Markalaust í yfir hundrað mínútna leik

Ísak Hallmundarson skrifar
Tottenham náði ekki að skora á rúmum hundrað mínútum í dag.
Tottenham náði ekki að skora á rúmum hundrað mínútum í dag. vísir/getty

Tottenham gerði markalaust jafntefli við Bournemouth í dag en leiktíminn fór yfir hundrað mínútur. Liðið situr í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Leikurinn fer ekki í sögubækurnar sem sá skemmtilegasti en það var ekki mikið að frétta í leiknum.

Á lokamínútu venjulegs leiktíma skoraði Callum Wilson fyrir Bournemouth en markið var dæmt af vegna hendi í aðdraganda marksins. Heilum tólf mínútum var bætt við venjulegan leiktíma en hvorugt liðið náði að nýta sér það. 

Tottenham er í níunda sæti deildarinnar en Bournemouth í 18. sæti, fallsæti, þremur stigum frá öruggu sæti í deildinni. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira