Liverpool nálgast stigametið óðfluga

Ísak Hallmundarson skrifar
Liverpool eltir met Manchester City.
Liverpool eltir met Manchester City.

Þrátt fyrir að vera orðnir enskir meistarar ætla leikmenn Liverpool ekki að slaka á og unnu þeir Brighton í kvöld 3-1 á útivelli. 

Mo Salah kom meisturunum yfir strax á 6. mínútu leiksins. Jordan Henderson bætti um betur og skoraði glæsilegt mark með skoti fyrir utan teig á 8. mínútu.

Leandro Trossard minnkaði muninn fyrir Brighton rétt fyrir leikhlé, staðan í hálfleik 1-2.

Það var síðan Mo Salah sem var aftur á ferðinni á 76. mínútu þegar hann skoraði þriðjamark Liverpool eftir sendingu frá Andy Robertson. Lokatölur leiksins 3-1 og er Liverpool núna með 92 stig þegar 12 stig eru eftir í pottinum. Stigamet Manchester City frá 2018 er 100 stig slétt. 

Brighton er í 15. sæti með 36 stig, níu stigum fyrir ofan fallsæti. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira