Fjórir Brighton-menn fóru meiddir af velli og Wednesday vann 2-0 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. maí 2016 20:43 Ross Wallace. Vísir/Getty
Sheffield Wednesday er í fínum málum eftir fyrri undanúrslitaleik sinn á móti Brighton & Hove Albion í umspili um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni. Sheffield Wednesday vann 2-0 á heimavelli sínum í kvöld og er því með tveggja marka forskot fyrir seinni leikinn á heimavelli Brighton & Hove Albion. Sheffield Wednesday skoraði mörkin sín í sitthvorum hálfleiknum en liðið var manni fleiri síðasta hálftíma leiksins þegar fjórði leikmaður Brighton meiddist. Sheffield Wednesday endaði í sjötta sæti deildarinnar og var síðasta liðið inn í úrslitakeppnina en Brighton rétt missti af öðru af tveimur efstu sætunum á lokakaflanum. Það bjuggust því flestir við að Brighton væri að fara áfram en Sheffield Wednesday liðið hefur verið á miklu skriði síðan í desember og enginn óskamótherji fyrir Brighton. Það hjálpaði heldur ekki Brighton í kvöld að liðið missti fjóra menn af velli vegna meiðsla. Þegar sá síðasta meiddist voru skiptingarnar búnar og því þurftu leikmenn Brighton að spila tíu á móti ellefu síðasta hálftíma leiksins. Ross Wallace skoraði fyrra markið með glæsilegu langskoti á lokamínútu fyrri hálfleiksins en fyrr í hálfleiknum hafði Fernando Forestieri skorað mark sem var dæmt af og voru heimamenn langt frá því að vera sammála um það. Kieran Lee skoraði seinna markið á 73. mínútu eftir stoðsendingu frá Fernando Forestieri. Sigurvegarinn úr einvígi Sheffield Wednesday og Brighton & Hove Albion mætir sigurvegaranum úr einvígi Derby County og Hull City en fyrri leikur þeirra er á morgun. Seinni leikurinn Wednesday og Brighton fer fram á Falmer-leikvanginum í Brighton á Annan í Hvítasunnu.
Enski boltinn Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Aron Einar skoraði í fyrsta leik Fótbolti Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Enski boltinn hefst í kvöld Fótbolti „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Íslenski boltinn Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Fótbolti „Einn versti hálfleikur sem ég hef séð liðið spila“ Fótbolti Fleiri fréttir Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Sjá meira