Bill O'Reilly sagður fá 25 milljónir dollara frá Fox Anton Egilsson skrifar 20. apríl 2017 19:05 Bill O'Reilly labbar ekki tómhentur út frá Fox sjónvarpsstöðinni. Vísir/AP
Bandaríski þáttastjórnandinn Bill O‘Reilly er sagður fá 25 milljónir Bandaríkjadollara, sem samsvarar tæpum 2,8 milljörðum íslenskra króna, frá sjónvarpsstöðinni Fox í kjölfar þess að stöðin sagði honum upp störfum. Þetta fullyrðir heimildarmaður bandarísku sjónvarpsfréttastöðvarinnar NBC sem þekkir til samningsmála O‘Reilly hjá Fox. Upphæðin sem um ræðir er sögð nema árslaunum kappans hjá Fox en heimildarmaðurinn segir að nýr fjögurra ára samningur sem O’Reilly skrifaði undir í síðasta mánuði hefði tryggt honum 25 milljónir Bandaríkjadollara í árslaun eða 100 milljónir allt í allt. Í samningnum hafi svo verið kveðið á um að Fox gæti sagt samningi O’Reilly upp einhliða ef upp kæmi ágreiningur sem gæti skaðað sjónvarpsstöðina. Ef að yrði, sem varð svo raunin, væri það tryggt að O’Reilly fengi fyrir sinn snúð það sem nemur árslaunum hans. Greint var frá því í gær að Fox hefði sagt O’Reilly upp störfum hjá stöðinni. Uppsögnin kemur stuttu eftir að fregnir bárust af því að fimm samstarfskonur O’Reilly hefðu sakað hann um að hafa áreitt sig kynferðislega á vinnustaðnum. Í kjölfarið greiddi O’Reilly, ásamt Fox fyrirtækinu, sáttagreiðslur til kvennanna fimm og námu greiðslurnar þrettán milljónum Bandaríkjadollara. O’Reilly stýrði þættinum „The O'Reilly Factor“ á Fox stöðinni og var um að ræða vinsælasta þátt sjónvarpsstöðvarinnar. Eftir að fréttir bárust af ásökununum gáfu ýmis stórfyrirtæki það út að þau væru hætt að kaupa auglýsingar hjá Fox á tímum þar sem þáttur O'Reilly var á dagskrá.
Tengdar fréttir Fox búið að reka Bill O'Reilly Uppsögnin kemur stuttu eftir að fregnir bárust af því að fimm samstarfskonur O'Reilly hefðu sakað hann um að hafa áreitt sig kynferðislega á vinnustaðnum. 19. apríl 2017 19:24 Borgar milljónir eftir ásakanir um kynferðislega áreitni Sjónvarpsmaðurinn Bill O'Reilly er sakaður um að hafa kynferðislega áreitt fimm samstarfskonur og hefur borgað 13 milljónir Bandaríkjadollara í sáttagreiðslur. 1. apríl 2017 22:32 Stórfyrirtæki neita að auglýsa hjá Fox vegna fregna af áreitni O'Reilly Ýmis fyrirtæki hafa ákveðið að auglýsa ekki hjá Fox sjónvarpsfréttastöðinni vegna fregna af kynferðislegri áreitni Bill O'Reilly í garð samstarfskvenna. 4. apríl 2017 17:51 Fær meira áhorf eftir ásakanir um kynferðislega áreitni Ásakanir um að hafa áreitt samstarfsmenn kynferðislega og fréttir um að hafa greitt viðkomandi samstarfsmönnum til að greina ekki frá áreitninni hafa ekki haft áhrif á áhorf á þátt bandaríska fréttamannsins Bill O'Reilly, The O'Reilly Factor. 10. apríl 2017 07:00 Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Innlent Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Innlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Fleiri fréttir R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Forsætisráðherra Úkraínu lætur af embætti Danska leyniþjónustan ræður mörghundruð nethermenn Mette-Marit útskrifuð af sjúkrahúsi Dómari ógildir sátt Trump og skattayfirvalda Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Þingið samþykkir stjórnarskrárviðauka til að koma forsetanum frá Boðað til þingkosninga í Ísrael þann 27. október Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn Rannsaka morð Widdecombe sem hryðjuverk ESB boðar aldurstakmörk á samfélagsmiðlum Sjá meira
Fox búið að reka Bill O'Reilly Uppsögnin kemur stuttu eftir að fregnir bárust af því að fimm samstarfskonur O'Reilly hefðu sakað hann um að hafa áreitt sig kynferðislega á vinnustaðnum. 19. apríl 2017 19:24
Borgar milljónir eftir ásakanir um kynferðislega áreitni Sjónvarpsmaðurinn Bill O'Reilly er sakaður um að hafa kynferðislega áreitt fimm samstarfskonur og hefur borgað 13 milljónir Bandaríkjadollara í sáttagreiðslur. 1. apríl 2017 22:32
Stórfyrirtæki neita að auglýsa hjá Fox vegna fregna af áreitni O'Reilly Ýmis fyrirtæki hafa ákveðið að auglýsa ekki hjá Fox sjónvarpsfréttastöðinni vegna fregna af kynferðislegri áreitni Bill O'Reilly í garð samstarfskvenna. 4. apríl 2017 17:51
Fær meira áhorf eftir ásakanir um kynferðislega áreitni Ásakanir um að hafa áreitt samstarfsmenn kynferðislega og fréttir um að hafa greitt viðkomandi samstarfsmönnum til að greina ekki frá áreitninni hafa ekki haft áhrif á áhorf á þátt bandaríska fréttamannsins Bill O'Reilly, The O'Reilly Factor. 10. apríl 2017 07:00