Austin skaut West Brom á toppinn

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Austin hefur reynst drjúgur fyrir West Brom.
Austin hefur reynst drjúgur fyrir West Brom. vísir/getty

West Brom er komið á topp ensku B-deildarinnar eftir 2-3 útisigur á Birmingham City í dag.

Charlie Austin skoraði tvö mörk síðustu mörk West Brom eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Lukas Jutkiewicz kom Birmingham yfir á 3. mínútu en Grady Diangana jafnaði sjö mínútum síðar.

Harlee Dean kom Birmingham aftur yfir á 47. mínútu en Austin reyndist hetja West Brom.

West Brom er með 49 stig í efsta sæti deildarinnar, þremur stigum á undan Leeds United. Birmingham er í 15. sætinu með 28 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira