Fyrrum leikmaður Víkings hetja Oxford gegn Swansea Anton Ingi Leifsson skrifar 10. janúar 2016 13:45 Roofe fagnar fyrra marki sínu. Vísir/Getty
Kemar Roofe, fyrrum leikmaður Víkings R., reyndist hetja D-deildarliðs Oxford gegn Swanesa í ensku bikarkeppninni í dag. Kemar skoraði tvö mörk í 3-2 sigri Oxford sem er komið í fjórðu umferð. Jefferson Montero kom Swansea yfir á 23. mínútu eftir laglegt samspil, en markið kom nokkuð gegn gangi leiksins. Heimamenn náðu þó að jafna fyrir hlé er Liam Sercombe jafnaði af vítapunktinum. Síðari hálfleikur var fjögurra mínútna gamall þegar Kemar Roofe kom Oxford yfir og tíu mínútum síðar var hann aftur á ferðinni með annað mark sitt og þriðja mark Oxford. Roofe spilaði þrjá leiki með Víkingi Reykjavík sumarið 2011, þá átján ára gamall. Hann spilaði tvo leiki í deildinni og einn leik í bikarnum, sem þá hét Valitor-bikarinn. Bafetimbi Gomis klóraði í bakkann fyrir Swansea á 66. mínútu sem hvíldi marga lykilmenn, en nær komust þeir ekki og lokatölur 3-2 Oxford. Gylfi Þór Sigurðsson var ekki í leikmannahópi Swansea í dag, en hann var hvíldur. Annar fyrrum Íslandsfari, George Baldock, var einnig í liði Oxford, en hann spilaði með ÍBV sumarið 2012. Hann spilaði sextán leiki í Pepsi-deildinni og einn leik í Borgunbikarnum. Þetta er í fyrsta skipti síðan 1999 sem Oxford kemst í fjórðu umferðina, en þá slógu þeir einnig út úrvalsdeildarlið í þriðju umferðinni. Þá var það Chelsea sem Oxford sló út og gamla goðsögnin Dean Windass var hetjan.
Enski boltinn Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Fleiri fréttir Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Brentford - Tottenham | Lundúnaslagur í fyrstu umferð Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Sjá meira