United færist nær kaupum á mótherja íslenska landsliðsins í sumar Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. apríl 2016 12:30 Renato Sanches er á leið til Manchester United. vísir/getty
Það virðist alveg klárt að Manchester United mun kaupa portúgalska táninginn Renato Sanches þegar félagaskiptaglugginn opnar í sumar, en enska blaðið Daily Mail greinir frá því að forseti Benfica, sem Sanches spilar fyrir, hafi verið í Lundúnum í gær að ganga frá málum.Í febrúar fullyrtu stærstu fjölmiðlar Portúgals að Manchester United og Benfica væru búin að gera með sér heiðursmannasamkomulag um sölu Sanches sem er aðeins 18 ára gamall. Þessi ungi miðjumaður er talinn einn af efnilegustu leikmönnum Evrópu en hann er fastamaður í byrjunarliði Benfica sem er með tveggja stiga forskot á toppnum í portúgölsku úrvalsdeildinni. Fernando Santos, landsliðsþjálfari Portúgals, kallaði Sanches inn í landsliðshópinn í fyrsta sinn í mars á þessu ári þar sem hann mætti Búlgaríu og Belgíu. Talið er nokkuð öruggt að Sanches fari með Portúgal á Evrópumótið í Frakklandi þar sem það mætir strákunum okkar í fyrsta leik í St. Étienne 14. júní. Manchester United er sagt borga 31 milljón punda fyrir Sanches til að byrja með en árangurstengdar greiðslur geta svo numið allt að fimmtán milljónum punda. Heildarverðið á leikmanninum verður því 46 milljónir punda eða ríflega átta milljarðar íslenskra króna. Manchester United er þess utan sagt áhugasamt um að klófesta gabonska framherjann Pierre-Emerick Aubameyang frá Dortmund en ahnn er metinn á 70 milljónir punda.
Enski boltinn Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Körfubolti Fleiri fréttir Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Sjá meira