Fimmti deildarsigur Chelsea í röð

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Abraham og Pulisic sáu um markaskorun Chelsea í dag
Abraham og Pulisic sáu um markaskorun Chelsea í dag vísir/getty
Chelsea hélt áfram sigurgöngu sinni í dag þegar liðið sótti botnlið Watford heim í ensku úrvalsdeildinni.

Tammy Abraham kom gestunum í Chelsea yfir snemma leiks eftir frábæra sendingu frá Jorginho. Mark Abraham skildi liðin að í hálfleik.

Chelsea var með öll völd í leiknum og var Abraham aftur á ferðinni í byrjun seinni hálfleiks þegar hann lagði upp annað mark Chelsea fyrir Christian Pulisic.

Undir lok leiksins náði Watford að minnka muninn. Myndbandsdómarinn dæmdi vítaspyrnu fyrir brot á Gerard Deulofeu. Hann fór sjálfur á punktinn og skoraði.

Nær komst Watford hins vegar ekki og fór leikurinn 2-1 fyrir Chelsea.

Sigurinn var sá fimmti í röð hjá Chelsea í ensku úrvalsdeildinni og er liðið í þriðja sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Manchester City.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira