West Ham gerði jafntefli við þriðjudeildarlið Magnús Ellert Bjarnason skrifar 7. janúar 2018 16:00 Javier Hernandez, framherji West Ham. vísir/getty Úrvalsdeildarlið West Ham gerði óvænt markalaust jafntefli í dag við Shrewsbury í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar. Shrewsbury er í 2. sæti í League One deildinni, sem er sú þriðja efsta á Englandi. Leikurinn var afar bragðdaufur og litu fá opin marktækifæri dagsins ljós. Heimamenn í Shrewsbury voru þó ívið líklegri aðilinn til að stela sigrinum; voru meira með boltann og áttu fleiri skot á markið, án þess þó að valda Joe Hart, markmanni West Ham, teljandi vandræðum. David Moyes, þjálfari West Ham, stillti upp sterku liði en gaf þó nokkrum ungum og óreyndum leikmönnum tækifæri í dag. Liðin munu mætast á ný á heimavelli West Ham, ólympíuleikvanginum í London, síðar í þessum mánuði til að skera úr um það hvort liðið heldur áfram í fjórðu umferð. Enski boltinn
Hélt að hásinin hefði slitnað: „Fékk svona tilfinningu eins og einhver hefði sparkað aftan í mig“ Körfubolti
Hélt að hásinin hefði slitnað: „Fékk svona tilfinningu eins og einhver hefði sparkað aftan í mig“ Körfubolti