Fótbolti

Hamrén: Þeir hljómuðu eins og þeir væru að minnsta kosti 6.000

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Erik Hamrén þakkar þeim fáu stuðningsmönnum Íslands sem máttu mæta á Laugardalsvöllinn í kvöld fyrir sitt framlag.
Erik Hamrén þakkar þeim fáu stuðningsmönnum Íslands sem máttu mæta á Laugardalsvöllinn í kvöld fyrir sitt framlag. vísir/vilhelm

Hljóðið var gott í Erik Hamrén, þjálfara íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, eftir sigurinn á Rúmeníu í kvöld.

„Ég er mjög ánægður. Þetta var mjög mikilvægur leikur sem við unnum. Ég er líka sáttur með frammistöðu okkar. Við mættum þeim framarlega og gerðum það vel. Í svona leikjum er svo mikilvægt að ná fyrsta markinu og við gerðum það. Við skoruðum líka annað markið og vorum nálægt því að skora það þriðja. Mér fannst við hafa leikinn í hendi okkar en síðan fengu þeir vítið,“ sagði Hamrén.

Rúmenar minnkuðu muninn í 2-1 úr umdeildri vítaspyrnu á 63. mínútu. Vítið var dæmt á Ragnar Sigurðsson fyrir brot á Andrei Burca.

„Ég hef ekki séð það og get ekki sagt neitt,“ sagði Hamrén. „Eftir það greip um sig smá taugaspenna því þeir gátu skapað sér eitthvað úr engu. En við héldum þeim frá því að búa til opin færi. Ég held að þeir hafi ekki fengið dauðafæri.“

Íslenska liðið byrjaði seinni hálfleikinn af miklum krafti og gerði sig líklegt til að skora þriðja markið og klára þar með leikinn.

„Við vildum spila af krafti eins lengi og mögulegt var. Ef við hefðum klárað leikinn hefði það auðvitað verið gott,“ sagði Hamrén.

Svíinn var heilt yfir ánægður með frammistöðu íslenska liðsins í kvöld. „Við töluðum um að vera þéttir fyrir sem lið og pressa framarlega þegar möguleiki gafst. Við vildum vera beittir fyrir framan markið og Gylfi skoraði tvö frábær mörk. Ég er ánægður með allt.“

Aðeins 60 áhorfendur voru á Laugardalsvellinum í kvöld en þeir létu vel í sér heyra.

„Ég vil þakka þeim. Þeir hljómuðu eins og þeir væru að minnsta kosti 6.000. Við vildum auðvitað hafa áhorfendur en vonandi var fólk ánægt fyrir framan sjónvarpið,“ sagði Hamrén.

Framundan er úrslitaleikur gegn Ungverjalandi 12. nóvember um sæti á EM á næsta ári.

„Við erum þegar byrjaðir að undirbúa okkur. Við höfum fylgst með þeim og greint þá,“ sagði Hamrén að endingu.

Klippa: Viðtal vð Erik Hamrén eftir sigurinn á Rúmeníu

Tengdar fréttir

Leikformið ekki upp á marga fiska

Jóhann Berg Guðmundsson sagði spilamennsku landsliðsins gegn Rúmenum hafa verið frábæra. Liðið hefði átt að nýta tækifæri sín betur og skora fleiri mörk.

Engar afsakanir hjá þjálfara Rúmena

Þrátt fyrir spurningar fjölmiðlamanna um dómgæslu og vallaraðstæður hafði Mirel Radoi, þjálfari Rúmeníu, engan áhuga á að nota annað en spilamennsku sinna manna sem ástæðu fyrir tapinu gegn Íslandi.

Aron Einar sáttur í leiks­lok: Gamla bandið komið saman aftur

Landsliðsfyrirliðinn var eðlilega mjög sáttur eftir 2-1 sigur Íslands á Rúmeníu. Hann var sáttur með frammistöðu liðsins en var duglegur að minna á að þetta væri fyrri hálfleikur og sá síðari færi fram í Ungverjalandi í nóvember.

Átti mark Alfreðs að standa?

Eitt af þremur mörkum íslenska landsliðsins í fyrri hálfleik á móti Rúmeníu var ekki dæmt gilt þar sem Alfreð Finnbogason var sagður hafa verið rangstæður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×