Tyrkir fagna aðildarviðræðum 4. október 2005 00:01
Athöfnin sem átti að marka upphaf aðildarviðræðna Tyrkja við Evrópusambandið klukkan þrjú í gærdag var haldin í nótt. Tyrkir fagna og það gera Króatar einnig því lausn Tyrkjadeilunnar þýðir pláss við samningaborðið fyrir þá. Sólarupprásin var fögur í Istanbúl, höfuðborg Tyrklands í morgun. Utanríkisráðherra landsins lagði af stað til fundar við samninganefnd Evrópusambandsins seint í gærkvöldi eftir að sólarhringsfundarhöld utanríkisráðherra ESB leiddu til þess að Austurríkismenn gáfu eftir og létu af andstöðu sinni við aðild Tyrklands að sambandinu. Tyrknesk yfirvöld hafa stefnt að þessu marki í mörg ár - rúm 40, segja sumir. Almenningur virðist með á nótunum því þótt þetta skref sé litið jákvæðum augum gera menn sér grein fyrir því að ekki fæst allt fyrir ekkert. Þar að auki er reiknað með að aðildarviðræðurnar taki um áratug. Aðalástæða andstöðu við inngöngu Tyrklands virðist vera af menningarlegum og þar með trúarlegum toga. 72 milljóna múslímaríki er stór viðbót við hina kristnu Evrópu. Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, sagði í dag að það að taka Tyrkland inn í Evrópusambandið, þar sem kristnar þjóðir hefðu ráðið ríkjum til þessa, væri aðferð til að tengja kristni og íslam saman. Þetta sannaði að það væru engin átök á milli menningarheimanna tveggja heldur væri djúp gjá milli siðsmenntaðs fólks um allan heim sem vildi leggja siðmenninguna í rúst. En það voru fleiri en Tyrkir og örþreyttir samningamenn sem fögnuðu því að aðildarviðræðurnar gætu hafist. Króötum hefur loks verið boðið að samningaborðinu núna, en það hefur verið markmið Ivos Sanaders forsætisráðherra um langt skeið. Carla del Ponte, aðalsaksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins í Haag, hefur loks gefið grænt ljós á viðræður eftir að hafa þrýst á króatísk stjórnvöld um árabil að vera samvinnuþýðari og ganga harðar fram við að handsama og framselja stríðsglæpamenn sem enn ganga lausir í landinu. Það virðist því ekki munu verða nokkuð lát á útþenslu Evrópusambandsins á næstu árum því enn bíða fleiri Austur-Evrópulönd eftir því að komast í samningastólana sem Króatar og Tyrkir munu verma næstu árin.
Erlent Fréttir Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Erlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Fleiri fréttir Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Sjá meira