Dramatískt jafntefli á Elland Road

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Stuðningsmenn Leeds trúðu ekki eigin augum
Stuðningsmenn Leeds trúðu ekki eigin augum vísir/getty
Jöfnunarmark í uppbótartíma tryggði Derby County stig gegn toppliði Leeds í ensku Championship deildinni.

Heimamenn í Leeds fóru illa með færin á Elland Road og geta nagað sig í handarbökin yfir því eftir að Chris Martin skoraði í uppbótartíma leiksins og tryggði Derby mikilvægt stig.

Áður hafði sjálfsmark Max Lowe komið Leeds yfir á 20. mínútu.

Leeds hefur gert það að vana sínum það sem af er tímabili að tapa stigum seint í leikjum og það gæti kostað þá toppsætið því Swansea kemst á toppinn með sigri á Bristol í toppslag seinna í dag.

Derby er um miðja deild og náðu í mjög mikilvægt stig, mark Derby kom úr eina skoti þeirra á markrammann í öllum leiknum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira