Uppgjörið: KA - Stjarnan 1-1 | Náðu að lokum að jafna gegn tíu gestum Árni Gísli Magnússon skrifar 1. júní 2025 18:55 Ásgeir Sigurgeirsson skoraði jöfnunarmark KA í dag. vísir/Anton KA og Stjarnan skildu jöfn, 1-1, í 10. umferð Bestu deildar karla á Greifavellinum á Akureyri í dag. KA menn spiluðu einum fleiri frá 38. mínútu eftir að Alex Þór Hauksson fékk reisupassann. KA jafnaði svo leikinn undir lok venjulegs leiktíma. Heimamenn fengu fyrsta færi leiksins þegar Ásgeir Sigurgeirsson átti skalla að marki eftir fyrirgjöf Guðjóns Ernis en boltinn beint á Árna Snæ í markinu. Gestirnir voru óheppnir að komast ekki yfir nokkrum mínútum síðar þegar Haukur Örn Brink átti skot að marki sem var bjargað á línu. Stjörnumenn héldu svo áfram að sækja og átti Benedikt Warén hörkuskot örstuttu seinna sem William Tönning varði glæsilega. Gleði og sorg Stjörnunnar á þriggja mínútna kafla Áfram var fjör við mark KA en Haukur Örn Brink var aftur á ferðinni á þrettándu mínútu þegar honum tókst á ótrúlegan hátt að setja boltann fram hjá marki KA manna eftir mikinn atgang í teignum þar sem hann komst í raun í dauðafæri en fór illa að ráði sínu. Heimamenn vildu fá víti eftir rúman stundarfjórðung þegar Árni Snær í marki Stjörnunnar sló í höfuð Jakobs Snæs eftir að hann hafði skallað boltann yfir en ekkert dæmt. Stjarnan komst loks í forystu eftir 38 mínútna leik þegar Bendikt Warén skallaði boltann í netið af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá fyrrverandi KA manninum Þorra Má Þórissyni. Einungis þremur mínútum síðar urðu Stjörnumenn fyrir áfalli þegar Alexi Þór Haukssyni var vikið af velli með beint rautt spjald. Hann fleygði sér þá í tæklingu á William Tönning, markvörð KA, í þann mund sem hann var að sparka boltanum fram völlinn og á milli þeirra var Ívar Örn Árnason að skýla boltanum. Staðan 1-0 gestunum í vil þegar gengið var til búningsherbergja en Stjarnan var með öll völd á vellinum fram að rauða spjaldinu. Vildu víti og rautt en ekkert dæmt Síðari hálfleikur var allt annar og KA menn sóttu stíft í leit að jöfnunarmarki. Eftir rúmar 10 mínútur í hálfleiknum var Hallgrímur Mar næstum búinn að jafna með skalla en Árni Snær varði frábærlega. Nokkrum mínútum síðar kom stórt atvik en Bjarni Aðalsteinsson átti fast skot að marki og Samúel Kári Friðjónsson setti höndina út og hreinlega varði boltann og KA menn heimtuðu víti af mikilli hörku en fengu ekkert fyrir sinn snúð en þarna hefði átt að dæma víti og mögulega rautt spjald á Samúel. KA menn héldu áfram að herja á Stjörnuna og líklega kveikti það í þeim en hafa ekki fengið víti stuttu áður. Hallgrímur Mar átti m.a. bylmingsskot í slána og virtist þetta ætla verða einn af þessum dögum sem boltinn bara finnur ekki netið sama á hverju dynur. Stíflan brast þó á 88. mínútu þegar Ásgeir Sigurgeirsson þrumaði boltanum í markið af stuttu færi eftir smá klafs eftir hornspyrnu og jafnaði leikinn. Uppbótartíminn fór fram á níundu mínútu en KA menn nýttu þær ekki nægilega vel og jafntefli niðurstaðan. Atvik leiksins Þegar Samúel Kári ver boltann með hönd innan teigs en ekkert er dæmt. Þarna hefði KA getað jafnað leikinn úr vítaspyrnu með 30 mínútur eftir og mögulega tveimur fleiri. Risastórt atvik. Stjörnur og skúrkar Benedikt Warén og Haukur Örn Brink voru mjög líflegir hjá Stjörunni, sérstaklega í fyrri hálfleik, þegar jafnt var í liðum. Benedikt skoraði mark Stjörnunnar og voru þeir í raun báðir óheppnir að skora ekki meira.