Enski boltinn

Ferdinand, Scholes og Evra allir með á móti Arsenal

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Paul Scholes.
Paul Scholes. Mynd/Nordic Photos/Getty
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er sannfærður um að að þeir

Rio Ferdinand, Paul Scholes og Patrice Evra geti allir spilað í toppslagnum á móti Arsenal á mánudagskvöldið.

Rio Ferdinand haltraði útaf í byrjun seinni hálfleiks á móti Valencia í Meistaradeildinni í vikunni en þetta var ekki slæm tognun aftan í læri og Rio ætti því að gera spilað við hlið Nemanja Vidic í miðri vörninni á móti toppliði Arsenal.

Paul Scholes hefur verið að glíma við nárameiðsli og það þótti um tíma ólíklegt að hann yrði orðinn góður fyrir Arsenal-leikinn. Scholes meiddist í Meistaradeildarleik á móti Rangers á dögunum en hefur náð sér góðum á síðustu dögum og verður því með.

Patrice Evra lék ekki með á móti Valencia en mun koma inn í bakvarðarstöðuna sína í staðinn fyrir Fabio sem spilaði á móti Valencia.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×