö hjá Víkingi í fyrri hálfleik. Karl Friðleifur og Stígur Diljan voru báðir með stórgóð skot og komu sínu liði í kjörstöðu snemma leiks. Forskot sem Víkingur lét aldrei af hendi. Stjörnur og skúrkar Karl Friðleifur var beittur með sín hlaup upp kantinn og skoraði vitanlega gott mark í fyrri hálfleiknum. Stígur Diljan fær sömuleiðis hrós fyrir sitt mark og innkomu í liðið í kvöld. Helgi Guðjóns skilaði sínu og þá er Gylfi konungur í ríki sínu á miðsvæðinu. Frábært Víkingslið í kvöld heilt yfir og almennt. Hjá Keflavík fær Ásgeir Orri í markinu klárlega útnefningu fyrir að grípa vel inn í oft og tíðum. Sigur Víkings hefði orðið enn stærri ef hans krafta nyti ekki við. Þorlákur Breki skoraði gott mark og barðist eins og ljón í leiknum sömuleiðis. Alpha Conte átti nokkra spretti en komst samt sem áður ekki mikið áleiðis. Oliver Ekroth fær skúrkinn fyrir að missa boltann klaufalega en í kjölfarið minnkaði Keflavík muninn strax í upphafi síðari hálfleiks sem gerði dagsverkið eilítið erfiðara á tímabili. Dómarinn Leikurinn var fagmannlega dæmdur af Gunnari Oddi og hans teymi. Leikur sem fékk heilt yfir að fljóta vel og stóru ákvarðanirnar voru eftir bókinni. Einkunn átta sléttir. Stemning og umgjörð Það var hugguleg föstudagsstemning á Víkingsvelli. Veðrið var milt, sólin skein og umgjörðin vitanlega öll eins og best verður á kosið. Stúkan var ekki þétt setin en þeim mun fleiri fylgdust með á öðrum miðlum, væntanlega. Besta deild karla Víkingur Reykjavík Keflavík ÍF Íslenski boltinn