Liverpool tryggði sér sæti í átta liða úrslitum

Leikmenn Liverpool fagna marki Takumi Minamino í kvöld.
Leikmenn Liverpool fagna marki Takumi Minamino í kvöld. Lewis Storey/Getty Images

Gestirnir frá Liverpool voru mun meira með boltann í leiknum, en náðu þó ekki að koma honum í net andstæðinganna í fyrri hálfleik.

Staðan var því 0-0 þegar gegnið var til búningsherbergja, en Takumi Minamion kom gestunum yfir á 62. mínútu eftir stoðsendingu frá Neco Williams.

Divok Origi tryggði svo gestunum 2-0 sigur með marki á 84. mínútu, en Neco Williams lagði einnig það mark upp.

Þetta reyndist seinasta mark leiksins og Liverpool er því komið áfram í átta liða úrslitin, en Preston hefur lokið keppni.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira