Nasri: Ég fór til City því það er betra lið en Arsenal Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. maí 2016 12:00 Samir Nasri er ánægður hjá City. vírir/getty
Samir Nasri, leikmaður Manchester City, er ekki sá vinsælasti hjá stuðningsmönnum Arsenal eftir að hann skipti frá Lundúnum til Manchester árið 2011. Stuðningsmenn Arsenal láta hann alltaf heyra það þegar liðin mætast. Honum finnst leiðinlegt hvernig komið er fram við hann en Nasri getur hlegið að þessu í dag, að eigin sögn. Nasri var fastamaður í liði Arsenal og vinsæll hjá stuðningsmönnum þess en þeir voru fljótir að hætta að elska hann og snöggir að byrja að hata hann þegar Nasri fór til City sumarið 2011. Vildu flestir meina að hann væri bara að elta aurinn. Nasri varð Englandsmeistari á sinni fyrstu leiktíð með Manchester City og lætur hróp og köll sinna fyrrverandi aðdáenda ekki hafa áhrif á sig í dag. „Manchester City var betra lið en Arsenal. Þess vegna fór ég þangað. Þetta snerist um metnað en ekki peninga,“ segir Nasri í viðtali við fótboltavefinn Goal.com. „Hvort sem þú ert stuðningsmaður eða ekki þarftu að skilja að ef stærra fyrirtæki hringir í þig ertu metnaðarfullur ef þú ferð þangað.“ „Ég elskaði Arsenal því stuðningsmennirnir komu alltaf frábærlega fram við mig en svo sá ég alla reiðina í minn garð og þá varð ég frekar reiður líka. Ég gerði ekkert rangt en samt hættu allir að elska mig og byrjuðu að hata mig.“ „Þetta er sorglegt því ég átti þrjú ótrúleg ár hjá Arsenal. Það keypti mig frá Marseille og Arsene Wenger var mér sem faðir. Hann gerði allt fyrir mig. Ég á í góðu sambandi við Wenger en það er leiðinlegt að hugsa til þess hversu slæmt samband mitt er við félagið sjálft í dag,“ segir Samir Sasri.
Enski boltinn Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti FH - Víkingur R | Nýta þær sér mistök meistaranna? Íslenski boltinn Fleiri fréttir Curtis Jones farinn til Inter Arsenal - Coventry City | Titilvörn Englandsmeistaranna hefst Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Sjá meira