Sporgöngumenn Abbas 7. janúar 2005 00:01
Öruggt er talið að Mahmoud Abbas beri sigur úr býtum í forsetakosningunum í Palestínu á morgun. Sex aðrir eru þó í kjöri, þar af eru fjórir óháðir frambjóðendur. Enda þótt fylgi Mustafa Barghouti mælist aðeins 6-14 prósent í skoðanakönnunum er hann sá frambjóðandi sem helst er talinn geta velgt Abbas undir uggum. Hann er ættingi Marwans Barghouti, uppreisnarleiðtogans sem afplánar nú margfaldan lífstíðardóm fyrir hryðjuverk, en sá var af mörgum álitinn líklegasti eftirmaður Jassers Arafat. Barghouti hefur í baráttunni gefið sig út fyrir að vera maður fólksins en forysta palestínsku heimastjórnarinnar hefur löngum verið gagnrýnd fyrir að vera ekki í nógu miklum tengslum við alþýðuna. Hann segist ætla að ráðast gegn spillingu og tryggja að lög og regla ríki á sjálfstjórnarsvæðum Palestínumanna. Hann var handtekinn og að eigin sögn misþyrmt af ísraelsku lögreglunni í desember síðastliðnum, í aðdraganda kosningabaráttunnar. Þar sem Barghouti hefur enga fjöldahreyfingu á bak við sig verður að telja útilokað að hann nái að sigra Abbas. Stjórnmálaskýrendur telja þó að björt framtíð geti beðið hans bíði hann ekki afhroð á morgun. Af öðrum frambjóðendum má nefna Bassam al-Sahli, frambjóðanda Lýðflokks Palestínumanna sem er lítil kommúnistahreyfing innan PLO. Hann hefur margsinnis mátt dúsa í fangelsi vegna þátttöku sinnar í baráttunni gegn ísraelskum stjórnvöldum. Taysir Khalid er frambjóðandi byltingarsinnaðrar marxískrar hreyfingar sem á litlu fylgi að fagna á meðal Palestínumanna. Hinir frambjóðendurnir heita Abdul Karim Shabiar, Abdul Halim al-Ashqar og Alsayd Barakah. Ekki er talið að margir muni greiða þeim atkvæði sitt.
Erlent Fréttir Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Strandveiðar bannaðar á morgun Innlent Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fleiri fréttir Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Sjá meira