Erlent

Tuttugu og átta þúsund handteknir í fyrra

Rúmlega tuttugu og átta þúsund manneskjur voru handteknar á Spáni á síðasta ári vegna heimilisofbeldis. Alls bárust lögreglunni yfir 43.800 kvartanir vegna ofbeldis á konum í landinu.

Frá janúar fram í nóvember á þessu ári voru 56 konur myrtar á Spáni af mökum sínum eða fyrrverandi mökum. Það eru 11% færri morð en í fyrra en þá voru 72 konur myrtar. Talið er að aðeins 5% þolenda heimilisofbeldis á Spáni kæri verknaðinn til lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×