Enska knattspyrnusambandið breytir reglum sem að lúta að leikmannaviðskiptum 6. ágúst 2007 14:48
Richard Scudamore, framkvæmdastjóri enska knattspyrnusambandsins hefur breytt reglum sem lúta að leikmannaviðskiptum og segir hann að vandræðin sem sköpuðust í kringum Argentínumanninn, Carlos Tevez, eigi ekki að geta endurtekið sig. Málið varð hið vandræðalegasta fyrir enska sambandið en ekki sá fyrir endann á flækjunni fyrr en West Ham náði skyndilega samkomulagi við umboðsmenn Tevez nú fyrir helgi. Reglubreytingin felur í sér að félög þurfa nú að afhenda enska knattspyrnusambandinu öll gögn sem til eru varðandi leikmannaviðskipti, hversu lítilfjörleg sem sum gögnin kunna að virðast til þess að fá viðskiptin samþykkt. Þetta gerði West Ham ekki þegar félagið fékk Tevez og landa hans, Javier Mascherano til félagsins í ágúst í fyrra, áður en Íslendingarnir tóku við stjórnartaumum í félaginu. West Ham var í kjölfarið sektað um fimm og hálfa milljón punda eða 700 milljónir króna fyrir að brjóta reglur knattspyrnusambandsins sem kveða á um að leikmaður megi ekki vera á nokkurn hátt í eigu þriðja aðila. Argentínumennirnir voru þá hjá West Ham á lánssamningi frá brasilíska félaginu Corinthians, og í eigu fyrirtækis íranska viðskiptajöfursins Kia Jorabchian. Þetta er leyfilegt í Suður-Ameríku en ekki á Englandi. Tevez verður löglegur með Man Utd á næstu tveimur sólarhringum og mun taka þátt í æfingaleik með liðinu á miðvikudaginn
Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real Fótbolti Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Enski boltinn „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti Fleiri fréttir Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar Sjá meira