Fyrrverandi framkvæmdastjóri Leeds pyntaður í fangelsi í Dubai Tómas Þór Þórðarson skrifar 7. apríl 2016 14:30 David Haigh. vísir/getty
David Haigh, fyrrverandi framkvæmdastjóri enska knattspyrnufélagsins Leeds, segist hafa verið pyntaður þegar hann sat í fangelsi í Dubai í 23 mánuði, en hann fékk frelsi sitt í síðasta mánuði. Hann segist í viðtali við Yorkshire Evening Post hafa fimm sinnum lent í því að vera pyntaður auk þess sem hann horfði upp á samfanga sína lenda í því sama. Yfirvöld í Dubai hafa ekki svarað ásökunum hans. Haig var handtekinn í Dubai í maí 2014 ásakaður um fjársvik af sínum fyrrverandi vinnuveitanda GHF Capital. Fyrirtækið, sem keypti Leeds árið 2012, er með höfuðstöðvar sínar í Dubai. GFH Capital heldur því fram að Haigh hafi falsað reikninga og ólöglega fært peninga inn á bankareikninga sem hann stjórnaði. Þessu hefur hann ávallt neitað og segir að sökinni hafi verið komið á hann. Haigh átti að losna úr fangelsi 16. nóvember á síðasta ári en tveimur dögum fyrr var hann ákærður aftur fyrir að skrifa ljóta hluti um viðskiptafélaga sinn á Twitter. Hann var síðar sýknaður og losnaði úr fangelsinu í mars.Teygjubyssa og rafbyssa „Ég var kýldur, barinn og þá var notuð rafbyssa á mig. Fólk reyndi að misþyrma mér kynferðislega. Ég á í miklum vandræðum með augun á mér núna því mér var haldið í myrkri allan tímann og það fer illa með augun,“ segir Haigh um veruna í fangelsinu. Hann lýsir aðstæðunum sem hryllilegum í fangelsinu og segir að þar hafi hann fundið lykt af hlutum sem engum langar að upplifa á sinni ævi. „Ég mun aldrei gleyma þessu. Ég sat þarna og lögreglan var að pynta mann fyrir aftan mig. Ég veit ekki hvað han gerði af sér en honum var kastað á gólfið, rafbyssa notuð á hann, það var sparkað í höfuðið á honum og þá notaði lögreglan teygjubyssu á punginn á manninum,“ segir Haig. „Þeir voru að reyna að hræða mig og sögðu að ég þyrfti að játa. Ef ég myndi játa það yrði allt miklu betra og þá gæti ég farið. En ef ég myndi ekki játa myndi ég vera þarna í tíu ár,“ segir David Haigh.
Enski boltinn Mest lesið Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum Fótbolti Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Íslenski boltinn Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Íslenski boltinn De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Enski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Fleiri fréttir Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Sjá meira