Erlent

Þingmenn vilja stutt réttarhöld

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna. AP/Manuel Balce Ceneta

Öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins vilja stutt réttarhöld yfir Donald Trump og vilja ekki kalla til vitni. Þá vilja þeir hafa réttarhöldin eftir áramót. Það er þvert á vilja Trump sem vill kalla til þó nokkur vitni því hann telur að framburður þeirra myndi skaða pólitíska andstæðinga hans. Þingmennirnir eru þó ekki sömu skoðunar og telja að réttarhöldin gætu orðið að pólitískum sirkus.

Þá segja Repúblikanar að engin þörf sé á því að kalla til umdeild vitni ef það muni hvort eð er ekki hafa áhrif á niðurstöðuna.

Fastlega er búið við því að dómsmálanefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings muni samþykkja tvær ákærur gegn Trump fyrir embættisbrot í dag og að öll deildin muni gera það snemma í næstu viku. Einhverjir þingmenn Demókrataflokksins eru líklegir til að greiða atkvæði gegn ákærunum en þrátt fyrir að munu Demókratar eiga nógu mörg atkvæði til að koma málinu til öldungadeildarinnar.



Sjá einnig: Ákæra Trump fyrir að misnota vald sitt og standa í vegi þingsins



Trump vill meðal annars kalla þau Adam B. Schiff, Nancy Pelosi, Joe og Hunter Biden og uppljóstrarann sem kom upp um viðleitni Trump til að fá yfirvöld Úkraínu til að rannsaka Biden feðgana og forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 2016.

Kvörtun uppljóstrarans leiddi til þess að fulltrúadeild þingsins hóf rannsókn á því hvort Trump hafi brotið af sér í starfi.

Mitch McConnel, leiðtogi Repúblikanaflokksins í öldungadeildinni.AP/J. Scott Applewhite

Samkvæmt heimildarmönnum Washington Post varaði Mitch McConnel, leiðtogi Repúblikanaflokksins í öldungadeildinni, aðra þingmenn sérstaklega við því að kalla þetta fólk til vitnisburðar. Demókratar gætu fengið það í gegn að kalla til eigin vitni, eins og Mike Pence, varaforseta, og Mick Mulvaney, starfandi starfsmannastjóra Hvíta hússins. Trump hefur meinað þeim tveimur og mörgum öðrum í ríkisstjórn hans að bera vitni.



Réttarhöldin sjálf gætu tekið einungis tvær vikur, þar sem forsvarsmenn rannsóknarinnar á fulltrúadeildinni munu flytja mál sitt og lögmenn Hvíta hússins munu verja forsetann. Þingmenn myndu svo greiða atkvæði um örlög forsetans en fastlega má búast við því að honum verði ekki vísað úr embætti þar sem Repúblikanar eru í meirihluta á öldungadeildinni.

McConnell vill sérstaklega ekki draga réttarhöldin á langinn þar sem hann vill ekki að þau komið niður á kosningabaráttu flokksins í kosningunum á næsta ári.

Hann hefur aldrei lýst því yfir opinberlega hvernig hann vill að réttarhöldin fari fram. Á fundi með öðrum þingmönnum í vikunni vísaði hann í tvo möguleika. Annar væri að halda réttarhöld þar sem báðir aðilar fá að kalla til vitni. Hinn væri að þingmenn ákváðu að „þeir hafi heyrt nóg og telji sig vita hvað muni gerast“.

Þingmaðurinn Pat Roberts segir ljóst hvað McConnell átti við. Hann vilji klára þetta sem fyrst.


Tengdar fréttir

Segja Trump hafa brotið af sér í starfi

Donald Trump fórnaði öryggishagsmunum Bandaríkjanna í eigin hag og rík ástæða er til að ákæra hann fyrir embættisbrot í starfi forseta.

Trump rangtúlkar orð Zelensky og segist hreinsaður af sök

Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, er ekki þeirrar skoðunar að umdeilt símtal hans og Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, hafi falið í sér svokallað "kaup kaups“ (e. Quid pro quo). Hann gagnrýndi Bandaríkin þó harðlega fyrir að koma fram við Úkraínu sem peð í pólitískri skák.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×