Enn meiri spenna í botnbaráttunni - öll úrslit dagsins í enska 29. mars 2014 14:30
Southampton og Swansea unnu bæði sannfærandi heimasigra í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag en óvæntustu úrslit dagsins voru á Selhurts Park þar sem Crystal Palace vann 1-0 sigur á Chelsea.Jay Rodriguez var áfram á skotskónum hjá Southampton en hann skoraði tvö mörk í 4-0 sigri á Newcastle. Rodriguez var að skora í fjórða deildarleiknum í röð og Southampton hefur unnið þrjá þeirra. Mörkin má sjá í spilaranum að ofan.Jonathan de Guzman skoraði tvö fyrstu mörkin þegar Swansea vann 3-0 heimasigur á Norwich en þetta var sannkallaður sex stiga leikur í fallbaráttunni. Swansea fór upp fyrir Norwich með þessum sigri.Peter Odemwingie tryggði Stoke þrjú stig þegar hann skoraði eina markið í 1-0 sigri á Hull. Markið kom eftir varnarmistök hjá lærisveinum Steve Bruce í Hull.Sjálfsmark fyrirliðans John Terry kostaði Chelsea öll stigin þegar liðið tapaði 0-1 á útivelli á móti Crystal Palace. Chelsea er enn í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar en Manchester City getur nú tekið toppsætið af Chelsea-liðinu með sigri á Arsenal seinna í dag.Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff City náðu í stig á útivelli á móti West Bromwich Albion í dag þrátt fyrir að lenda tveimur mörkum undir eftir aðeins níu mínútna leik. Leikurinn endaði með 3-3 jafntefli eftir tvö mörk í uppbótartíma. Aron Einar fékk bara fyrri hálfleikinn í dag en Ole Gunnar Solkskjær tók hann útaf í hálfleik og setti Mats Moller Daehli, 19 ára landa sinn, inná í staðinn. Daehli skoraði síðan jöfnunarmarkið á fjórðu mínútu í uppbótartíma.Úrslit og markaskorarar í ensku úrvalsdeildinni í dag:Manchester United - Aston Villa 4-1 0-1 Ashley Westwood (13.), 1-1 Wayne Rooney (20.), 2-1 Wayne Rooney, víti (45.), 3-1 Juan Mata (57.), 4-1 Javier Hernandez (90.+1)Crystal Palace - Chelsea 1-0 0-1 Sjálfsmark John Terry (52.)Southampton - Newcastle 4-0 1-0 Jay Rodriguez (45.), 2-0 Rickie Lambert (49.), 3-0 Adam Lallana (70.), 4-0 Jay Rodriguez (89.)Stoke - Hull 1-0 1-0 Peter Odemwingie (62.)Swansea - Norwich 3-0 1-0 Jonathan de Guzman (30.), 2-0 Jonathan de Guzman (38.), 3-0 Wayne Routledge (75.)West Brom - Cardiff 3-3 1-0 Morgan Amalfitano (2.), 2-0 Graham Dorrans (9.), 2-1 Jordon Mutch (30.), 2-2 Steven Caulker (73.), 3-2 Thievy Bifouma (90.+2), 3-3 Mats Moller Daehli (90.+4).
Enski boltinn Mest lesið Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Enski boltinn Harðvígar deilur og tómur völlur hjá nýju liði Alberts Fótbolti „Getur vel verið að ég sé bara með Aftureldingargleraugu“ Fótbolti FIFA dæmir tvo í lífstíðarbann Fótbolti Myndasyrpa: Gleðin við völd í Laugardal Íslenski boltinn Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Handbolti „Ef ég hefði fengið að velja þá hefði ég alltaf valið eldinguna“ Sport Enskt hlaðborð á laugardegi Sport „Maður skal brennimerkja þessa stund í hjarta sínu og sál“ Íslenski boltinn „Maður er í þessu til þess að vinna titla“ Fótbolti Fleiri fréttir Neitar að hafa tekið þátt í mannráni Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Harmsaga Mudryk heldur áfram Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Rooney segir að United hafi gert tvenn stór mistök í sumar Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Sjá meira