Enski boltinn

AC Milan í viðræðum við Man. City vegna Dzeko

Það er fátt sem bendir til þess að Edin Dzeko verði enn í herbúðum Man. City er tímabilið hefst í Englandi í næsta mánuði.

Dzeko hefur fallið niður goggunarröðina hjá félaginu og hefur verið að leita fyrir sér hjá öðrum félögum í sumar.

AC Milan hefur þegar átt viðræður við Man. City um kaup á leikmanninum sem gekk í raðir City í janúar í fyrra.

Dzeko kom til City frá Wolfsburg á 32 milljónir evra en hefur ekki náð að festa sig í sessi í liði City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×