Árni Snær Ólafsson átti nokkrar flottar vörslur og fær því einnig prik. Guðjón Ernir Hrafnkelsson var öflugur í bakvarðastöðunni hjá KA og var sérstaklega áberandi sóknarlega. Bjarni Aðalsteinsson átti góðan leik og var óheppinn að skora ekki.William Tönning á hrós skilið en hann varði oft á tíðum vel þegar Stjarnan herjaði á KA í fyrri hálfleik. Alex Þór Hauksson tekur skúrkstitlinn á sig fyrir að skilja félaga sína eftir 10 á vellinum. Svo er bara spurning hvort spjaldið sé rétt ákvörðun. Dómarinn Elías Ingi missir af risastóru atviki þegar Samúel Kári ver boltann með hendi innan teigs en KA fær ekki víti.Það er svo spurning hvort gult spjald hefði verið nægileg refsing á Alex Þór þegar hann fær að líta rauða spjaldið.Einnig voru ýmsar ákvaraðarnir sem KA menn sérstaklega voru ósáttir með.Heilt yfir ekki frábær frammistaða. Stemning og umgjörð Það heyrðist meira í stúkunni en vanalega og var stuðningsmannasveitin mætt með trommur og söngva sem er vel. Umgjörðin eins góð og hún líklega verður á Greifavellinum sem bíður uppfærslu innan nokkurra ára. Viðtöl „Stór ákvörðun sem fer með þennan leik“ Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með lið sitt í dag eftir 1-1 jafntefli á útivelli gegn KA þar sem Stjarnan spilaði stóran hluta leiksins manni færri. „Bara ánægður með liðið. Fannst liðið eiga mjög vel við svolítið mótlæti í dag og náttúrulega frábærir fyrstu 35 mínúturnar, þangað til þeir gefa okkur rautt spjald, en eftir það var þetta erfitt og KA gerði þetta vel í seinni hálfleik, vöru öflugir og náðu að ýta okkur vel niður og það erfitt að halda markinu hreinu svona lengi, þannig þetta var bara erfiður leikur. Eins og seinni hálfleikur spilaðist manni færri, þá er fínt að fá stig en ég held við höfum átt stigið skilið, þannig að bara erfiður leikur.” Hver er þín skoðun á rauða spjaldinu sem Alex Þór fær? „Mér finnst það ekki vera rautt spjald, ég er búinn að horfa á þetta fá öllum sjónarhornum, hann fer bara í boltann, hann er aðeins á lofti með löppina. Hann fer ekki í leikmanninn, þeir skella saman og bara stór ákvörðun sem fer með þennan leik. Svo verða bara fróðari menn að dæma endanlega um hvort þetta sé rautt spjald eða ekki, ég get ekkert verið að pæla meira í því, mér fannst það ekki.” KA fékk ekki vítaspyrnu þegar Samúel Kári varði boltann með hendi innan teigs og vildi Jökull ekki tjá sig um atvikið þar sem hann hafi ekki séð það enn. „Ég bara er ekki búinn að sjá það, þannig get ekki dæmt það”. Stjarnan var án nokkurra lykilmanna í dag en þeir Guðmundur Kristjánsson, Örvar Eggertsson og Daníel Finns Matthíasson eru allir meiddir. Jökull býst við þeim klárum eftir landsleikjahléið sem er framundan. „Við verðum ferskir eftir hlé.” „Við eigum hörkuleik á móti Val og svo bikar og það er bara skemmtilegt program. Ég held það sé kærkomið núna að menn nái að kúpla sig aðeins út. Eiga það skilið, búið að vera stíft program, þannig að þetta er bara frábært og við keyrum bara á þetta áfram.” Stjarnan stjórnaði leiknum fram að rauða spjaldinu og hreyfði boltann mjög vel innan liðsins. „Ég var mjög ánægður með það af því að við vorum ekki bara að halda honum, við vorum að skapa mjög afgerandi færi og einhverju leyti hefðum við getað verið búnir að koma okkur í meira afgerandi stöðu áður en að þeir gefa okkur rautt spjald þannig við hefðum kannski getað verið meira “ruthless” inn í teig”, sagði Jökull að endingu. Besta deild karla KA Stjarnan