Verðmæti Manchester United hefur hrunið á þessu tímabili Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2016 08:15 Fjarvera Wayne Rooney er ekki að hjálpa til. Vísir/Getty
Slakt gengi Manchester United á þessu tímabili kemur ekki aðeins fram í stigatöflu ensku úrvalsdeildarinnar heldur kristallast það einnig í reikningum félagsins. Verðmæti Manchester United hefur þegar fallið um 400 milljónir punda á þessu tímabili eða um 70,6 milljarða íslenska króna. Sky Sports segir frá. Verðmæti hvers hlutar í Manchester United á verðbréfamarkaðnum í New York var 18,37 dollarar í byrjun tímabilsins en einum sólarhring eftir 3-0 tapið á móti Tottenham á sunnudaginn var það komið niður í 13,83 dollara á hvern hlut. Þetta gerir 25 prósenta lækkun. Heildarverðmæti Manchester United við upphaf tímabilsins voru tveir milljarðar punda eða um 352 milljarðar íslenskra króna en núna er félagið "aðeins" virði 1,58 milljarða punda. Þetta er lækkun upp á 412 milljónir punda og ef það er farið til 22. júlí 2015 þá hefur virði félagsins lækkað um 650 milljónir punda á þessum tæpu níu mánuðum. 650 milljónir punda eru meira en 114,6 milljarðar íslenskra króna. Manchester United datt út úr Meistaradeildinni í desember og það verður mjög erfitt fyrir liðið að tryggja sér Meistaradeildarsæti á lokaspretti ensku úrvalsdeildarinnar. Ótrygg staða knattspyrnustjórans Louis van Gaal (samningur hans rennur út sumarið 2017) hjálpar ekki til ekki frekar en að missa af Meistaradeildinni í annað skiptið á þremur árum. Manchester United er nú fjórum stigum frá Meistaradeildarsæti þegar sex leikir eru eftir. Liðið er þó enn með í bikarnum og mætir West Ham í kvöld í endurteknum leik í átta liða úrslitunum. Það er því enn von um titil á Old Trafford á þessu tímabili.
Enski boltinn Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Fleiri fréttir Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Sjá meira