Ulloa bjargaði stigi fyrir Leicester í rosalegum leik | Sjáðu mörkin og rauða spjaldið 17. apríl 2016 14:30 Vardy skoraði eitt og fékk svo að líta rauða spjaldið. vísir/getty
Það var lygileg dramatík á King Power leikvanginum þegar Leicester og West Ham skildu jöfn 2-2 í rosalegum leik í ensku úrvalsdeildinni. Jamie Vardy kom Leicester yfir á átjándu mínútu eftir laglega skyndisókn og toppliðið leiddi í hálfleik 1-0. Á 56. mínútu gerðist umdeilt atvik. Jamie Vardy féll þá í vítateig West Ham, en Jonathan Moss, slakur dómari leiksins, mat það þannig að Vardy hafi verið að dýfa sér. Hann reif því upp gula spjaldið úr vasanum og þar með rauða þar sem Vardy hafði fengið gult spjald fyrr í leiknum. Á 84. mínútu gerðist svo annað umdeilt atvik. West Ham fékk þá vítaspyrnu, en atvikið má sjá hér neðar í fréttinni. Andry Carroll steig á punktinn og skoraði. Tveimur mínútum síðar kom Aaron Cresswell Lundúnar-liðinu svo yfir og dramatíkin í hávegum höfð, en þessu var ekki öllu lokið. Í uppbótartíma fékk Leicester mjög ódýra vítaspyrnu. Leonardo Ulloa steig á punktinn og honum brást ekki bogalistinn. Lokatölur 2-2. Leicester er með átta stiga forskot eftir jafnteflið á toppi deildarinnar, en Tottenham getur minnkað muninn í fimm stig með sigri á Stoke á morgun. West Ham er í sjötta sætinu með 56 stig, þremur stigum á eftir Man. Utd sem er í fimmta sætinu og tveimur á undan Southampton sem er í sjöunda sætinu.Vardy kemur Leicester yfir: Vardy fær rautt: West Ham fær víti og Andy jafnar: Cresswell kemur West Ham yfir með frábæru marki: Ulloa jafnar á King Power:
Enski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Fleiri fréttir Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Sjá meira