Sigur í fyrsta leik Balotelli 31. ágúst 2014 12:00 Liverpool fagna marki Sterling. Vísir/Getty
Liverpool heldur áfram góðu taki sínu á Tottenham, en þeir rauðklæddu unnu góðan 3-0 sigur á White Hart Lane í dag. Liverpool vann báða leiki liðanna í fyrra; 5-0 og 4-0 og svipað var uppá teningnum í dag. Lokatölur eins og fyrr segir 3-0 og samanlagt 12-0 fyrir Liverpool í síðustu þremur viðureignum þessara liða!Mario Balotelli var í byrjunarliði Liverpool í fyrsta skipti síðan hann kom frá AC Milan og hann fékk tvö góð skallafæri áður en fyrsta markið kom. Raheem Sterling skoraði eftir góða sókn og gestirnir frá Liverpool komnir yfir. Vörn Liverpool var í tómum vandræðum oft á tíðum í fyrri hálfleik og Nacer Chadli fékk afar gott færi, en hann lét Simon Mignolet verja frá sér. Staðan var 1-0 í hálfleik eftir opinn og fjörugan fyrri hálfleik. Eftir einungis fjórar mínútur í síðari hálfleik gerðist umdeilt atvik. Eric Dier greip þá aðeins í Joe Allen sem henti sér niður og Mike Dean, dómari leiksins, benti á punktinn við litla hrifningu heimamanna. Steven Gerrard steig á punktinn og skoraði sitt 29. mark úr víti fyrir Liverpool. Róðurinn var orðinn þungur fyrir heimamenn og ekki skánaði ástandið fyrir Tottenham þegar Alberto Moreno skoraði þriðja mark Liverpool eftir tæpan klukkutíma. Spænski bakvörðurinn hirti boltann af Andros Townsend, sem var nýkominn inná sem varamaður, brunaði upp vænginn og þrumaði boltanum í hornið. Lokatölur urðu 3-0 og eru því bæði lið með sex stig eftir fyrstu þrjá leikina. Öll mörkin úr leiknum má sjá hér.
Enski boltinn Tengdar fréttir Sjáðu mörkin á White Hart Lane | Myndband Liverpool er í banastuði á White Hart Lane. 31. ágúst 2014 13:38 Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira
Sjáðu mörkin á White Hart Lane | Myndband Liverpool er í banastuði á White Hart Lane. 31. ágúst 2014 13:38