Virgil Van Djik, fyrirliði Southampton, verður með liðinu þegar það mætir Watford á laugardaginn.
Van Djik var sterklega orðaður við för frá félaginu í allt sumar og benti allt til þess að hann myndi ganga til liðs við Liverpool en allt kom fyrir ekki og varð hann áfram í herbúðum Southampton.
Hollendingurinn er búinn að glíma við erfið meiðsli frá því á janúar á þessu ári en hann sneri til baka til æfinga í vikunni og nú er ljóst að hann verður í leikmannahópi liðsins á laugardaginn.
Van Djik með Southampton um helgina

Tengdar fréttir

Van Dijk biður um sölu frá Southampton
Virgil van Dijk, varnarmaður Southampton í ensku úrvalsdeildinni, hefur beðið um sölu frá félaginu.