Gerrard hefur ekki lengur áhuga á stjórastöðu MK Dons | Þrennt í stöðunni? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. nóvember 2016 09:30 Steven Gerrard klæddist síðast Liverpool-treyjunni í góðgerðaleik í janúar. Vísir/Getty
Steven Gerrard verður ekki næsti knattspyrnustjóri MK Dons í ensku C-deildinni en Liverpool-goðsögnin hefur endað viðræður sínar við félagið. Hinn 36 ára gamli Steven Gerrard mun yfirgefa LA Galaxy í desember og er að skoða næsta skref sitt í fótboltanum. Hann sagðist í viðtali á dögunum að hann væri með nokkra möguleika í stöðunni. Jamie Carragher ræddi framtíð gamla liðsfélaga síns í þættinum Monday Night Football á Sky Sports í gær og var þá á því að tilboðið frá MK Dons hafi bara komið of snemma. Gerrard stefnir á þjálfun en samkvæmt Carragher hefði verið meiri líkur á því að hann tæki við MK Dons hefði tilboðið komið eftir sex eða tólf mánuði. Þetta bendir til þess að Steven Gerrard vilji spila fótbolta eitthvað lengur. Steven Gerrard hefur einnig verið orðaður við skoska félagið Celtic, ítalska félagið Internazionale sem og að snúa aftur til síns gamla félags Liverpool. Steven Gerrard yfirgaf Liverpool í maí 2015 og reyndi fyrir sér með LA Galaxy í bandarísku deildinni. Hann náði ekki að vera meistari þar frekar en á átján árum með Liverpool. Það hefur breyst mikið á Anfield eftir að Steven Gerrard fór og mestu munar um að Jürgen Klopp tók við sem knattspyrnustjóri. Klopp vill fá Gerrard aftur til félagsins en þá sem einn af þjálfurum félagsins. Gerrard er eins og áður sagði enn að hugsa um að spila eitthvað meira áður en skórnir fara upp á hillu. Kannski er draumurinn um meistaratitil enn það sterkur.
Enski boltinn Tengdar fréttir Ætlar Gerrard virkilega að velja MK Dons? Enskir fjölmiðlar velta áfram fyrir sér framtíðaráformum enska miðjumannsins Steven Gerrard sem er að koma heim til Englands eftir tveggja ára dvöl hjá bandaríska félaginu Los Angeles Galaxy. 18. nóvember 2016 09:15 Liverpool á toppnum í fyrsta sinn í tvö ár: „Ég veit hvað gerðist fyrir tveimur árum“ Jürgen Klopp er með Liverpool á toppnum í ensku úrvalsdeildinni en hann reynir að halda mönnum frá skýjunum. 7. nóvember 2016 09:00 Tekur Rooney stað Gerrard í borg englanna? The Sun er með áhugaverða frétt um framtíð þeirra Steven Gerrard og Wayne Rooney. 28. október 2016 10:30 Gamall Liverpool maður: Gerrard ætti bæði að spila og þjálfa hjá Liverpool Mark Lawrenson spilaði á sínum tíma 241 leik fyrir Liverpool og vann þrettán titla með félaginu. Hann starfar nú sem knattspyrnuspekingur hjá BBC og öðrum og segir ekkert nema jákvætt við það ef Steven Gerrard snúi aftur til Liverpool. 16. nóvember 2016 10:00 Gerrard kveður Los Angeles Gefur sterka vísbendingu um að tímabilið hafi verið hans síðasta hjá LA Galaxy. 14. nóvember 2016 09:00 Mest lesið Rasísk ummæli þingmanns um Mbappé harðlega gagnrýnd Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Maður dagsins á HM: Atvinnulaus hetja Noregs hætti við handbolta og skíði Fótbolti Spá því að ferðamennskan blómstri á eyjunum eftir HM Fótbolti Rann til á skilti og spilar ekki meira á HM Fótbolti FIFA segir Belga ekki hafa rétt til að áfrýja Fótbolti Martínez hættur með portúgalska landsliðið Fótbolti Trump um símtalið til Infantino: „Ég fékk þá til að gera þetta“ Fótbolti Fleiri fréttir Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Sjá meira
Ætlar Gerrard virkilega að velja MK Dons? Enskir fjölmiðlar velta áfram fyrir sér framtíðaráformum enska miðjumannsins Steven Gerrard sem er að koma heim til Englands eftir tveggja ára dvöl hjá bandaríska félaginu Los Angeles Galaxy. 18. nóvember 2016 09:15
Liverpool á toppnum í fyrsta sinn í tvö ár: „Ég veit hvað gerðist fyrir tveimur árum“ Jürgen Klopp er með Liverpool á toppnum í ensku úrvalsdeildinni en hann reynir að halda mönnum frá skýjunum. 7. nóvember 2016 09:00
Tekur Rooney stað Gerrard í borg englanna? The Sun er með áhugaverða frétt um framtíð þeirra Steven Gerrard og Wayne Rooney. 28. október 2016 10:30
Gamall Liverpool maður: Gerrard ætti bæði að spila og þjálfa hjá Liverpool Mark Lawrenson spilaði á sínum tíma 241 leik fyrir Liverpool og vann þrettán titla með félaginu. Hann starfar nú sem knattspyrnuspekingur hjá BBC og öðrum og segir ekkert nema jákvætt við það ef Steven Gerrard snúi aftur til Liverpool. 16. nóvember 2016 10:00
Gerrard kveður Los Angeles Gefur sterka vísbendingu um að tímabilið hafi verið hans síðasta hjá LA Galaxy. 14. nóvember 2016 09:00