Enski boltinn

Dembele afar eftirsóttur

Það er afar ólíklegt að Fulham muni halda Moussa Dembele í sumar enda eru flest bestu félög Englands með leikmanninn í sigtinu fræga.

Manchester-liðin, Arsenal, Chelsea, Tottenham og Liverpool eru öll sögð hafa áhuga á þessum 24 ára gamla Belga.

Dembele verður þó ekki ókeypis en talið er að hann muni kosta 12-15 milljónir punda.

Fulham mun því græða vel á honum en félagið keypti hann á 5 milljónir punda frá AZ Alkmaar sumarið 2010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×