Eyddi fimm sinnum meira í leikmenn en hefur unnið færri sigra en Moyes Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. janúar 2015 08:00 Louis van Gaal og David Moyes voru með jafn mörg stig eftir 21 umferð. vísir/getty
Louis van Gaal tapaði fyrsta leiknum í síðustu ellefu umferðum ensku úrvalsdeildarinnar sem stjóri Manchester United í gær þegar Southampton kom í heimsókn og felldi lærisveina hans, 1-0, á Old Trafford. United-liðið hefur nú aðeins unnið einn af síðustu fimm leikjum sínum og innbyrt sex stig af fimmtán mögulegum, en með tapinu í gær fóru Dýrlingarnir upp fyrir strákana hans Van Gaal í þriðja sæti deildarinnar.Sjá einnig:Southampton sótti sigur á Old Trafford | Sjáið markið Manchester United er með 37 stig eftir 21 umferð í ensku úrvalsdeildinni, jafn mörg stig og liðið hafði undir stjórn Skotans David Moyes á sama tíma fyrir ári. Á þeim tíma var allt í hers höndum hjá félaginu og var Moyes rekinn í apríl eftir tæpt ár í starfi. Það sem meira er þá var Moyes búinn að vinna fleiri leiki á sama tíma í fyrra, en hann stýrði liðinu til sigurs í ellefu leikjum á meðan United hefur aðeins unnið tíu leiki undir stjórn Van Gaal. United tapaði þó tveimur fleiri leikjum í fyrstu 21 umferðunum með Moyes í brúnni á meðan liðið hefur gert fleiri jafntefli undir stjórn Van Gaal. Moyes náði sínum „árangri“ með töluvert ódýrara lið en Van Gaal, en Skotinn eyddi tæpum 30 milljónum punda í tvo leikmenn á meðan Van Gaal eyddi 145 milljónum punda í sex nýja leikmenn. Hollendingurinn eyddir nær fimm sinnum meiri pening í nýja leikmenn og hefur úr breiðari sveit að velja - þó meiðsli hafi sett strik í reikninginn - en er ekki að gera betur en Moyes þegar litið er á töfluna. Manchester United á nokkuð þægilega leiki framundan þannig liðið getur komist aftur á skrið, en það mætir QPR, Leicester, West Ham, Burnley og Swansea í næstu fimm leikjum.How does Louis van Gaal compare with his predecessor David Moyes after 21 games? #SSNHQ pic.twitter.com/q6oSay4A2O— Sky Sports News HQ (@SkySportsNewsHQ) January 11, 2015 Here's how van Gaal's spending compares with that of his predecessor David Moyes. #SSNHQ pic.twitter.com/U3D4DApZlY— Sky Sports News HQ (@SkySportsNewsHQ) January 11, 2015
Enski boltinn Tengdar fréttir Southampton sótti sigur á Old Trafford | Sjáið markið Southampton lagði Manchester United 1-0 í síðasta leik 21. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar nú síðdegis. Dusan Tadic skoraði sigurmarkið á 69. mínútu. 11. janúar 2015 00:01 Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira
Southampton sótti sigur á Old Trafford | Sjáið markið Southampton lagði Manchester United 1-0 í síðasta leik 21. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar nú síðdegis. Dusan Tadic skoraði sigurmarkið á 69. mínútu. 11. janúar 2015 00:01