Telur að íbúar muni berjast gegn yfirvöldum Norður-Kóreu Samúel Karl Ólason skrifar 25. janúar 2017 15:36 "Kim Jong-un veit að kjarnorkuvopn eru eina leiðin til að tryggja yfirráð hans.“ Vísir/AFP
Thae Yong-ho er einn hæst setti erindreki Norður-Kóreu sem hefur svikist undan merkjum sínum og flúið undan oki yfirvalda þar í landi. Hann telur að ríkisstjórn Kim Jong-un muni falla á endanum þegar íbúar Norður-Kóreu rísa upp gegn honum. Þá segir hann víst að einræðisherrann sé tilbúinn til að beita kjarnorkuvopnum. Hann segist staðráðinn í því að berjast gegn yfirvöldum Norður-Kóreu þar sem Thae Yong-ho er fullviss um að fjölskylda sín þar í landi séu að þjást vegna ákvörðunar hans. „Ég er viss um að ættingjar mínir og bræður mínir og systur hafa verið sendi í fangabúðir eða á fjarlæg lokuð svæði og það fyllir mig af sorg,“ segir hann í viðtali við BBC. Hann býr nú í Suður-Kóreu, en var erindreki Norður-Kóreu í London. Þaðan hvarf hann, eiginkona hans og börnr einn góðan veðurdag þar til þau stungu aftur upp kollinum í Suður-Kóreu. Yong-ho vill ekkert segja blaðamönnum um hvernig það ferðalag kom til. Hann bjó ásamt fjölskyldu sinni í sendiráðinu í London. Hann segir sífellt hafa þurft að verja heimalandið fyrir börnunum. Þau hafi til dæmis spurt hann af hverju íbúar Norður-Kóreu fái ekki að fara á internetið og fleira. Á endanum hafi hann sjálfur gefist upp á Norður-Kóreu.Yong-ho segist lítið vita um Kim Jong-un sjálfan, þar sem einræðisherran lifi mjög leyndu lífi. Fáir viti til dæmis hvar hann búi. Þrátt fyrir það er Yong-ho sannfærður um að Kim Jong-un sé vægðarlaus og verði lífi hans ógnað muni hann beita öllum leiðum til að eyða því sem hann geti. Þar á meðal gæti hann beitt kjarnorkuvopnum. „Kim Jong-un veit að kjarnorkuvopn eru eina leiðin til að tryggja yfirráð hans,“ segir Yong-ho. Hann segist telja að verði yfirráðum Kim Jong-un ógnað muni hann beita þessum hættulegu vopnum. Hann myndi hvort eð er láta lífið um leið og hann missir völd.
Mest lesið Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Fleiri fréttir Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Segja 2.700 hafa látist vegna hitabylgju Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu McConnell birtir mynd af sér á spítala Íranir og Bandaríkjamenn halda árásunum áfram Miklir skógareldar nærri París Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrrverandi ráðherra Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Lindsey Graham er látinn Var látin í sólarhring áður en hún fannst Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Dermot Murnaghan er látinn Manninum sleppt úr haldi Minnst sextíu látin í árásum Rússa í júlímánuði Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Handtekinn grunaður um morðið á fyrrverandi ráðherra Geta fengið sekt vegna ávanabindandi hönnunar Rannsaka andlát fyrrverandi ráðherra sem morð Heimsins frægasti refill fluttur til Bretlands Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Sjá meira