Enski boltinn

Kompany samdi við City til 2018

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kompany kynnir Noel Gallagher til leiks á Rock Werchter tónlistarhátíðinni í Belgíu í sumar.
Kompany kynnir Noel Gallagher til leiks á Rock Werchter tónlistarhátíðinni í Belgíu í sumar. Nordicphotos/Getty
Belgíski miðvörðurinn Vincent Kompany hefur framlengt samning sinn við Englandsmeistaralið Manchester City til ársins 2018.

Kompany, sem borið hefur fyrirliðaband City-liðsins og farið á kostum í varnarleiknum, segir það skoðun sína að líði manni vel einhvers staðar sé engin ástæða til þess að færa sig um set.

„Manchester City sem verkefni er ekki aðeins verkefni eigendanna eða fólksins sem starfar hjá félaginu. Það er líka verkefnið mitt," segir Kompany í viðtali á heimasíðu félagsins.

„Ég hef verið hér frá byrjun og séð félagið breytast að utan sem innan. Ég hef það á tilfinningunni að ég eigi hlut í þessari umbreytingu. Það er gott að vita til þess að hér geti ég verið í sex ár til viðbótar. Það er mikið hrós að félaginu finnist svo mikið til mín koma."

Kompany var einn fjögurra leikmanna City sem valinn var í úrvalslið deildarinnar á síðustu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×