Enski boltinn

Gylfi Þór mættur til æfinga hjá Tottenham

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gylfi á æfingunni í dag. Í bakgrunni er meðal annars miðvörðurinn Michael Dawson.
Gylfi á æfingunni í dag. Í bakgrunni er meðal annars miðvörðurinn Michael Dawson. Mynd / Twitter-síða Tottenham
André Villas-Boas stýrði sinni fyrstu æfingu sem knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur í London í dag þangað sem Gylfi Þór Sigurðsson var að sjálfsögðu mættur.

Gylfi gekk sem kunnugt er frá fimm ára samningi við Lundúnarfélagið í síðustu viku. Twitter-síða Tottenham birti í dag myndir frá æfingunni þar sem Villas-Boas og Gylfi Þór voru í aðalhlutverki.

Tottenham fer meðal annars í æfingaferð til Bandaríkjanna í sumar þar sem liðið mætir Liverpool í einum af mörgum æfingaleikjum liðsins í Baltimore 28. júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×