Erlent

130 ára gamall sléttbakur

Sjaldgæft er að hvalir nái meira en 100 ára aldri
Sjaldgæft er að hvalir nái meira en 100 ára aldri Mynd/ AFP

Fimmtíu tonna sléttbakur sem veiddur var við strendur Alaska í síðasta mánuði er talinn hafa verið allt að 130 ára gamall. Rannsóknir benda til að sprengjukúla sem hann var með í hálsinum sé 100 ára gömul. Dýrið er á við hálfan knattspyrnuvöll á stærð.

Sprengjukúlan sem fannst í hvalnum hefur líklegast verið framleidd í New Bedford, á suðurströnd Massachusetts, sem var stór hvalveiðistöð fyrir 100 árum. Hvalurinn hefur líklegast fengið sprengikúlu í sig sem ætlað hefur verið að drepa hann samstundis. Kúlan hefur sprungið en hvalurinn einungis særst. Dýralífsfræðingar sem rannsökuðu dýrið skömmu eftir að það fannst sögðu þetta vera óvenjulegan fund.

Erfitt er að reikna út aldur hvala. Það er venjulegast gert með því að rannsaka augu þeirra. Það er sjaldgæft að finna dýr sem hefur náð meira en 100 ára aldri en sérfræðingar telja að sá elsti hafi verið nærri 200 ára gamall.

Hvalveiðar eru mikilvæg búgrein fyrir Alaskabúa og eru þær undir eftirliti Alþjóða hvalveiðiráðsins. Veiðikvóti þeirra var nýlega endurnýjaður og fengu þeir leyfi til að veiða 255 hvali á fimm árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×